Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 57

Læknablaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 57
Óttar Guðmundsson geðlæknir er maður eigi einhamur. Nú í vor kom út áttunda bókin hans, og í þetta skiptið fer hann inn á svið sem um aldir mátti varla um ræða. Þó hafa sjálfsvíg alltaf verið hluti af lífi mannsins. Bók Óttars um sjálfsvíg er vel tímasett innlegg í þá umræðu sem hefur vaknað upp undanfarinn áratug eða tvo. Höfundareinkenni Óttars koma vel fram í bókinni. Hann er hispurslaus, ögrandi, jafnvel kaldhæðinn, stundum fullyrðingasamur. Á sama tíma skrifar hann af mikilli þekkingu og sýnir við- fangsefninu virðingu. Bókin er byggð upp af fræðilegum köflum og köflum um klíníska greiningar- og meðferðarfræði. Inn á milli eru lýsingar á upplifunum þeirra sem glíma við þunglyndi og eru orðnir fastir í svartsýni og dauðahugs- unum. Óttar er óragur við að fara úr fræðimannshlutverkinu og lýsa sínum persónulegu skoðunum, hvort heldur er um persónur, hópa eða einstaka þætti tengda sjálfsvígum. Áhrifamestu kaflarnir lýsa hans eigin sálarkreppum, þar sem hann var kominn fram á brúnina milli lífs og dauða. Fyrir þá sem ekki þekkja hljóta kaflarn- ir um sögu viðhorfa yfirstjórnar kristinnar kirkju til sjálfsvíga að vekja upp undrun. Á fyrstu öldum kristinnar kirkju ríkti upp- hafning á þeim sem fórnuðu lífi sínu fyrir trúna, en seinna fordæming og útskúfun á þeim sem sviptu sig lífi, hvort heldur í trúarlegum tilgangi eða í örvæntingu og uppgjöf. Tilvitnanir Óttars í Íslendinga- sögur og forna annála afmarka vel þann óhug og fordæmingu sem sjálfsvíg vöktu upp, bæði hjá lærðum og leikum, ekki síst þar sem við erum enn að glíma við for- dóma þegar kemur að þessum sorglegu atburðum. Óttar fer líka nokkrum orðum um afstöðu heimspekinga til sjálfsvíga. Sú umfjöllun hefði mátt vera viðameiri, ekki síst þar sem ég veit af forvarnarstarfi okkar Óttars að þekking hans þar er yfir- gripsmeiri en fram kemur í bókinni. Umfjöllunin um tengsl geðsjúkdóma og sjálfsvíga er ágæt, en hefði mátt vera mun ítarlegri. Sama má segja um meðferðarleið- ir, ekki síst um bráðainngrip þegar hættan er sem mest. Ég hefði kosið að sjá í bókinni umfjöllun um þá persónulegu eiginleika sem geta bjargað mörgum úr þeim lífsháska sem alvarlegar sjálfsvígshugsanir geta skapað. Það eru þættir eins og trú, eðlislæg seigla, baráttuandi og sterk tengsl við aðra, svo eitthvað sé nefnt. Sömuleiðis hefði meiri umfjöllun um áhættuþætti í uppvexti og þroska styrkt bókina, eins og um fáskiptni uppalenda, neikvæðni þeirra og skort á hvatningu, andlegt og líkamlegt ofbeldi á heimili, ekki síst ef það beinist að barninu. Er þá ótalin kynferðisleg mis- notkun á börnum og unglingum. Þessir þættir auka líkur á kvíða, þunglyndi, pers- ónuleikaröskunum og aukinni áfengis- og vímuefnanotkun þegar á unglingsár er komið. Eins og ég sagði hér að ofan er það Óttari eiginlegt að setja fram ögrandi fullyrðingar. Við kollegar hans förum ekki varhluta af því á nokkrum stöðum í bókinni. Þar er afstöðu læknisfræð- innar til sjálfsvíga lýst sem einstrengings- legri, jafnvel fordómafullri. Læknirinn verður þannig aumkvunarverður eða skoplegur í þröngsýni sinni. Þetta rímar ekki alveg við þá vísindalegu nálgun sem oftast er notuð, þar sem fléttað er saman við læknisfræðina félagslegum, menningarlegum og sálrænum þáttum í leit að orsökum og við skipulagningu meðferðar. En vissulega hrista þessar og aðrar fullyrðingar Óttars upp í lesandanum, geta pirrað suma, en skemmt öðrum. Myndverk Jóhönnu Þórhallsdóttur eru dimm og dulúðug og hæfa efni bókarinnar og skerpa. Niðurstaða: Þó að nokkrir annmarkar séu á bókinni, sem suma má rekja til þess að bókin er stutt (sem er kostur, því það er auðveldara að skrifa langan doðrant um svona mál), er það niðurstaða mín að þessi bók sé mjög þarft innlegg í umræðu um alvarlegt heilsufars- og/eða tilvistarvanda- mál sem hefur fylgt mannkyninu frá örófi alda. Bókin er mjög læsileg, vel skipulögð, með stuttum köflum. Ritstíll höfundar heldur manni við efnið. Bókin höfðar til þeirra sem vinna að því að hjálpa þung- lyndu fólki, til aðstandenda, og hefur líka mikið almennt fræðigildi. Lofsvert fram- tak. Þarf ég að deyja ef ég vil ekki lifa? b Ó k a D Ó M U R Högni Óskarsson geðlæknir hogni@humus.is LÆKNAblaðið 2014/100 489 flútikasón + nýr valkostur í meðferð astma Fyrsta astmalyfið sem sameinar sterkan barkstera, flútikasón1 og hraðvirkan β2 örva, formóteról2 formóteról flutiform® – Sterkur barksteri1 og hraðvirkur LABA2* – Sýnilegur skammtateljari – 3 styrkleikar Ábending: Flutiform® er ætlað til reglulegrar meðferðar við astma þegar notkun samsetts lyfs (innúðalyfs með barkstera og langvirkum β2 örva) er viðeigandi3 Flutiform®50/5 og 125/5 fyrir fullorðna og unglinga (>12 ára), flutiform® 250/10 fyrir fullorðna (>18ára) Heimildir: 1. Adams, N. P. et al. Copyright© 2010, The Cochrane Collaboration. Published by JohnWiley & Sons, Ltd. 2. Bodzenta-Lukaszyk, A. et al. Respiratory Medicine (2011) 105, 674-682 3. Samantekt á eiginleikum lyfs (spc) www.serlyfjaskra.is *LABA = formóteról LD 11 40 20 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.