Læknablaðið - 01.09.2014, Side 57
Óttar Guðmundsson geðlæknir er maður
eigi einhamur. Nú í vor kom út áttunda
bókin hans, og í þetta skiptið fer hann inn
á svið sem um aldir mátti varla um ræða.
Þó hafa sjálfsvíg alltaf verið hluti af lífi
mannsins. Bók Óttars um sjálfsvíg er vel
tímasett innlegg í þá umræðu sem hefur
vaknað upp undanfarinn áratug eða tvo.
Höfundareinkenni Óttars koma vel
fram í bókinni. Hann er hispurslaus,
ögrandi, jafnvel kaldhæðinn, stundum
fullyrðingasamur. Á sama tíma skrifar
hann af mikilli þekkingu og sýnir við-
fangsefninu virðingu. Bókin er byggð
upp af fræðilegum köflum og köflum um
klíníska greiningar- og meðferðarfræði.
Inn á milli eru lýsingar á upplifunum
þeirra sem glíma við þunglyndi og eru
orðnir fastir í svartsýni og dauðahugs-
unum. Óttar er óragur við að fara úr
fræðimannshlutverkinu og lýsa sínum
persónulegu skoðunum, hvort heldur er
um persónur, hópa eða einstaka þætti
tengda sjálfsvígum. Áhrifamestu kaflarnir
lýsa hans eigin sálarkreppum, þar sem
hann var kominn fram á brúnina milli lífs
og dauða.
Fyrir þá sem ekki þekkja hljóta kaflarn-
ir um sögu viðhorfa yfirstjórnar kristinnar
kirkju til sjálfsvíga að vekja upp undrun.
Á fyrstu öldum kristinnar kirkju ríkti upp-
hafning á þeim sem fórnuðu lífi sínu fyrir
trúna, en seinna fordæming og útskúfun
á þeim sem sviptu sig lífi, hvort heldur í
trúarlegum tilgangi eða í örvæntingu og
uppgjöf. Tilvitnanir Óttars í Íslendinga-
sögur og forna annála afmarka vel þann
óhug og fordæmingu sem sjálfsvíg vöktu
upp, bæði hjá lærðum og leikum, ekki síst
þar sem við erum enn að glíma við for-
dóma þegar kemur að þessum sorglegu
atburðum. Óttar fer líka nokkrum orðum
um afstöðu heimspekinga til sjálfsvíga.
Sú umfjöllun hefði mátt vera viðameiri,
ekki síst þar sem ég veit af forvarnarstarfi
okkar Óttars að þekking hans þar er yfir-
gripsmeiri en fram kemur í bókinni.
Umfjöllunin um tengsl geðsjúkdóma og
sjálfsvíga er ágæt, en hefði mátt vera mun
ítarlegri. Sama má segja um meðferðarleið-
ir, ekki síst um bráðainngrip þegar hættan
er sem mest.
Ég hefði kosið að sjá í bókinni
umfjöllun um þá persónulegu eiginleika
sem geta bjargað mörgum úr þeim
lífsháska sem alvarlegar sjálfsvígshugsanir
geta skapað. Það eru þættir eins og trú,
eðlislæg seigla, baráttuandi og sterk tengsl
við aðra, svo eitthvað sé nefnt. Sömuleiðis
hefði meiri umfjöllun um áhættuþætti í
uppvexti og þroska styrkt bókina, eins og
um fáskiptni uppalenda, neikvæðni þeirra
og skort á hvatningu, andlegt og líkamlegt
ofbeldi á heimili, ekki síst ef það beinist
að barninu. Er þá ótalin kynferðisleg mis-
notkun á börnum og unglingum. Þessir
þættir auka líkur á kvíða, þunglyndi, pers-
ónuleikaröskunum og aukinni áfengis- og
vímuefnanotkun þegar á unglingsár er
komið.
Eins og ég sagði hér að ofan er það
Óttari eiginlegt að setja fram ögrandi
fullyrðingar. Við kollegar hans förum
ekki varhluta af því á nokkrum stöðum
í bókinni. Þar er afstöðu læknisfræð-
innar til sjálfsvíga lýst sem einstrengings-
legri, jafnvel fordómafullri. Læknirinn
verður þannig aumkvunarverður eða
skoplegur í þröngsýni sinni. Þetta rímar
ekki alveg við þá vísindalegu nálgun
sem oftast er notuð, þar sem fléttað er
saman við læknisfræðina félagslegum,
menningarlegum og sálrænum þáttum
í leit að orsökum og við skipulagningu
meðferðar. En vissulega hrista þessar
og aðrar fullyrðingar Óttars upp í
lesandanum, geta pirrað suma, en skemmt
öðrum.
Myndverk Jóhönnu Þórhallsdóttur eru
dimm og dulúðug og hæfa efni bókarinnar
og skerpa.
Niðurstaða: Þó að nokkrir annmarkar
séu á bókinni, sem suma má rekja til þess
að bókin er stutt (sem er kostur, því það er
auðveldara að skrifa langan doðrant um
svona mál), er það niðurstaða mín að þessi
bók sé mjög þarft innlegg í umræðu um
alvarlegt heilsufars- og/eða tilvistarvanda-
mál sem hefur fylgt mannkyninu frá örófi
alda. Bókin er mjög læsileg, vel skipulögð,
með stuttum köflum. Ritstíll höfundar
heldur manni við efnið. Bókin höfðar til
þeirra sem vinna að því að hjálpa þung-
lyndu fólki, til aðstandenda, og hefur líka
mikið almennt fræðigildi. Lofsvert fram-
tak.
Þarf ég að deyja
ef ég vil ekki lifa?
b Ó k a D Ó M U R
Högni Óskarsson
geðlæknir
hogni@humus.is
LÆKNAblaðið 2014/100 489
flútikasón +
nýr valkostur í meðferð astma
Fyrsta astmalyfið sem sameinar sterkan barkstera,
flútikasón1 og hraðvirkan β2 örva, formóteról2
formóteról
flutiform®
– Sterkur barksteri1 og hraðvirkur LABA2*
– Sýnilegur skammtateljari
– 3 styrkleikar
Ábending: Flutiform® er ætlað til reglulegrar meðferðar við astma þegar
notkun samsetts lyfs (innúðalyfs með barkstera og langvirkum β2 örva)
er viðeigandi3
Flutiform®50/5 og 125/5 fyrir fullorðna og unglinga (>12 ára), flutiform®
250/10 fyrir fullorðna (>18ára)
Heimildir: 1. Adams, N. P. et al. Copyright© 2010, The Cochrane Collaboration. Published by JohnWiley & Sons, Ltd. 2. Bodzenta-Lukaszyk, A. et al. Respiratory Medicine (2011) 105, 674-682 3. Samantekt á eiginleikum lyfs (spc) www.serlyfjaskra.is *LABA = formóteról
LD
11
40
20
1