Læknablaðið - 01.09.2014, Side 44
476 LÆKNAblaðið 2014/100
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
Birna Þórðardóttir titlar sig ferðaskipu-
leggjanda í símaskránni. Hún býr í fal-
legu hornhúsi á Óðinsgötunni og kveðst
aðeins þurfa að opna glugga til að heyra
óminn af nýjasta gullæði Íslendinga,
ferðamannastraumnum. Birna hefur þó
ekki ausið að ráði úr gullstraumnum
heldur skipuleggur gönguferðir um
Þingholtin, Vesturbæinn og miðbæinn
fyrir áhugasama Íslendinga, menningar-
rölt um gamlar götur, þar sem hún rifjar
upp sögu húsa, íbúa þeirra og hlutverk í
lista- og menningarsögu landans.
„Annars klæðskerasauma ég leiðsögn
mína eftir óskum hópanna hverju sinni
og hef mikla ánægju af því. Ég hóf þessa
starfsemi árið 2002 þegar ég hætti á Lækna-
blaðinu, var þess nokkuð fullviss að ég
myndi ekki ganga inn í vinnu annars stað-
ar og yrði því að skapa mér vinnuna sjálf.
Reynsla mín af íslenskum vinnumarkaði
er ekki þess eðlis að ég byggist við að
hann tæki mér opnum örmum þó ég hefði
unnið gott starf við Læknablaðið hjá Lækna-
félagi Íslands um 17 ára skeið,“ segir Birna
þegar hún er sest við eldhúsborðið eftir
nokkra snúninga við kaffilögun og af-
greiðslu tölvupósta sem ekki mega bíða.
Hún útskýrir að morguninn eftir eigi
að birta í fjölmiðlum auglýsingu um
starfslaun listamanna en hún hefur gegnt
formennsku í stjórn listamannalauna um
ríflega 5 ára skeið.
„Þetta er síðasta árið sem ég gegni for-
mennsku í stjórninni en þetta er alltaf törn
á haustin, umsóknarfrestur rennur út 30.
september og síðan er tilkynnt um úthlut-
anir launa fljótlega uppúr áramótum.“
Þótti alldjarft að ráða mig
Birna hóf störf við Læknablaðið árið 1985
en þá var allt annað fyrirkomulag við
vinnslu blaðsins en síðar varð. „Blaðið var
þá prentað í Kaupmannahöfn og Danska
læknafélagið sá um prentun og öflun
auglýsinga. Örn Bjarnason var ritstjóri og
einstaklega drífandi við allt er sneri að
blaðinu. Hann og ritstjórn blaðsins tóku
þá ákvörðun að hefja útgáfu fréttabréfs
þar sem birtar væru fréttir af félagsmálum
lækna, það yrði vettvangur umræðu um
kjara- og félagsmál og annað er sneri að
læknum en væri ekki fræðilegs eðlis. Ég
hafði í nokkurn tíma verið lausráðin til
ýmissa verkefna á skrifstofu Læknafélags
Íslands og Örn bauð mér að sjá um
Fréttabréfið í hlutastarfi. Ritstjórnarfulltrúi
Læknablaðsins var þá Jóhannes Tómasson.
Fréttabréfið var frá upphafi prentað hér
heima og kom út nokkru oftar en Lækna-
blaðið sjálft.“
Birna rifjar upp að Örn Bjarnason hafi
þótt alldjarfur að ráða hana að blaðinu
og ekki hafi allir verið jafn ánægðir með
þá ráðstöfun. Birna var þekkt fyrir að
fara ekki í felur með róttækar pólitískar
skoðanir sínar og hafði mátt líða fyrir þær
í leit sinni að störfum við hæfi. „Það er
ákveðinn þröskuldur að vera ráðin í vinnu
og þó ég sé ágætlega gerð til bæði munns
og handa hafði ég ekki oft stigið yfir þann
þröskuld. Ég var því Erni mjög þakklát
fyrir að láta þetta ekki hafa áhrif á sig
og bjóða mér þetta starf og standa síðan
að baki mér eftir þá ákvörðun. Það hafði
reyndar engan eftirmála og samstarf mitt
við ritstjórn var ávallt mjög gott.“
Starf Birnu við Fréttabréf lækna þróaðist
fljótlega yfir í samstarf við Jóhannes
Tómasson við Læknablaðið og þegar hann
sagði starfi sínu lausu eftir 10 ára starf var
Birna ráðin ritstjórnarfulltrúi í hans stað
árið 1988.
„Ekki löngu síðar var ákveðið að sam-
eina útgáfu Fréttabréfsins og Læknablaðsins
en prentunin hélt áfram í Kaupmanna-
höfn. Þetta var þróun sem átti sér stað
á nokkrum árum. Auglýsingasöfnunin
færðist fyrst hingað heim og þá varð til
hálf staða auglýsingastjóra og ritara blaðs-
ins. Árið 1994 var prentun blaðsins flutt
heim og þar með lauk farsælu samstarfi
við Danska læknafélagið um vinnslu
blaðsins en ritstjórn þótti þetta hentugra
fyrirkomulag og hagkvæmara. Í ársbyrjun
1998 var ráðinn að blaðinu umbrotsmaður
og blaðamaður og hefur það fyrirkomulag
haldist síðan að mér skilst.“
Agi og skipulögð vinnubrögð
Látum þetta nægja um mannahald og
breytingar á rekstri Læknablaðsins og
snúum okkur að útgáfunni sjálfri. Birna
hugsar sig um örlitla stund þegar hún er
spurð hvað beri hæst í huga hennar þegar
hún hugsar til blaðsins.
„Það er ekki neitt eitt ákveðið atriði.
Blaðið var að mörgu leyti í mikilli mótun
á þessum árum. Örn Bjarnason tók ritrýni
fræðigreina mjög föstum tökum og því
var haldið áfram og fylgt eftir af Vilhjálmi
Rafnssyni sem tók við ritstjórn blaðsins af
honum árið 1992. Örn var mikill áhuga-
maður um íðorðasmíð læknisfræði- og
sjúkdómaheita á íslensku og lagði mikla
áherslu á vandað málfar blaðsins. Íðorða-
smíðin er í rauninni samtvinnuð sögu
Læknablaðsins á 8., 9. og 10. áratug síðustu
aldar. Þar vann Jóhann Heiðar Jóhannsson
gríðargott starf og var með íðorðapistla í
Læknablaðinu um árabil. Það má segja að
Örn Bjarnason hafi verið drifkrafturinn
að baki þessu starfi en íðorðanefnd
Læknafélagsins hafði starfað ötullega
með honum um árabil. Örn var og er ein-
stakur maður og ég lærði geysilega margt
af honum. Mestu skipti þar agi varðandi
vinnubrögð við meðhöndlun fræðigreina
og þær grundvallarreglur sem liggja þar
að baki voru nýjar fyrir mér þó ég hafi
haft reynslu af útgáfu áður en ég réðst til
Læknablaðsins. Örn var mér ómetanlegur
Lít til baka með mikilli ánægju
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
– segir Birna
Þórðardóttir fyrrum
ritstjórnarfulltrúi
Læknablaðsins