Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.09.2014, Page 26

Læknablaðið - 01.09.2014, Page 26
458 LÆKNAblaðið 2014/100 S a G a l æ k n i S F R æ ð i n n a R samkomulag um að hefja Öldrunarrannsókn Hjartaverndar, eða Age, Gene/Environment Susceptibility-Reykjavík Study, sem hlaut skammstöfunina AGES Reykjavik Study. Upphafsupphæð rannsóknarfjármagnsins var um 20 milljónir dollara, eða um tveir milljarðar íslenskra króna. Framkvæmdastjórn var sett yfir Öldrunarrannsóknina og í henni áttu sæti fulltrúar frá Hjartavernd og NIA. Vilmundur Guðnason varð formaður en auk hans sátu af Íslands hálfu Gunnar Sigurðsson, Guðný Eiríksdóttir, Guðmundur Þorgeirsson, Pálmi V. Jónsson og Ólafur Kjartansson. Af hálfu NIH sátu Tamara B. Harris, Lenore J. Launer, Howard Hoffman og Mary Frances Cotch. Öldrunarrannsóknin hófst í febrúar 2002 en þá hafði Hjarta- vernd orðið að flytja í stærra húsnæði þar sem myndgreining var orðin meiriháttar þáttur í rannsókninni. Hjartavernd flutti í Holtasmára 1 í Kópavog og fjölgaði starfsmönnum úr 20 í um það bil 90.6 Segulómtæki, fjögurra sneiða tölvusneiðmyndatæki og óm- skoðunartæki voru meðal nýrra tækja sem sett voru inn. Hjarta- vernd setti upp fyrstu stafrænu myndgreiningadeildina á Íslandi ásamt aðstöðu og útbúnaði til ítarlegrar úrvinnslu á myndunum. Gífurleg vinna fór í að undirbúa Öldrunarrannsóknina og voru sérfræðihópar stofnaðir um hverja þá svipgerð sem rannsökuð var. Sérfræðihóparnir samanstóðu af íslenskum og erlendum vís- indamönnum sem ákváðu þá vinnuferla sem síðar voru notaðir. Undantekningarlaust var reynt að hafa aðferðirnar staðlaðar og sambærilegar við það sem gert hafði verið annars staðar þannig að hægt yrði að bera saman niðurstöðurnar síðar meir. Allar mælingar Öldrunarrannsóknarinnar voru framkvæmdar á sér- hverjum þátttakanda. Þannig fékkst mikið magn af upplýsingum um hin ýmsu líffærakerfi einstaklinganna sem gerir rannsóknir á samspili þeirra mögulega. Innköllun fyrsta áfangans hófst í febrúar 2002 og stóð yfir til ársins 2006. Rannsakaðir voru 5764 eftirlifandi þátttakendur úr Reykjavíkurrannsókninni. Megináhersla var lögð á hjarta- og æða- kerfi, heila- og taugakerfi, vöðva- og stoðkerfi og efnaskiptakerfi. Árið 2007 hófst annar áfangi þessarar rannsóknar og stóð hann til ársins 2011. Þá voru skoðaðir 3411 einstaklingar þar sem megin- áhersla var lögð á að beita myndgreiningu til að fá endurteknar mælingar og þá um leið hugmyndir um þróun sjúkdóma yfir tímabil. Innlend og erlend samvinna Hjartavernd hefur verið í samvinnu við fjölmarga aðila á Íslandi og má þar nefna samstarfsaðila innan Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Landspítala. Einnig tímabundið við fyrirtæki eins og Íslenska erfðagreiningu, Mentis Cura og Risk Medical Soulu- tions, svo nokkur séu nefnd. Hjartavernd var og er í samvinnu við fjölmarga erlenda aðila. Auk NIA hefur Hjartavernd samvinnu við tugi rannsóknahópa í háskólum og stofnunum í Bandaríkjunum, Evrópu, Ástralíu og Asíu. Einnig er samvinna við ýmis erlend fyrirtæki stór og smá. Samvinnan byggir með einum eða öðrum hætti á nýtingu gagna úr rannsóknum Hjartaverndar, fyrst og fremst Reykjavík- urrannsókninni og Öldrunarrannsókninni. Á síðustu árum hefur Hjartavernd átt þátt í að stofna tvo alþjóðlega vinnuhópa í faralds- fræði og erfðafaraldsfræði. Einn fjölþjóðlegur samstarfshópur nefnist Emerging Risk Factors Collaboration, skammstafað ERFC. Þar hafa 125 framskyggnar hóprannsóknir í faraldsfræði hjarta- og æðasjúkdóma með samtals um tvær milljónir þátttakenda samein- ast í frekari úrvinnslu á þekktum áhættuþáttum hjarta- og æða- sjúkdóma jafnframt því sem nýir áhættuþættir hafa verið kannað- ir.7 Fjölmargar vísindagreinar hafa birst vegna þessarar samvinnu í þekktustu vísindatímaritum heims, aðallega varðandi blóðfitur, sykursýki og bólgur.8-15 Hjartavernd var einnig frumaðili árið 2009 að stofnun alþjóðlegs vinnuhóps um erfðafaraldsfræðirannsóknir á flóknum sjúkdómum, Cohorts for Heart and Aging Research in Genomic Epidemiology, skammstafað CHARGE. Þar leiða saman hesta sína 5 framskyggnar rannsóknir í hjarta- og æðasjúkdómum, Öldrunarrannsókn Hjartaverndar, Framingham-rannsóknin, At- herosclerosis Risk in Communities-rannsóknin (ARIC), Cardio- vascular Health Study (CHS) og Rotterdam-rannsóknin.16 Þessi samvinna hefur leitt til fjölmargra uppgötvana á sviði erfðafræði og hafa niðurstöðurnar birst í virtum tímaritum. Frá stofnun Hjartaverndar hefur verið rekin rannsóknarstofa í klínískri lífefnafræði. Fljótlega eftir opnun tók Hjartavernd í notkun fyrsta sjálfvirka efnamælinn á Íslandi. Fyrri myndin er frá þeim tíma, á henni eru Linda Wendel og Edda Emilsdóttir meinatæknar. Seinni myndin sýnir nútíma sjálfvirkan efnamæli og Kristín Bjarnadóttir lífeinda- fræðingur stendur við hann. Rannsóknarstofustarfsemin er þríþætt; rekstur lífsýnasafns, erfðafræðirannsóknir og klínískar lífefnafræðirannsóknir. Klínísk lífefnafræðistofa Hjarta- verndar fékk árið 2005, fyrst slíkra rannsóknarstofa á Íslandi, faggildingu á ákveðnar mælingar í samræmi við staðalinn ISO 15189:2003. 1970 2012

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.