Fréttatíminn - 06.02.2015, Síða 4
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
V- og SV- Stormur með Snjókomu eða
krapa VeStantil. kólnar í bili.
HöfuðborgarSVæðið: Rigning, en síðaR
kRapi og él og hiti um fRostmaRk.
ÁkVeðin SV-Átt og Hlýnar aftur Á landinu.
Snjóar framan af V-landS.
HöfuðborgarSVæðið: lítilsháttaR slydda
um moRguninn og síðaR suddi.
SV-Stormur um V-Vert landið og þítt Á
lÁglendi, en Síður Á fjallVegum.
HöfuðborgarSVæðið: smá Rigning
eða suddi og milt.
Óvenjulegar hitasveiflur
Eftir stuttan kafla með hörkufrosti í viku-
byrjun, hlýnaði hastarlega með loftstraum-
um sunnan úr höfum og hiti í gær fór í um
15 stig austanlands. Í dag kólnar hins vegar
um stund og snjóar a.m.k. á fjallvegum.
Hlýnar síðan aftur á morgun með látum
og áfram á sunnudag þar til
kaldara loft úr vestri ræðst
aftur til atlögu á mánudag.
Það er eins og landið sé víg-
völlur loftmassanna sem
berjast um yfirráðin. Og
á meðan ríkja stormar á
milli suðurs og vesturs.
1
0 4
5
2
3
2 0
-1
3
5
3 2
5
5
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
vikan sem var
Herðubreið
hækkar
Herðubreið hækkar um
fjóra metra í nýrri hæðar-
mælingu Loftmynda. Þetta
fallega fjall er skráð 1682
metrar hjá Landmælingum
en er 1686 samkvæmt
nýju mælingunni.
Eiga von á stúlku
Katrín Middlet on her togaynja og Vil
hjálm ur Bretaprins eiga von á stúlku
með vorinu. Það er breska slúður-
blaðið OK sem greinir frá þessu. Giskað
er á að stúlkan verði nefnd Díana.
Vigdís brotin
Vigdís Hauksdóttir alþingismaður
handleggsbrotnaði á ferð sinni um
Grænland í vikunni. Hún
var send í einangrun
við komuna aftur til
Íslands og fer í aðgerð
í dag, föstudag.
35.000.000
króna þarf
Reykja-
víkurborg að
punga út í
breytingar á
Útvarpshús-
inu til að
það henti
starfsemi
þjónustu-
miðstöðvar
Laugardals, Háaleits og Bústaða.
Reykjavíkurborg hefur leigt efstu
hæðir Útvarpshússins til næstu 15 ára.
Leigukostnaður þjónustumiðstöðvar-
innar eykst úr þremur milljónum í 4,9
milljónir.
Hlutu bókmenntaverðlaunin
Íslensku bókmenntaverðlaunin voru
afhent á Bessastöðum. Ófeigur
Sigurðsson hlaut verðlaunin í flokki
fagurbókmennta fyrir skáldsöguna
Öræfi. Bryndís Björgvinsdóttir hlaut
verðlaunin í flokki barna og
unglingabóka fyrir Hafn-
firðingabrandarann og
Snorri Baldursson
í flokki fræðibóka
og rita almenns
efnis fyrir
Lífríki Ís-
lands.
v ið viljum sjá Borgarholtsskóla taka aftur af skarið, líkt og þegar hann bauð fyrstur upp á kynjafræði
sem val, og vera öðrum skólum fordæmi
með því að gera kynjafræðina að skyldu-
áfanga,“ segir Silja Ástudóttir, formaður
Veru – femínistafélags Borgarholtsskóla.
Borgarholtsskóli var fyrsti skólinn til að
bjóða upp á kynjafræðiáfanga sem valfag
í framhaldsskóla á Íslandi og hafa margir
framhaldsskólar fylgt í spor skólans og
býður nú á annan tug framhaldsskóla upp
á kynjafræði sem val.
Femínistafélag skólans sendi í vikunni
ályktun til skólayfirvalda þar sem hvatt er
til þess að kynjafræðin verði þar skyldu-
fag: „Í framhaldsskóla er fólk að byrja að
verða sjálfstætt, mynda sér sínar eigin
skoðanir og viðmið. Það er einlæg trú
okkar að með kynjafræðslu sé hægt
að gera fólk meðvitaðra og gagn-
rýnna í hugsun auk þess að gefa þeim
bráðnauðsynlegt veganesti í lífið,“
segir þar.
