Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.2001, Qupperneq 14

Ægir - 01.03.2001, Qupperneq 14
14 S K I P A M Á L N I N G O G H R E I N S I E F N I Ómar Gunnarsson, efnaverkfræð- ingur hjá Sjöfn, segir Sigma málningu hafa reynst geysilega vel við íslenskar aðstæður. Í verð- um sé Sigma-málningin fullkom- lega samkeppnisfær og á mörgum sviðum sé hún í fararbroddi með tæknilega eiginleika. Ómar segir að svokölluð Sigma CM epoxy- málningarlínan skilji Sigma Coat- ings frá öðrum málningarfram- leiðendum. Í þeirri málningu sé bindiefni sem sé sérhannað af Sigma Coatings og því sé öðrum framleiðendum ekki mögulegt að nota það. Ómar bendir á að þetta bindiefni hafi sérstaklega verið hannað til þess meðal annars að koma til móts við kröfur um betri endingu málningarinnar. Þá segir Ómar að þessi Sigma CM máln- ing þoli að málað sé við allt að 95% rakastig eða í allt að tíu gráðu frosti. Sem sagt; við dæmi- gerðar íslenskar aðstæður þar sem stöðugt skiptast á skin og skúrir og menn hafa ekki tíma til þess að bíða eftir betra málningarveðri. Sigma CM málning er þurr- efnarík sem þýðir að hún gefur þéttari málningarfilmu og því öfl- ugri tæringarvörn og slitþol en svokölluð einþátta vínyl- og akrýlmálning. Þá bendir Ómar á að Sigma CM hafi lengri notkun- artíma eftir íblöndun herðis og mun styttri biðtíma á milli um- ferða en flest allar aðrar tegundir tvíþátta epoxymálningar. Sigma-málning í Chile og Kína Í nóvember á síðasta ári var loðnu- skip Samherja hf., Þorsteinn EA, málað úti í Póllandi með Sigma- málningu. Í lestarnar var notuð svokölluð Sigmaguard CSF 75 málning, sem upphaflega var hönnuð til þess að mála drykkjar- vatnstanka og vottuð sem slík. Ómar segir að notagildi þessarar málningar í loðnulestum, þar sem um er að ræða afurðir sem ætlaðar eru til manneldis, sé ótvírætt. Botn Þorsteins EA var málaður með Sigma-botnmálningu, sem kallast Sigmaplane Ecol HA. Þetta er sjálfslípandi málning og án lífrænna tinsambanda. Ómar Gunnarsson segir þessa málningu vera sérhannaða fyrir togskip í köldum sjó og sé hún með öfluga (High Active) sjálfslípingareigin- leika til varnar því að gróður fest- ist á botninum. Sem stendur er verið að smíða tvö stór íslensk fiskiskip þar sem Sigma-málning er notuð. Annars vegar nýjan Hákon ÞH, sem er í smíðum í Chile, og hins vegar nýtt skip, sem verið er að smíða í Kína fyrir Bakka hf. Ómar segir rétt að fram komi að málningin á þessi skip sé ekki flutt alla leið frá Íslandi til viðkomandi skipa- smíðastöðvar erlendis, eins og dæmi séu um hjá öðrum málning- arfyrirtækjum, Sigma sé alþjóð- legt fyrirtæki sem hafi lagera í næsta nágrenni við skipasmíða- stöðvar út um allan heim. Hreinsiefni Í hreinsiefnum hverskonar hefur Sjöfn lengi haft sterka stöðu í sjávarútvegsgeiranum og segir Ásgeir Ívarsson, efnaverkfræðing- ur hjá Sjöfn, að fyrirtækið leggi mikla áherslu á þessar vörur, enda séu nokkrir af stærstu viðskipta- vinum fyrirtækisins í þessum geira. Ásgeir segir að margar af hreinsivörum Sjafnar hafi í gegn- um tíðina verið þróaðar í sam- starfi við sjávarútvegsfyrirtækin. Hann segir hreinsivörur vera í sí- felldri þróun, eldri vörur séu betrumbættar eða þær detta út og nýjar vörur komi inn. Nú séu uppi auknar kröfur í öllum efna- iðnaði um framleiðslu umhverfis- vænna vara. Bæði séu kröfur af hálfu opinberra aðila í þessum efnum stífari en áður og ekki séu neytendur, jafnt einstaklingar sem fyrirtæki, síður meðvitaðir um þessa hluti. „Ég get sagt að núna erum við hjá Sjöfn einmitt að þróa nýja tegund sótthreinsi- efna sem koma til móts við ströngustu umhverfiskröfur,“ seg- ir Ásgeir. Hreinsiefni sem Sjöfn selur sjávarútveginum eru af ýms- um toga, allt eftir því við hvaða aðstæður á að nota þær. Nefna má vörutegundir eins og „Ofur- gamm“, „Fókus“, „Sýrutak“, „Brútus“, „Afvísi“, „Þrif“ og „Alfa Efnaverksmiðjan Sjöfn á Akureyri: Áhersla á Sigma-skipamálningu og hreinsivörur fyrir sjávarútveginn Efnaverksmiðjan Sjöfn hf. á Akureyri er með umboð fyrir skipa- og iðn- aðarmálningu frá hollenska málningarframleiðandanum Sigma Coat- ings, sem er bæði með verksmiðjur í Hollandi og Belgíu. Ómar Gunnarsson Sjafnar og Ásgeir Ívarsson, efnaverkfræðingar hjá Sjöfn. Mynd: Jóhann ólafur Halldórsson

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.