Ægir - 01.01.2001, Side 26
26
F Ó L K Í S J Á V A R Ú T V E G I
Nú um áramótin tók Elfar Aðal-
steinsson við starfi forstjóra Hrað-
frystihúss Eskifjarðar af föður sín-
um, Aðalsteini Jónssyni, sem hefur
verið stjórnandi fyrirtækisins allt
frá árinu 1960. Á þeim fjörutíu
árum sem Aðalsteinn hefur verið í
brúnni hefur Hraðfrystihús Eski-
fjarðar verið eitt af stærstu og helst
leiðandi sjávarútvegsfyrirtækjum
landsins og er skráð á Verðbréfa-
þingi Íslands.
Fyrirtækið á og gerir út sex fiskiskip, rekur mjöl- og
lýsisvinnslu, rækjuvinnslu og frystihús. Á síðastliðnu
ári störfuðu um 250 manns hjá fyrirtækinu og heild-
arvelta var liðlega þrír milljarðar króna. Það er því
mikið og ögrandi starf sem bíður Elfars, sem nú
stendur á þrítugu.
Er að kynna mér stöðu mála
„Ég hef frá því ég kom hingað til starfa um áramótin
verið að kynna mér stöðu mála í fyrirtækinu og á
grundvelli þess móta stefnuna og vinna í skipulags-
breytingum. Það eru næg verkefni framundan,“ segir
Elfar Aðalsteinsson, sem vill þó fara varlega í allar yf-
irlýsingar um hvað gera skuli á næstunni. - En eitt af
þeim atriðum í rekstri Hraðfrystihúss Eskifjarðar sem
staldrað er við eru uppsagnir fyrirtækisins á skipverj-
um á Hólmanesinu SU-1, en nú hefur skipinu verið
lagt og það sett á söluskrá. Meginástæða þess er, að
sögn Elfars, samhæfing veiða og vinnslu fyrirtækis-
ins, miðað við aflaheimildir. Þá hefur allt starfsfólk
verið tímabundið tekið af launaskrá í rækjuvinnslu
Sjávarútvegurinn hefur
ekki verið í tísku
að undanförnu
- segir Elfar Aðalsteinsson, nýr forstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar, sem hefur fulla trú á
að brátt sjáist til betri tíðar