Fréttatíminn - 06.02.2015, Qupperneq 18
Ferskt Pasta tilbúið á
örFáum mínútum
Ég fékk hræðileg viðbrögð þegar ég sagði tussuduft, segir María Guðmundsdóttir.
Mynd/Hari
Það er ekki
allt fyndið
Það kannast margir við Maríu Guðmundsdóttur. Hún hefur sést
á skjánum í þáttum eins og Steindanum okkar, Fóstbræðrum
og Hreinum Skildi. Færri vita það þó að hún skrifar leikrit í frí-
stundum og segist vera sjúk í námskeið í öllu sem tengist leiklist
og leikhúsum. Hún byrjaði að leika þegar hún hætti að vinna,
sextíu ára gömul, en hún stendur á áttræðu í dag. María sér
samt eftir því að hafa ekki byrjað fyrr.
É g hætti að vinna þegar ég var sex-tug og byrjaði þá að leika,“ segir
María Guðmundsdóttir
sem hafði unnið alla tíð
sem hjúkrunarfræðingur.
„Í ár verð ég áttræð svo
þetta eru tuttugu ár sem
ég hef verið að leika mér
í þessu. Ég hafði verið
að skrifa allskonar fyrir
fötluðu börnin á Reykja-
lundi þar sem ég vann. Lét
þau stofna hljómsveit og
allskonar skemmtilegt.
Svo byrjaði þetta með því
að ég fór í Leikfélag Mos-
fellsbæjar,“ segir María.
„Ég hef skrifað talsvert
fyrir leikfélagið, bæði leik-
rit, sketsaþætti og slíkt.
Svo fór ég á námskeið í
vetur í Listaháskólanum
með barnabarni mínu í
skapandi skrifum,“ segir
María, en barnabarn henn-
ar er Agnes Wild, leikkona
og leikstjóri. „Ég hef voða
gaman af skrifum og hef
gert töluvert af því. Við
ákváðum svo að drífa okk-
ur á námskeið í uppistandi
hjá Þorsteini Guðmunds-
syni leikara. Ég þekki
Þorstein aðeins því ég hef
leikið með honum, og svo
er gaman fyrir barna-
barnið að vera aðeins með
ömmu,“ segir María. „Ég
hafði voða gaman af þessu
en ég mundi aldrei vilja
vera einhver uppistandari
en þetta hjálpar manni
við skriftirnar, maður
fær hugmyndir og slíkt.“
María kláraði námskeiðið
í vikunni og þurfti að flytja
uppistand fyrir fullum sal í
Þjóðleikhúskjallaranum.
Um hvað talar áttræð
kona í uppistandi?
„Ég tala um það hvað ég
er ómannglögg, en ég er
ekki dónaleg í mínu uppi-
standi,“ segir María. „Alls-
konar aðstæður sem ég
hef lent í. Það er eiginlega
verst hvað þetta er stuttur
tími því ég kem ekki öllu
18 viðtal Helgin 6.-8. febrúar 2015