Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.02.2015, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 06.02.2015, Blaðsíða 8
Havartí er einn þekktasti ostur Dana en hér á landi hófst framleiðsla á honum á Höfn í Hornarfirði árið 1987. Ostinum var upphaflega gefið nafnið Jöklaostur en því var breytt. Havartí varð til um miðja 19. öld hjá hinni frægu dönsku ostagerðarkonu, Hanne Nielsen. Havartí er mildur, ljúfur og eilítið smjörkenndur ostur sem verður skarpari með aldrinum og er með vott af heslihnetubragði. Frábær ostur með fordrykknum eða á desertbakka með mjúkum döðlum og eplum. HAVARTÍ FJÖLHÆFUR www.odalsostar.is Í porti á milli Holtsgötu og Sólvallagötu í Vesturbæ Reykjavíkur stendur hlað- ið steinhús sem upphaflega var byggt árið 1883. „Það er mjög líklegt að byggð hafi verið hér á þessum hól frá því allavega á fjórtándu öld,“ segir Lísbet Guðmundsdóttir hjá Fornleifa- stofnun Íslands sem er yfir uppgreftrinum. Uppgröftur hófst á þriðjudag í síðustu viku og mun standa yfir út febrúar- mánuð. „Til eru heimildir frá árinu 1367 þar sem talað er um þennan bæ, Stóra-Sel, sem upphaflega var sel frá bænum Vík.“ Komin niður á eldri mannvirki Minjavernd á steinhúsið, sem er friðað, og hyggst gera það upp í sinni upprunalegu mynd. „Áður en farið er í svona fram- kvæmdir þarf alltaf að fara fram fornleifarannsókn til að skera úr um hvort fornleifar leynist undir húsinu,“ segir Lísbet en uppgröfturinn hófst á þriðjudag í síðustu viku og mun standa yfir út febrúar-  Fornminjar LÍsbet Guðmundsdóttir stjórnar uppGreFtri við HoLtsGötu Fornleifar í steinhúsi í Vesturbænum Hópur fornleifa- fræðinga leitar nú fornminja í gömlu stein- húsi við Holts- götu í Vesturbæ Reykjavíkur. Nú þegar hefur hópurinn fundið torfvegg frá 19. öld en til eru heimildir um byggð á svæðinu frá árinu 1367. Lísbet Guðmunds- dóttir fornleifa- fræðingur segir alltaf jafn gaman að komast að einhverju nýju um sögu borgarinnar. Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands segir það sérstaka tilfinningu að grafa upp fornar minjar inni í húsi sem stendur á bílaplani umvafið nýjum blokkum. Gamla steinhúsið við Holtsgötu 41 er frá árinu 1883 en bærinn, Stóra-Sel, sem var upphaflega sel frá bænum Vík, kemur fyrst fram í heimildum frá árinu 1367. Ljósmyndir/Hari mánuð. „Við byrjuðum á því að tæma upp úr grunninum og að hreinsa upp úr gömlum grjóthlöðnum kjallara sem er samtíma steinhúsinu. Núna erum við að vinna í burst- unum undir húsinu og þar erum við komin niður í eldra mannvirki. Þetta er allt mjög brotakennt eins og er en við erum búin að finna torfvegg svo við höfum fengið stað- festingu á því að á þessum hól stóð torfbær. Við vissum að það væru mannvirki á svæð- inu en ekki að þau væru hér beint undir bænum. Við erum enn í nítjándu aldar minjum en við eigum eftir að fara aðeins dýpra niður til að athuga hvort ennþá eldri minjar séu undir þessum,“ segir Lísbet. Skemmtileg vinna „Það er alveg nýtt fyrir mér að grafa innan í húsi og það er líka sérstakt að vera svona umkringdur nýjum blokkum,“ segir Lísbet sem er þó vön því að vinna við uppgröft í þétt- býli. „Það er töluvert um uppgrefti í miðbænum. Nú síðast vorum við að grafa við Vesturgötuna þar sem Gröndalshúsið stóð, en það verður fært yfir í Grjóta- þorpið. Þetta er ótrúlega skemmtileg vinna og alltaf er jafn gaman að komast að einhverju nýju um sögu borgarinnar.“ Halla Harðardóttir halla@frettatimi.is Bandaríkjamenn greiddu 19,2 milljarða króna með kortum sínum hér á landi árið 2014. Ljós- mynd/Getty  Ferðaþjónusta GreiðsLukortanotkun erLendra Ferðamanna Kortavelta Bandaríkjamanna langmest allra Bandaríkjamenn eru sú þjóð sem greiðir langmest með greiðslukort- um hér á landi en Bretar koma þar á eftir og svo Þjóðverjar, samkvæmt nýjum heimildum sem Rannsóknar- setur verslunarinnar hefur safnað undanfarin þrjú ár. Bandaríkjamenn greiddu um 34 milljarða á síðustu tveimur árum, 19,2 milljarða árið 2014. Bretar koma þar á eftir en þeir greiddu með kortum sínum hátt í 25 milljarða á síðustu tveimur árum. Í þriðja sæti eru Þjóðverjar sem eyddu um 17,5 milljörðum á síðustu tveimur árum en Noregur fylgir fast á eftir með 17 milljarða króna veltu. Eftirtektarvert er að kortavelta allra norrænu nágrannaþjóðanna til samans er rétt um helmingur þess sem Bandaríkjamenn greiða með kortum sínum. Hótel og gistihús eru sá flokkur ferðaþjónustu sem aflar mestra tekna af erlendum ferðamönnum ef horft er til erlendrar greiðslukortaveltu en íslensk verslun er í öðru sæti. Þar á eftir er sá flokkur ferðaþjónustu sem býður skipulegar ferðir eins og hvala- skoðun, skoðunarferðir, rútuferðir og hverskyns dagsferðir. -hh 8 fréttir Helgin 6.-8. febrúar 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.