Læknablaðið - 01.09.2014, Page 3
LÆKNAblaðið 2014/100 435
læknablaðið
the icelandic medical journal
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og
ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1750
Áskrift
12.400,- m. vsk.
Lausasala
1240,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu. Blað þetta má
eigi afrita með neinum hætti, hvorki að
hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Myndin á kápu blaðsins var tekin í Austurbæjarskólanum
í nóvember árið 1953, ljósmyndari: Sigurhans E. Vignir.
Það tíðkaðist hérlendis að nemendum væri gefið lýsi í
skólanum á árunum uppúr 1930 og fram undir 1970. Mikil-
vægt var að „uppáhellingin“ tækist vel enda var fátt verra
en að fá lýsi í skólafötin! Samspil mataræðis og heilsufars
er ótvírætt en margslungið og deildar meiningar hafa
löngum verið um það hvað er heilsunni hollast. Læknar
byrjuðu snemma að gagnrýna meðferð matvæla og
mataræði landsmanna enda sáu
þeir þess merki að víða var pottur
brotinn.
Þegar konur voru kosnar í
bæjarstjórn Reykjavíkur árið
1908 hófu þær að beita sér fyrir
bættum aðbúnaði barna og fengu
því einnig framgengt að ráðinn
var læknir við barnaskólann, Guð-
mundur Hannesson (1866-1946).
Skólalæknirinn annaðist almenna
heilbrigðisskoðun og benti á leiðir
til úrbóta og ef foreldrar gátu ekki
brugðist við var reynt að aðstoða þá
sem þess þurftu. Þegar lögbundnu
skólaeftirliti var komið á árið 1916
kynntust læknar heilsufari og aðbún-
aði flestra barna í sínu héraði og þau
kynni urðu til þess að lögð var meiri áhersla á samfélags-
legar úrbætur. Landlæknir hvatti til almennrar heilbrigðis-
skoðunar í skólum árið 1921 en frá því ári er kunn skýrsla
Steingríms Matthíassonar (1876-1948) héraðslæknis
á Akureyri um heilsufar skólabarna. Hann bar saman
ýmsa þætti í heilsufari barna á Akureyri og í nærliggjandi
sveitum og niðurstaða hans var að sveitabörnin væru heil-
brigðari og gáfaðari. „Meiri mjólk, styttri skólatími, færri
kennslustundir, meira næði, minni sollur og svo það atriði,
og ekki minnst, það að sveitabörnin eru fljótt vanin á að
vinna og vinna þarflega vinnu sem þroskar heila, hendur
og vöðva.“ Þessi skoðun féll í góðan jarðveg meðal
margra Íslendinga.
Næringarskortur og „útmánaðasvelti“ var staðreynd
meðal íslenskra skólabarna. Í Reykjavík var fátækum
börnum gefinn matur í skólanum og um 1930 var farið að
gefa börnum mjólk að drekka og skömmu síðar einnig
lýsi. Lýsi hefur fylgt þjóðinni
frá upphafi og verið notað
sem ljósmeti, til matar og við
ýmsum kvillum. Hvernig og með
hvaða hætti menn gerðu sér
grein fyrir því að lýsi væri einna
heppilegast til að stuðla að heil-
brigði skólabarna er ekki vitað.
Þekking á vítamínum og hvaða
matvæli innihalda vítamín var
takmörkuð en þó töldu menn
sig sjá samhengi milli skorts á
ákveðinni fæðu og heilsuleysis.
Menn lögðu áherslu á þjóðlega
innlenda framleiðslu eins og
mjólk og lýsi sem innihalda A- og
D-vítamín sem vissulega var
skortur á. Skorturinn á C-vítamíni
var kannski öllu alvarlegri en úr honum varð ekki auðveld-
lega bætt nema með innflutningi matvæla, t.d. appelsína,
og slíkt þótti ekki heppilegt á tímum þjóðlegs rétttrúnaðar.
Heilbrigðiseftirlit í skólum var eitt mikilvægasta fram-
lag til heilsuverndar og síðar heilsueflingar í landinu um
áratugaskeið.