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir hóf að
kenna kynjafræði við Borgarholtsskóla
árið 2007 og þróaði hún námskeiðið sjálf.
Hún hefur síðan unnið að því að
kynjafræði verði skyldufag við
skólann en talað fyrir daufum
eyrum skólayfirvalda. „Ég
hef fengið þau viðbrögð að
það sé ekki pláss fyrir
kynjafræði sem skyldu-
fag og að það sé verið að fjalla um femín-
isma í ýmsum öðrum fögum. Ég er hins
vegar ekki að kenna fræðilegan femínisma
heldur er þetta jafnréttisfræðsla,“ segir
hún. Hanna Björg var með tíma í kynja-
fræði í gær, fimmtudag, og segir hún að
í þeim tíma hafi hún til að mynda spurt
hversu margir hafi orðið fyrir kynferðis-
legri áreitni og að allar stelpurnar hafi rétt
upp hönd. „Þær sögðu við mig: „Hanna,
þetta er bara orðið eðlilegt.“ Kynjafræðin
snýst ekki um að undirbúa þessa krakka
fyrir háskólanám heldur til að undirbúa
þau fyrir lífið,“ segir hún.
Femínistafélag Borgarholtsskóla var
stofnað fyrir ári í kjölfar þess að margir
framhaldsskólar stofnuðu femínistafélög.
Á svipuðum tíma var Samband femínista-
félaga framhaldsskólanna (SFF) stofnað
og sendi SFF frá sér ályktun í apríl 2014,
í samstarfi við Kvenréttindafélag Íslands,
þar sem skorað var á skólayfirvöld að gera
kynjafræði að skylduáfanga í grunn- og
framhaldsskólum landsins. SFF og Kven-
réttindafélag Íslands bentu á að bæði í
nýrri aðalnámskrá og jafnréttislögum er
gert ráð fyrir jafnréttiskennslu á öllum
skólastigum.
Í gær áttu ungmenni í ungmennaráðum
UNICEF og Barnaheilla fund með velferð-
arnefnd Alþingis og fóru fram á að börn og
ungmenni væru höfð með í ráðum þegar
Alþingi setur lög varðar þau. Þau lögðu
meðal annars áherslu á að kennsla í grunn-
skólum væri hagnýtari og sögðust vilja
fá að læra kynjafræði, stjórmálafræði og
fjámálalæsi til að skilja betur umheiminn.
Þau bætast því í hóp þeirra ungmenna sem
vilja fá meiri kynjafræðikennslu í skóla.
erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Í tímanum
spurði hún
hversu
margir hafi
orðið fyrir
kynferðislegri
áreitni og allar
stelpurnar
réttu
upp
hönd.
skólamál Femínistar sendu hvatningu til skólayFirvalda
Vilja að kynjafræði verði
skyldufag í skólanum
Femínistafélag Borgarholtsskóla hefur sent ályktun á skólayfirvöld þar sem hvatt er til þess að
kynjafræði verði skyldufag. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir hefur kennt kynjafræði við skólann frá
árinu 2007 en Borgarholtsskóli var þá fyrsti framhaldsskólinn til að bjóða upp á kynjafræði sem
valfag. Ungmenni í ungmennaráðum UNICEF og Barnaheilla óskuðu eftir því við velferðarnefnd
Alþingis að þau fái kynjafræðikennslu í grunnskóla.
mt.
Hanna Björg Vilhjálms-
dóttir kennir kynjafræði
við Borgarholtsskóla og
er frumkvöðull þegar
kemur að kynjafræði-
kennslu í framhaldsskólum.
Mynd úr einkasafni
Félagar í Femínistafélagi Borgarholtsskóla telja að með kynjafræðslu sé hægt að gera ungt fólk meðvitaðra og gagnrýnna í
hugsun auk þess að gefa þeim bráðnauðsynlegt veganesti í lífið. Ljósmynd/Hari
4 fréttir Helgin 1.3. október 20106.8. febrúa 5