Ægir - 01.01.2001, Side 18
18
E R L E N T
Einn af virtustu fiskifræðingum
Norðmanna býst við litlum
þorskkvóta í Barentshafi næstu
árin. Åsmund Bjordal, sem
stjórnar rannsóknum hjá norsku
Hafrannsóknastofnuninni, segir í
blaðinu World Fishing að nýlegar
rannsóknir gefi til kynna að lítið
sé af stærri þorski, yfir 7 ára og
eldri, í Barentshafinu. Talsvert er
af þriggja til sex ára þorski og
mikið af loðnu, sem er æti
þorsksins. Hins vegar er mjög lít-
ið af eins til tveggja ára þorski.
Bjordal segir þorskkvótann í
Barentshafinu nú þegar mjög lít-
inn og útlit sé fyrir enn frekari
skerðingu næstu árin. Hann vonar
þó að það litla sem fyrir hendi er
af smáfiski muni dafna vel vegna
þess hve mikið er af loðnu. Stýr-
ing veiða úr loðnustofninum mið-
ar að því að tryggja þorskinum
nóg æti. Bjorndal tekur þó fram
að svæðið hafi ekki verið rannsak-
að nóg til að fyrir liggi skýr mynd
af ástandinu.
Rússar hafa ekki leyft þorsk-
veiðar í Barentshafi í fjögur ár og
enda þótt norska Hafrannsókna-
stofnunin hafi góða samvinnu við
rannsóknastofnunina í Murmansk
fást minni upplýsingar þaðan
vegna fjárskorts stofnunarinnar.
Eldri þorskárgangar veikir
í Barentshafi
Fiskinum pakk-
að úti á sjó
Dansk Fiskeri Tidende greina frá
því að fleiri og fleiri veiðiskip
pakki fiskinum um borð til þess
að hann sé tilbúinn til uppboðs
þegar við löndun. Skipin landa
ekki endilega í heimahöfn held-
ur þar sem best verð fæst fyrir
fiskinn.
Vandinn er sá að við hafnirn-
ar eru notaðir ólíkir kassar og
þess vegna aka vörubílar fram og
aftur milli hafna, lestaðir tómum
kössum, og útgerðin verður að
borga brúsann.
Fiskiskip
knúin dísil- og
rafmagnsvélum
Undanfarið hafa fleiri og fleiri
gerðir skipa verið búin bæði
dísil- og rafmagnsvélum og ekki
er ólíklegt að svo verði einnig
um fiskiskip í náinni framtíð.
Hagkvæmnin er þó umdeilanleg
og margt bendir til að hún sé
ekki hin sama, t.d. fyrir línu-
veiðara og togara.
Augljós vinningur er að ekki
þarf að hætta í miðri veiðiferð
og fara í land vegna bilunar í að-
alvél. Stundum gætu vélstjórar
jafnvel gert við bilun án þess að
það hindraði veiðar.
Siemens í Noregi hefur undan-
farin ár gert tilraunir á þessu
sviði, sem teljast lofa góðu.