Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 34

Ægir - 01.01.2001, Blaðsíða 34
34 F I S K I R A N N S Ó K N I R Merking einstaklinga er mikil- væg aðferð við rannsóknir á fisk- um, m.a. þegar svara þarf spurn- ingum um hvort samgangur sé milli einstakra stofna eða stofn- eininga. Árið 1997 hófu útibú Hafrannsóknastofnunar í Ólafsvík og á Ísafirði rannsóknir á líffræði skarkola vestan Íslands, með áherslu á merkingar til að skil- greina útbreiðslu og far kolans. Oft er skarkoli álitinn fremur staðbundinn þ.e. að mestu bund- inn við sömu svæðin allt lífið. Svo er þó ekki, því fyrri merkingatil- raunir sýna að skarkoli syndir oft langar leiðir milli hafsvæða (Aðal- steinn Sigurðsson, 1989). Slíkar ferðir tengjast gjarnan ákveðnum lífsskeiðum kolans, eins og göng- ur frá uppeldissvæðum á slóðir fullorðinna, eða árstíðum eins og göngur til og frá hrygningarsvæð- um. Merkingar á Flákakanti Þann 5. apríl 1997 merktum við 700 skarkola með venjulegum slöngumerkjum á vestanverðu hrygningarsvæðinu á Flákakanti í utanverðum Breiðafirði. Tæpu ári seinna, þann 29. mars, merktum Höfundar eru Jón Sólmundsson og Hjalti Karlsson, starfsmenn hjá útibúum Hafrannsókna- stofnunar í Ólafs- vík og á Ísafirði. Fyrri grein Göngur og atferli skarkola í Breiðafirði - göngur frá hrygningar- og uppeldissvæðum Skarkoli (rauðspretta) er flatfiskur sem finnst allt í kringum Ísland, mest á grunnslóð sunnan lands og vestan. Í Breiðafirði eru mikilvægar veiði- slóðir skarkola. Grunnt inn á víkum og fjörðum eru uppeldissvæði, frá þeim gengur skarkoli dýpra út á grunnslóðina og út í köntum finnast hrygningarsvæði. Þessi grein fjallar um göngur skarkola í Breiðafirði, annars vegar kynþroska kola sem hrygnir á vorin á Flákakanti í miðj- um, utanverðum firðinum og hins vegar kola sem heldur sig á grunn- slóð við norðanvert Snæfellsnes á sumrin. 1. mynd. Skarkoli merktur með orange-lituðu slöngumerki og rafeindamerki.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.