Fréttatíminn - 06.02.2015, Page 44
44 heimili Helgin 6.-8. febrúar 2015
Þ að er ævintýri líkast að ganga hring í versluninni og minnir helst á að vera á ferðalagi í
gegnum hin ýmsu lönd heimsins.
Litir, ilmir og tónar skapa þessa
góðu stemningu sem flæðir um
verslanirnar. Edda Arndal, versl-
unarstjóri Pier á Korputorgi, seg-
ir að Pier sé verslun sem komi á
óvart. „Við leggjum áherslu á ein-
staka hluti og reynum þannig að
koma í veg fyrir að allir eigi sama
hlutinn. Það á að vera skemmtileg
upplifun að koma til okkar.“ Tónlist
gerir einnig mikið fyrir upplifun
viðskiptavina. „Við spilum svokall-
aða Putumayo World Music í versl-
unum okkar, en þetta er tónlist frá
öllum heimshornum, og hún er að
sjálfsögðu fáanleg á geisladiskum
hjá okkur,“ segir Edda.
Litrík húsgögn og fjölbreytt
smávara
Fyrsta Pier verslunin var opnuð
árið 2007 og þá var megin áhersla
lögð á smávöru, en nú eru húsgögn
stór hluti af vöruúrvalinu. „Við höf-
um verið að taka inn rómantískar,
öðruvísi húsgagnalínur. Íslendingar
eru búnir að vera of fastir í beinum
línum og svörtu og hvítu. Við hjá
Pier viljum því lífga upp á húsgagna-
flóruna með fleiri litum og róman-
tískum línum,“ segir Edda, en litrík-
ir og áhugaverðir stólar hafa slegið í
gegn hjá viðskiptavinum Pier.
Í versluninni er meðal annars að
finna ríkulegt úrval af búsáhöldum,
myndum, klukkum, gerviblómum,
snyrtivörum, kertum, gardínum,
loftljósum, lömpum og fjöldann
allan af húsgögnum. „Það ætti því
að vera lítið mál að finna eitthvað
hér til að poppa upp heimilið,“ segir
Edda. Pier býður einnig upp á lands-
ins mesta úrval af púðum í öllum
regnbogans litum. Vörurnar koma
frá ýmsum heimshornum og það
sem Pier gerir best er að færa heim-
inn nær viðskiptavinum sínum.
Aðgengileg vefverslun
The Pier opnaði nýlega glæsilega
vefsíðu þar sem hægt er að gera
góð kaup. „Við fundum fyrir áhuga
á landsbyggðinni og vildum því
gera vefsíðuna okkar sem aðgengi-
legasta. Ef það eru einhver tilboð
í gangi í versluninni þá gilda þau
einnig í vefversluninni,“ segir Edda.
Vefsíðan nýtist einnig þeim sem
vilja kynna sér vöruúrvalið áður
en verslunin er heimsótt. „Það er
kostur að geta innréttað í huganum
og kynnt sér litaflóruna áður en í
verslunina er komið.“
Samfélagsleg ábyrgð skiptir
máli
Starfsfólk Pier er meðvitað um um-
hverfið. „Við hjá Pier tökum þátt í
að vernda umhverfið, meðal annars
með því að endurvinna allan pappa
og umbúðir sem við fáum í búðina.
Einnig sendum við kerti á Sólheima
í Grímsnesi þar sem þau eru brædd
og endurnýtt og margt, margt
fleira. Að auki viljum við stuðla að
betri heimi með því að gefa af okkur
í góðgerðarstarfsemi,“ segir Edda,
sem hvetur alla til að koma í heim-
sókn í Pier, tölta einn hring og berja
litadýrðina augum.
Unnið í samstarfi við
the Pier
The Pier færir heiminn nær þér
The Pier er skemmtilega
öðruvísi húsgagna- og gjafa-
vöruverslun. Þrjár verslanir
eru starfræktar á Íslandi; á
Smáratorgi, Korputorgi og
Glerártorgi á Akureyri.
S vokallað washi l ímband hefur notið mikilla vinsælla upp á síðkastið þegar
kemur að því að lífga
upp á heimilið. Washi
límbandið er japönsk
uppfinning, wa þýðir
japanskt og shi þýðir
pappír. Áferðin minn-
ir helst á málningar-
límband og því hentar
það vel sem alls konar
veggjaskraut því auðvelt
er að ná því af.
Washi límbandið er alla
jafna búið til úr náttúru-
legum trefjum, svo sem
bambus eða hampi, eða
úr berki japanskra trjáa.
Límböndin eru fáanleg í
alls konar munstrum og litum og
eru tilvalin í barnaherbergið eða
stofuna. Geómetrísk
munstur koma einkar
vel út með washi lím-
bandinu og það er einn-
ig sniðugt að nota það til
að ramma inn myndir
sem hengdar eru upp
á vegg. Jafnvel er hægt
að líma allan heiminn
upp á vegg, en það þarf
líklega svolitla þolin-
mæði til þess. Það þarf
alls ekki að vera flókið
verk að skreyta heimil-
ið með washi límbandi.
Það er um að gera að
leyfa ímyndunaraflinu
að ráða för.
Washi límband
lífgar upp á heimilið
M argir setja sér það mark-mið á nýju ári að vera skipulagðari. Þeir allra
skipulögðustu halda því fram
að litir hjálpi heilmikið til við að
halda í við skipulagið. Hér má líta
á skemmtilegt DIY (do it yourself)
verkefni sem kemur skipulaginu
í lag.
Litríkt
dagatal
kemur
skipulag-
inu í lag
Dagatal úr litaSpjölDuM
fyrir Málningaprufur eða
poSt-it MiðuM:
Í verkið þarf:
n Myndaramma
n Töflutúss
n Litaspjöld fyrir málningarprufur
eða post-it miða í litatónum að eigin
vali.
Litaspjöldunum eða post-it miðunum
er raðað í rammann, bakið sett
á og svo er hægt að skrá viðburði
mánaðarins skipulega á rammann.
Þegar nýr mánuður rennur upp er
einfaldlega hægt að stroka út liðinn
mánuð og byrja upp á nýtt.
Edda Arndal, verslunarstjóri the Pier á Korputorgi. Ljósmyndir/Hari