Jón Ólafur Ísberg
Ný meðferð fyrir sjúklinga með sykursýki tegund 2
Ný leið til að lækka
umframmagn af glúkósa
- fjarlægir hann1
Eina meðferðin sem
fjarlægir umframmagn
af glúkósa um nýrun1
FJARLÆGIR
um 70 g af glúkósa
daglega.
Getur leitt til þyngdartaps1
1 Heimild: Sérlyfjaskrártexti Forxiga (dapagliflozin),
apríl 2013.
LÆKKAR
BLÓÐSYKUR
HbA1C1
Nýtt!
08
-2
01
4-
01
En sá er háttur á að gefa
börnum lýsi svo þau fái
ekki innfallna maga, verði
afskræmd af kröm og
þurfi að fara í ljós. Lýsis-
hellandi hjúkrunarkonur
geta birst þegar minnst
varir. Klukkulausir krakkar
vita ekki hvenær á þeim
er von. Hann horfir út
um gluggann án þess að
sjá nokkuð nema sælan
blikflöt skynjunarinnar.
En hann er alltaf á ómeð-
vituðum verði gagnvart
lýsinu. Stofurnar hér í
norðurálmunni eru sér og
gengið þangað frá hjúkrunarstofum, tannlæknastofu og
ljósabaðstofu á ská yfir portið. Hann vaknar við vondan
draum og sér lýsiskvendin storma yfir portið með könn-
urnar, þær fjölmenna, þetta er heill lýsishellandi her í
hjúkkubúningi á leið að hella klígju vægðarlaust í hin
vondu börn. Þetta eru meintar hjúkrunarkonur sem styðja
hvor aðra í erfiðu starfi. Þar kom inn önnur og hélt á lýsis-
könnu. Hún kemur og þú átt að rétta upp hökuna og gapa
á meðan hún hellir í þig þessu ógeði. Þetta er niðurlæging
hinna varnarlausu. Lýsisbrunnurinn er svo vemmilegur að
maður afber ekki þá kvöl að sjá lýsiskönnurnar sem þær
dýfa daglega í brunninn, hvað þá að fá þetta ógeð ofan í
sitt ofurnæma smáfuglsgin.
Þórunn Valdimarsdóttir, Megas. Sól í Norðurmýri.
Píslarsaga úr Austurbæ. Forlagið, Reykjavík 1990: 127.
Eftir er þá að ljúka
síðasta kafla þessarar
frásagnar með því að lýsa
rómantísku aðferðinni,
hvernig hvallýsið er látið
á ámurnar og því komið
fyrir í lestinni þar sem
stórhvelið hverfur aftur í
djúpið og rennur áfram
undir yfirborðinu eins og
að fornu, en því miður
ekki til þess að koma upp
aftur að blása.
Meðan lýsið enn
er volgt er það, líkt og
heitur púnsdrykkur, sett
á svonefndar sextunna
ámur og þótt skipið ef til vill taki dýfur og velti er þessum
stóru ámum sveiflað, velt og við þær bisað og getur þá
vel svo farið að þær renni ógnandi yfir sleipt dekkið eins
og skriðufall uns tökum er á þeim náð og þær stöðvaðar
á flóttanum. Jafnframt er barið með öllum sleggjum sem
við verður komið á gjarðirnar því sérhver háseti er á þess-
ari stundu fæddur beykir.
Þegar loks er lokið að fylla á síðasta pelann og
lýsið allt kólnað er tekið ofan af stóru lúkuopunum, iður
skipsins opnuð og ámurnar látnar síga niður að síðasta
hvílustað þeirra á hafinu. Þegar þessu er lokið er lúkuhler-
unum komið aftur á sinn stað og allt er loftþétt lokað eins
og skápur sem búið er að múra upp í.
Hermann Melville. Mobý Dick – eða hvalurinn.
Þýðing: Júlíus Havsteen/Ísak Harðarson. JPV útgáfa, Reykjavík 2005: 484.
Verði bæði lýsi og ljós!
Úr lýsisbræðslu í Reykjavík á fyrsta áratug 20. aldar.
Ljósmyndari Pétur Brynjólfsson. Birt með leyfi Ljós-
myndasafns Íslands í Þjóðminjasafni.