Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.2001, Qupperneq 6

Ægir - 01.01.2001, Qupperneq 6
6 P I S T I L L M Á N A Ð A R I N S Um síðastliðin áramót seldi Fiskifé- lagsútgáfan ehf. útgáfuréttinn að Ægi og Sjómannaalmanaki. Kaupandi var Athygli ehf. en það fyrirtæki hefur gefið Ægi út í verktöku fyrir Fiskifé- lagsútgáfuna undanfarin ár. Lesendur munu því væntanlega ekki sjá miklar breytingar á Ægi við þessi tímamót umfram það sem hefði hvort eð er orð- ið. Það er að sjálfsögðu með blendnum huga sem stjórn Fiskifélags Íslands ákvað að selja útgáfuréttinn á Ægi. Ægir er virðulegt og gamalt blað og eina tímaritið um málefni íslensks sjávarútvegs sem kemur reglulega út. Ægir skipar tvímælalaust forystu þeirra blaða sem fjalla um fagleg mál- efni sjávarútvegsins og er greininni því afar mikilvægt. Ægir hefur aukin heldur verið málgagn félagsins og vettvangur til þess að koma skoðunum þess á framfæri. Tímarnir breytast hins vegar. Starf- semi félagsins hefur breyst. Fiskifélag- ið er nú fyrst og fremst sameiginlegur samstarfs- og samráðsvettvangur greinarinnar allrar. Starfsemin hefur dregist saman eftir að umfangsmikil hagsýsluverkefni fyrir hið opinbera fóru til annarra aðila. Eftir það var hæpinn grundvöllur fyrir félagið að standa í útgáfu af þessu tagi. Um þetta var algjör samstaða í stjórn Fiskifélags- ins. En Ægir heldur áfram að koma út og þjóna íslenskum sjávarútvegi. Fiskifélagið og aðildarfélög þess hafa, eins og aðrir í greininni, góðan aðgang að Ægi og blaðið mun því hér eftir sem hingað til vera vettvangur skoð- anaskipta og fróðleiks um hvað eina er skiptir sjávarútveg máli. Áhugamenn um sjávarútveg eru hvattir til þess að sinna blaðinu með því að senda því efni um sín hugðarefni. Fiskifélagið og Fiskifélagsútgáfan óska nýjum eigendum Ægis til ham- ingju með blaðið og væntir góðs sam- starfs á komandi árum við að efla og bæta ímynd íslensks sjávarútvegs. Ægir í nýjum höndum Pistil janúarmánaðar skrifar Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri Fiskifélags Íslands 94. árgangur 1. tölublað janúar 2001 Verð í lausasölu kr. 600ISSN 0001-9038 T Í M A R I T U M S J Á V A R Ú T V E G „Sjávarútvegurinn hefurekki verið í tísku“- segir Elfar Aðalsteinsson, nýr forstjóriHraðfrystihúss Eskifjarðar Bjartsýniá afurðamörkuðum- þróun í útflutningi sjávarafurðaí fyrra jákvæðari en spáð var Að reikna hrogn í þorska • Fiskeldi og sjávarhiti • Gjörbreyttur Faxi RE 9 i l l i , j ii i j

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.