Fréttatíminn - 06.02.2015, Síða 56
56 matur & vín Helgin 6.-8. febrúar 2015
Manhattan
45 ml cocchi rauður vermút
45 ml Bulleit Rye
1 barskeið Maraschino
2 döss Angostura bitter
„Manhattan var fyrst gerður upp
úr 1870 og hann er einn þeirra
kokteila sem heita eftir borgar-
hlutunum fimm í New York. Í
upprunalegu uppskriftinni er
notast við 2 hluta Rye-viskí á móti
1 hlut af rauðum vermút en ég
geri hér mína útgáfu af Man-
hattan. Mér finnst best að hafa
þetta í jöfnum hlutföllum. Ég nota
Marachino líkjör en í uppruna-
legu uppskriftinni er Maraschino
cherry. Svo nota ég olíuna úr
berkinum á appelsínunni. Lyktin
af appelsínunni spilar líka inn í
þetta. Þetta er drykkur sem mér
finnst að barþjónar eigi að kunna
að gera vel.“
Tipperary
45 ml Bushmills Black Bush
30 ml Antica formula
15 ml Grænn Chartreuse
2 döss Angustura bitter
„Ég fékk þennan kokteil á Attaboy
í New York, sem er alveg geggjað-
ur staður. Ég varð fyrir hughrifum
en mundi ekkert eftir kokteilnum
fyrr en löngu seinna þegar ég sá
myndband af einhverjum gaur að
gera hann. Tipperary er frá því í
byrjun tuttugustu aldarinnar og í
honum er notað írskt viskí sem er
þríeimað og mun mildara en það
skoska. Þessi vermút er töluvert
öflugri en sá sem við notuðum í
Manhattan-inn. Og svo er þarna
grænt Chartreuse sem margir
muna eflaust eftir, það er með 130
tegundir af kryddjurtum og er eitt
af fáu sterku áfengi sem eldist vel í
flöskunni.“
Þrjár kynslóðir
af kokteilum
Þegar kemur að kokteilum kemst enginn með tærnar þar
sem Ási á Slippbarnum hefur hælana. Ási hefur um árabil
unnið á börum hér á landi og í Kaupmannahöfn og getur
bæði reitt fram sígilda kokteila sem og það nýjasta nýtt.
Við fengum hann til að sökkva sér í sagnfræðirannsóknir
og grafa upp einn sígildan kokteil, nútíma útgáfu af honum
og svo býr hann til eigin útgáfu af nútímaútgáfunni. Valið
á kokteilunum að þessu sinni mótast af því að Ási er að
undirbúa Reykjavík Bar Summit sem haldið verður síðar
í mánuðinum en þá koma hingað barþjónar af þekktustu
börum í heimi. Ljósmyndir/Hari
LAGERSALA
Allt að 80%
afsláttur
Fann fljótlega
mun á meltingunni
Bio-Kult Original er fáanlegt í
öllum apótekum, heilsuverslunum
og heilsuhillum stórmarkaða.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.icecare.isÉ g veit það af reynslunni að mjög margir þjást af melt-ingarvandamálum. Það eru
ýmsar tegundir mjólkursýrugerla
á markaði sem lifa magasýrurnar
ekki af og ná því ekki að virka sem
skyldi. Í mínum störfum hef ég
prófað margar tegundir af mjólk-
ursýrugerlum og finn að Bio-Kult
gerlarnir henta mér best,“ segir
Margrét.
Áður fyrr var Margrét mjög við-
kvæm fyrir ýmsum fæðutegundum
og fann oft til óþæginda eftir mál-
tíðir. „Oft leið mér eins og ég væri
með þyngsli í maganum. Eftir að
ég byrjaði að taka Bio-Kult gerl-
ana inn hef ég fundið mestan mun
á líðaninni í smáþörmunum því ég
var mjög viðkvæm í þeim áður. Ég
tek inn fjögur hylki á dag og finnst
henta best að taka þau með mat.
Venjulegur skammtur er tvö hylki
en mér finnst betra að taka auka-
lega. Ég er sérlega ánægð með Bio-
Kult gerlana því að þeir hafa hjálp-
að mér og meltingin hefur lagast til
mikilla muna.“
Margrét Kaldalóns hefur tekið Bio-Kult gerlana inn í nokkra
mánuði og fann fljótlega mjög mikinn mun á meltingunni. Hún
hefur starfað í heilsugeiranum í 30 ár og því kynnst mörgum
tegundum fæðubótarefna og mjólkursýrugerla.
Bio-Kult Original er einstök og öflug
blanda af 14 mismunandi vinveittum
gerlum sem geta komið sér fyrir í
þörmum meltingarvegar og hafa
einstaklega góð áhrif á meltinguna.
Ekki þarf að geyma hylkin í kæli. Þau
er óhætt að nota að staðaldri og
henta vel fyrir fólk með mjólkur- og
soya óþol.
Margrét Kaldalóns fann oft til óþæginda í meltingu eftir máltíðir en líður mun betur eftir að hún byrjaði að taka inn Bio-
Kult Original hylkin.
Barþjónakeppni Barþjónar leika listir sínar um helgina
Blaut helgi í Reykjavík
Hin árlega Reykjavík Cocktail
Weekend fer fram um helgina.
Hátíðin, sem Barþjónaklúbbur Ís-
lands stendur fyrir í samstarfi við
helstu veitinga- og skemmtistaði
borgarinnar, hófst á miðvikudag
og lýkur á sunnudaginn með úr-
slitakeppni í Íslandsmóti barþjóna
og keppni milli veitingastaða í kok-
teilgerð í Gamla bíói.
Það var árið 1963 sem að Bar-
þjónaklúbbur Íslands var stofnaður
en árið á eftir hóf klúbburinn að
etja saman barþjónum landsins í
kokteilgerð og hefur vinningshafi
ávallt hlotið nafnbótina Íslands-
meistari barþjóna og keppt fyrir
Íslands hönd á heimsmeistaramóti
barþjóna.
A l l ir helstu umboðsaðilar
áfengra drykkja verða með kynn-
ingu á sínum vörum á meðan á
keppni stendur og von er á góðri
stemningu í kringum viðburð-
ina. Samstarfsaðilar Reykjavík
Cocktail Weekend munu bjóða upp
á sérstakan kokteilseðil sem sam-
anstendur af 5 kokteilum á tilboðs-
verði dagana 4.-8. febrúar til klukk-
an 23 öll kvöldin og því um að gera
að taka göngutúr um miðbæinn og
skilja bílinn eftir því fjöldi góðra
drykkja verður á boðstólum.
Einnig býður Barþjónaklúbbur-
inn upp á svokallað „Master Class“
á Center Hotel Plaza á morgun,
laugardaginn 7. febrúar, milli
klukkan 14 og 19, en þar býðst
gestum að smakka nokkrar teg-
undir af viskíi, koníaki og rommi
ásamt því að njóta fróðleiks frá
þeim sem best til þekkja frá hverju
umboði fyrir sig.
Fyrirlestrar verða í boði á þess-
um tíma og mun fjölbreytileikinn
ráða þar ríkjum, þar sem að erlend-
ir gestafyrirlesarar koma og fræða
um vínheiminn.
Allar nánari upplýsingar um há-
tíðina má finna undir Reykjavik
Cocktail Weekend á Facebook. -hf
Barþjónar borgarinnar verða í sviðsljósinu um helgina. Ljósmynd/veitingageirinn.is