Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2001, Blaðsíða 8

Ægir - 01.03.2001, Blaðsíða 8
8 F R É T T I R Verkfall sjómanna skall á þann 15. mars: Frestun með lögum til 1. apríl Verkfall sjómanna hófst þann 15. mars síðastliðinn en meirihluti sjómanna sam- þykkti í atkvæðagreiðslu um síðastliðin áramót að leggja niður störf ef samningar yrðu ekki orðnir að veruleika á þeim tímapunkti. Öll skip yfir 12 tonnum að stærð voru bundin við bryggju vegna verkfallsins en þann 19. mars voru samþykkt lög á Alþingi um frestun verkfallsins til 1. apríl. Þegar verkfall skall á var ljóst að um- talsverður loðnukvóti næðist ekki í tæka tíð og sagði sjávarútvegsráðherra við setningu laganna að þau hefðu það fyrst og fremst að markmiði að tryggja þjóðar- búinu tekjur af loðnuveiðum og vinnslu sem annars glatist. Af viðbrögðum aðila í Karphúsinu kom lagasetning þeim í opna skjöldu, enda aðeins liðinn hálfur fjórði sólarhringur frá því verkfall skall á. Samkvæmt upplýsingum blaðsins munu margar útgerðir tvístígandi hvort yfir höfuð borgi sig að senda skip á sjó enda t.d. margir stærri togaranna í löngum hafnarfríum vegna þess að veiðiferð var í lengra lagi fyrir verkfall. Útgerðir loðnuskipa sendu þau hins vegar strax á sjó og sömuleiðis útgerðir netabáta en nú við upphaf vertíðar er hver dagur dýrmætur í þeirri útgerð. Verðmyndunarmálin ásteitingarsteinn líkt og fyrr Staða samningamálanna var mjög óljós þegar Ægir fór í prentun en allir eru sam- mála um að nokkuð hafi þokað í viðræð- unum á síðustu sólarhringum áður en verkfallinu var frestað með lögum. Fyrst og fremst mun sá árangur snúa að kaup- tryggingu, slysabótum og slíkum þáttum samninga en sem fyrr eru verðmyndunar- málin flóknasta úrlausnarefnið í viðræð- unun. Nasco fær líf á ný Gengið hefur verið frá kaupum heima- manna í Bolungarvík á rækjuvinnslu- fyrirtækinu Nasco og verður rekstur hafinn að nýju þegar hráefni verður tryggt. Verksmiðjan varð gjaldþrota í byrjun desember en væntanlega verður fyrirtækið minna í sniðum í byrjun en var fyrir gjaldþrotið. Hagnaður Samherja hf. nam 726 milljónum króna Samherji hf. var rekinn með 726 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Fyrirtækið skilaði 200 milljóna hagnaði árið 1999 en milli ára jókst veltufé frá rekstri um 20%. Rekstrartekjur Sam- herjasamstæðunnar voru 7.011 milljónir króna á árinu og rekstrargjöld námu 5.599 milljónum. Hagnaður fyrir af- skriftir og fjármagnsliði nam 1.412 mill- jónum króna, samanborið 1.267 mill- jónir árið áður. Afskriftir voru 643 mill- jónir króna á móti 883 milljónum árið 1999. Kínabátar á heimleið með skipi! Níu vertíðarbátar sem smíðaðir voru í Dalian í Kína eru á heimleið með flutningaskipi. Bátarnir eru hannaðir af Skipasýn og munu verða afhentir eigendum sínum sem eru á sjö stöðum á landinu, þ.e. á Patreksfirði, í Reykjavík, á Bíldudal, Hólmavík, í Keflavík, Hafnarfirði og Grindavík. Bátarnir verða til afhendingar í byrjun maímánaðar.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.