Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 44
476 LÆKNAblaðið 2014/100 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Birna Þórðardóttir titlar sig ferðaskipu- leggjanda í símaskránni. Hún býr í fal- legu hornhúsi á Óðinsgötunni og kveðst aðeins þurfa að opna glugga til að heyra óminn af nýjasta gullæði Íslendinga, ferðamannastraumnum. Birna hefur þó ekki ausið að ráði úr gullstraumnum heldur skipuleggur gönguferðir um Þingholtin, Vesturbæinn og miðbæinn fyrir áhugasama Íslendinga, menningar- rölt um gamlar götur, þar sem hún rifjar upp sögu húsa, íbúa þeirra og hlutverk í lista- og menningarsögu landans. „Annars klæðskerasauma ég leiðsögn mína eftir óskum hópanna hverju sinni og hef mikla ánægju af því. Ég hóf þessa starfsemi árið 2002 þegar ég hætti á Lækna- blaðinu, var þess nokkuð fullviss að ég myndi ekki ganga inn í vinnu annars stað- ar og yrði því að skapa mér vinnuna sjálf. Reynsla mín af íslenskum vinnumarkaði er ekki þess eðlis að ég byggist við að hann tæki mér opnum örmum þó ég hefði unnið gott starf við Læknablaðið hjá Lækna- félagi Íslands um 17 ára skeið,“ segir Birna þegar hún er sest við eldhúsborðið eftir nokkra snúninga við kaffilögun og af- greiðslu tölvupósta sem ekki mega bíða. Hún útskýrir að morguninn eftir eigi að birta í fjölmiðlum auglýsingu um starfslaun listamanna en hún hefur gegnt formennsku í stjórn listamannalauna um ríflega 5 ára skeið. „Þetta er síðasta árið sem ég gegni for- mennsku í stjórninni en þetta er alltaf törn á haustin, umsóknarfrestur rennur út 30. september og síðan er tilkynnt um úthlut- anir launa fljótlega uppúr áramótum.“ Þótti alldjarft að ráða mig Birna hóf störf við Læknablaðið árið 1985 en þá var allt annað fyrirkomulag við vinnslu blaðsins en síðar varð. „Blaðið var þá prentað í Kaupmannahöfn og Danska læknafélagið sá um prentun og öflun auglýsinga. Örn Bjarnason var ritstjóri og einstaklega drífandi við allt er sneri að blaðinu. Hann og ritstjórn blaðsins tóku þá ákvörðun að hefja útgáfu fréttabréfs þar sem birtar væru fréttir af félagsmálum lækna, það yrði vettvangur umræðu um kjara- og félagsmál og annað er sneri að læknum en væri ekki fræðilegs eðlis. Ég hafði í nokkurn tíma verið lausráðin til ýmissa verkefna á skrifstofu Læknafélags Íslands og Örn bauð mér að sjá um Fréttabréfið í hlutastarfi. Ritstjórnarfulltrúi Læknablaðsins var þá Jóhannes Tómasson. Fréttabréfið var frá upphafi prentað hér heima og kom út nokkru oftar en Lækna- blaðið sjálft.“ Birna rifjar upp að Örn Bjarnason hafi þótt alldjarfur að ráða hana að blaðinu og ekki hafi allir verið jafn ánægðir með þá ráðstöfun. Birna var þekkt fyrir að fara ekki í felur með róttækar pólitískar skoðanir sínar og hafði mátt líða fyrir þær í leit sinni að störfum við hæfi. „Það er ákveðinn þröskuldur að vera ráðin í vinnu og þó ég sé ágætlega gerð til bæði munns og handa hafði ég ekki oft stigið yfir þann þröskuld. Ég var því Erni mjög þakklát fyrir að láta þetta ekki hafa áhrif á sig og bjóða mér þetta starf og standa síðan að baki mér eftir þá ákvörðun. Það hafði reyndar engan eftirmála og samstarf mitt við ritstjórn var ávallt mjög gott.“ Starf Birnu við Fréttabréf lækna þróaðist fljótlega yfir í samstarf við Jóhannes Tómasson við Læknablaðið og þegar hann sagði starfi sínu lausu eftir 10 ára starf var Birna ráðin ritstjórnarfulltrúi í hans stað árið 1988. „Ekki löngu síðar var ákveðið að sam- eina útgáfu Fréttabréfsins og Læknablaðsins en prentunin hélt áfram í Kaupmanna- höfn. Þetta var þróun sem átti sér stað á nokkrum árum. Auglýsingasöfnunin færðist fyrst hingað heim og þá varð til hálf staða auglýsingastjóra og ritara blaðs- ins. Árið 1994 var prentun blaðsins flutt heim og þar með lauk farsælu samstarfi við Danska læknafélagið um vinnslu blaðsins en ritstjórn þótti þetta hentugra fyrirkomulag og hagkvæmara. Í ársbyrjun 1998 var ráðinn að blaðinu umbrotsmaður og blaðamaður og hefur það fyrirkomulag haldist síðan að mér skilst.“ Agi og skipulögð vinnubrögð Látum þetta nægja um mannahald og breytingar á rekstri Læknablaðsins og snúum okkur að útgáfunni sjálfri. Birna hugsar sig um örlitla stund þegar hún er spurð hvað beri hæst í huga hennar þegar hún hugsar til blaðsins. „Það er ekki neitt eitt ákveðið atriði. Blaðið var að mörgu leyti í mikilli mótun á þessum árum. Örn Bjarnason tók ritrýni fræðigreina mjög föstum tökum og því var haldið áfram og fylgt eftir af Vilhjálmi Rafnssyni sem tók við ritstjórn blaðsins af honum árið 1992. Örn var mikill áhuga- maður um íðorðasmíð læknisfræði- og sjúkdómaheita á íslensku og lagði mikla áherslu á vandað málfar blaðsins. Íðorða- smíðin er í rauninni samtvinnuð sögu Læknablaðsins á 8., 9. og 10. áratug síðustu aldar. Þar vann Jóhann Heiðar Jóhannsson gríðargott starf og var með íðorðapistla í Læknablaðinu um árabil. Það má segja að Örn Bjarnason hafi verið drifkrafturinn að baki þessu starfi en íðorðanefnd Læknafélagsins hafði starfað ötullega með honum um árabil. Örn var og er ein- stakur maður og ég lærði geysilega margt af honum. Mestu skipti þar agi varðandi vinnubrögð við meðhöndlun fræðigreina og þær grundvallarreglur sem liggja þar að baki voru nýjar fyrir mér þó ég hafi haft reynslu af útgáfu áður en ég réðst til Læknablaðsins. Örn var mér ómetanlegur Lít til baka með mikilli ánægju ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson – segir Birna Þórðardóttir fyrrum ritstjórnarfulltrúi Læknablaðsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.