Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.09.2014, Page 24

Læknablaðið - 01.09.2014, Page 24
456 LÆKNAblaðið 2014/100 S a G a l æ k n i S F R æ ð i n n a R Reykjavíkurrannsóknin Landssamtök Hjartaverndar voru stofnuð 25. október 1964. Upp- hafsmaður að stofnun samtakanna og fyrsti formaður var Sig- urður Samúelsson prófessor og yfirlæknir á lyflækningadeild Landspítalans. Nafnið Hjartavernd sótti Sigurður til Halldórs Halldórssonar prófessors í íslensku. Sigurður tekur fram í skrifum sínum frá þessum tíma að honum og samstarfsmönnum hans á Landspítalanum, þeim Snorra Páli Snorrasyni og Theódóri Skúla- syni, hafi verið orðið ljóst að eitthvað þyrfti að gera til að hefta framgang kransæðasjúkdóms á Íslandi sem þá var í miklum vexti.1 Í kjölfar stofnfundar var safnað fé hjá íslenskum fyrirtækjum og einstaklingum til kaupa á húsnæði að Lágmúla 9 í Reykjavík og gekk sú söfnun vel. Undirbúningur var síðan hafinn að stofnun Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar í því húsnæði. Megintilgangur- inn var að gera umfangsmikla hóprannsókn til að kanna meðal annars útbreiðslu hjarta- og æðasjúkdóma hér á landi og finna helstu áhættuþætti þeirra svo unnt yrði að beita árangursríkum forvörnum. Rannsóknarstöðin var tilbúin til notkunar haustið 1967 og hófst þá hóprannsókn sem síðar hefur fengið nafnið Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar. Samkvæmt dagblöðum þessa tíma voru ekki allir landsmenn jafn sannfærðir um ágæti þessa og vöruðu sumir heilbrigðisyfir- völd við að styrkja þetta glapræði. Sigurður Samúelsson og sam- starfsfólk hans létu þetta ekki á sig fá heldur héldu sínu striki. Starfsmenn Rannsóknarstöðvarinnar við upphaf rannsóknar- innar voru 23 í 13 stöðugildum. Fyrsti yfirlæknir stöðvarinnar var Ólafur Ólafsson og gegndi hann því starfi til 1972 þegar hann tók Rannsóknarstöð Hjartaverndar, fortíð og nútíð Vilmundur Guðnason, nikulás Sigfússon, Gunnar Sigurðsson LÆKNAbLAðIð hefur komið út síðan 1915 og í þessum 100. árgangi blaðsins eru greinar sem ritstjórnin hefur kallað eftir af því tilefni. Höfundar greinanna skrifa um ýmis málefni sem snerta lækna, félagsleg, söguleg og fræðileg. Rannsóknarstöð Hjartaverndar tók til starfa haustið 1967. Megintilgangur hennar var að kanna algengi hjarta- og æðasjúkdóma á Íslandi sem þá voru í miklum vexti og finna helstu áhættuþætti þeirra svo unnt yrði að beita árangursríkum forvörnum. Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar var sett af stað í þessum tilgangi sama ár og náði til allra karla og kvenna fæddra 1907-1935 sem bjuggu á stór-Reykjavíkursvæðinu. Alls tóku þátt í rannsókninni tæplega 20 þúsund manns, eða rúmlega 70% þeirra sem boðin var þátttaka. Eftirlifandi hópur, tæplega 6000 einstaklingar, er uppi- staðan í öldrunarrannsókn Hjartaverndar sem framkvæmd var 2002-2011. Niðurstöður úr rannsóknum Hjartaverndar hafa lagt grunninn að þekkingu á helstu áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma á Íslandi og verið undir- staða markvissra forvarna gegn þessum sjúkdómum. öldrunarrannsóknin hefur einnig gefið möguleika á ítarlegum rannsóknum á öðrum langvinnum sjúkdómum meðal aldraðra. Í grein þessari verður einungis farið yfir helstu niðurstöður hjarta- og æðasjúkdóma Reykjavíkur- og öldrunarrann- sóknarinnar frá upphafi. Ágrip Undirritun samnings Hjartaverndar og Öldrunarstofnunar bandarísku heilbrigðis- stofnunarinnar vegna Öldrunarrannsóknar Hjartaverndar fór fram árið 2001. Undir samninginn skrifuðu Gunnar Sigurðsson, Vilmundur Guðnason og Richard Hodes, forstöðumaður Öldrunarstofnunar Bandaríkjanna, að viðstöddum Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra. Fyrsta framkvæmdastjórn Hjartaverndar (myndin tekin árið 1965). Talið frá vinstri: Óskar Jónsson framkvæmdastjóri, Davíð Davíðsson prófessor, Sigurður Samúelsson formaður, Eggert Kristjánsson aðalræðismaður og Pétur Benediktsson bankastjóri.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.