Fréttatíminn - 06.02.2015, Page 12
X
Samgöngubætur fyrir hjólandi og gang-
andi vegfarendur í Reykjavík, og raunar á
höfuðborgarsvæðinu öllu, eru mikilsverðar.
Reiðhjól eru góð samgöngutæki, einkum
þegar bærilega viðrar. Vandaðir hjóla- og
göngustígar auka öryggi vegfarenda. Ein-
hver mesta samgöngubót síðari ára var þegar
göngu- og hjólreiðabrúin yfir Kringlumýrar-
braut var tekin í gagnið. Þá opnaðist göngu-
og hjólreiðafólki leið í gegnum allt höfuð-
borgarsvæðið frá vestri til
austurs. Fleiri slík mannvirki
hafa bæst við síðan, göngu- og
hjólreiðabrú yfir Hringbraut
við Njarðargötu og önnur yfir
Miklubraut til móts við Rauða-
gerði. Nú stendur yfir bygging
göngu- og hjólreiðabrúar yfir
Breiðholtsbraut við Norðlinga-
holt sem tengir saman göngu-
og hjólaleiðir í Selási og Norð-
lingaholti.
Þannig hafa umferðarstór-
fljót höfuðborgarinnar verið brúuð hvert af
öðru, svo notuð sé samlíking Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur, þáverandi borgarstjóra,
þegar göngu- og hjólreiðabrúin yfir Kringlu-
mýrarbraut var tekin í gagnið fyrir nær
tveimur áratugum. „Brúin yfir Kringlumýrar-
braut var langþráð og með henni opnast borg-
arbúum leið vestan af Seltjarnarnesi og upp í
Víðidal í gegnum okkar bestu útivistarsvæði
þar sem þeir þurfa hvergi að fara yfir um-
ferðargötu. Íbúar í Fossvogi sem hafa búið í
næsta nágrenni við Nauthólsvíkina og Öskju-
hlíðina, án þess að fá notið þess, fá nú beinan
og greiðan aðgang að þessum svæðum og
íbúar vestan Kringlumýrarbrautar komast nú
loksins fótgangandi inn í Fossvogsdal. Breið-
hyltingar fá örugga hjólabraut alla leið vestur
í Háskóla og þeim fjölda fatlaðra og aldraðra,
sem býr í næsta nágrenni Kringlumýrar-
brautar, opnast nýir möguleikar til útivistar.
Spá mín er sú að útivist og hjólreiðar í borg-
inni muni aukast til muna með þessu eina
mannvirki og það mun þannig hafa veruleg
áhrif á lífsstíl margra borgarbúa,“ sagði Ingi-
björg Sólrún þá. Þau orð hafa ræst.
Meinloka núverandi borgaryfirvalda, mitt
í ágætum framkvæmdum í þágu hjólandi
og gangandi vegfarenda, er hins vegar sú
að samhliða þurfi að þrengja að þeim sem
nota bíl sem samgöngutæki, sem á raunar
við þorra íbúanna. Frægar af endemum voru
framkvæmdir á Hofsvallagötu og þrengingar
Borgartúns, þeirrar miklu umferðaræðar,
tefja umferð þar á álagstímum, með aukinni
mengun og öðrum ókostum sem slíku fylgir.
Nú eru uppi hugmyndir hjá meirihluta borg-
arstjórnar að þrengja Grensásveg. „Reglan er
sú, segir Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi
og formaður umhverfis- og skipulagsráðs
borgarinnar, „að það þurfi ekki fjórar akrein-
ar nema umferðin sé komin yfir tuttugu þús-
und bíla á sólarhring. Umferðarspár til næstu
áratuga segja að bílaumferðin á Grensásvegi
muni aldrei ná því marki.“ Áætlað er að kosta
til rúmlega 200 milljónum króna vegna þess-
ara breytinga.
Nær væri að nýta þá fjármuni í gerð hjóla-
og göngustíga sem ekki eru beinlínis gerðir
með það að markmiði að tefja bílaumferð,
þ.e. fjandsamlegar aðgerðir gagnvart þorra
vegfarenda. Fulltrúar minnihlutans í borgar-
stjórn lögðu raunar fram tillögu þess efnis að
gerður verði hjólreiðastígur austan Grensás-
vegar, nægilega breiður fyrir hjólaumferð í
báðar áttir og rými aukið á milli bílaumferðar
og gangandi vegfarenda með því að mjókka
miðeyju og færa eystri akreinar vegarins til
vesturs sem því nemur.
Jónas Kristjánsson ritstjóri lýsti á vef
sínum aðgerðum formanns umhverfis- og
skipulagsráðs með þessum orðum: „„Reglan
er sú …“, segir Hjálmar Sveinsson. Já, the
computer says no. Skipulag borgarinnar
byggist á órum úr trúarritum nokkurra
skipulagskennara. Ekki á neinum vísindum.
Engin rök eru fyrir að verja 200 milljónum til
að þrengja Grensásveg eins og Borgartún og
Hofsvallagötu. Eru þó ekki innifalin fuglabúr
fyrir næturgala, sem reynt var að setja upp í
Hofsvallagötu. Slegið er fram bulli um aukið
umferðaröryggi, sem styðst ekki við neinar
tölur um skort á öryggi. Málið er einfaldlega,
að valdshyggjumaður leikur lausum hala.
Hyggst með illu þvinga kjósendur í borginni
úr bílum í strætó eða helzt á reiðhjól.“
Borgarstjóri þarf að koma í veg fyrir þetta
offors liðsmanns síns.
Meinloka í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur
Fjandskapur gagnvart bílaumferð
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Höskuldur
Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@
frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Láu hjartað ráða
Svalandi engiferdrykkur
alveg eir mínu höfði
enda er engifer í miklu
uppáhaldi. Drykkurinn
er gerður úr fyrsta flokks
lífrænu hráefni, meira
að seg ja vatnið hefur
lífræna vottun.
Fermingarblað
Fermingarblað Fréttatímans kemur út
6.mars næstkomandi.
Hað samband við auglýsingadeild Fréttatímans í síma
531 3300 eða á auglysingar@frettatiminn.is og við nnum
með þér réttu lausnina.
12 viðhorf Helgin 6.-8. febrúar 2015