Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.2001, Blaðsíða 36

Ægir - 01.03.2001, Blaðsíða 36
36 U M R Æ Ð A N fiskeldismanna í dag er mikið lagt upp úr ábyrgri afstöðu til um- hverfisins og til neytenda og mik- ilvægt er að nýliðum í greininni sé einnig innrætt þessi sjónarmið. Hólaskóli er eina menntastofn- unin á Íslandi, sem sinnir form- legu námi í fiskeldi. Boðið er upp á eins árs grunnám í fiskeldi, sem mælst hefur vel fyrir meðal fisk- eldismanna. Námið hefur verið aðlagað að breyttum aðstæðum samhliða þeirri þróun, sem orðið hefur í greininni. Nemendur koma að hausti og eru einn vetur við Hólaskóla í bóklegu og verk- legu námi. Því lýkur að vori og þá fara nemendur í verknám í fisk- eldisstöðvar og útskrifast sem fiskeldisfræðingar að hausti. Námið er miðað við það að nem- endur geti tekið að sér rekstur smærri fiskeldisstöðva og verk- stjórn á þeim stærri. Ráðgert er að bjóða innan skamms upp á eins árs framhaldsnám í fiskeldi. Hóla- skóli hefur einnig séð um sí- menntun fyrir fiskeldismenn. Auk þessa hefur Hólaskóli annast framhaldsmenntun háskólanema í fiskeldi í samstarfi við Háskóla Ís- lands. Ráðgert er að auka samstarf við aðra háskóla í framtíðinni. Ástæða er til þess að hvetja fólk til þess að afla sér framhaldsmennt- unar á sviði fiskeldis, því mikil þörf verður fyrir fólk með slíka menntun í framtíðinni bæði með kunnáttu á rekstri og markaðs- málum fiskeldisfyrirtækja og eins þarf að sinna frekari rannsóknum á líffræði fiska og gæðamálum. Lokaorð Óneitanlega eru framundan afar spennandi tímar í íslensku fisk- eldi því hér er að verða til at- vinnugrein, sem gæti orðið ein meginuppistaðan í íslensku at- vinnulífi. Að baki eru erfið ár í ís- lensku fiskeldi. Á því tímabili var samt sem áður aflað mikilvægrar reynslu og kunnáttu sem renna munu stoðum undir framtíðar- uppbyggingu fiskeldis. Menn virðast oft vanmeta mikilvægi þekkingar og reynslu þegar bryddað er upp á nýjungum í at- vinnusköpun. Vöxtur fiskeldis á Íslandi mun byggjast á traustri kunnáttu fiskeldismanna ásamt öflugu rannsókna og þróunarstarfi fiskeldisfyrirtækja og rannsókna- stofnana. Aðrar forsendur fyrir vexti fiskeldis eru að greininni sé skapað heilbrigt starfsumhverfi með lagasetningu og reglugerð- um. Einnig þurfa fiskeldismenn að efla samstarf og samstöðu sín á meðal. Takist allt þetta, horfum við fram á bjarta framtíð fiskeldis á Íslandi. Fiskeldismenn munu verða fyrir fjárhagslegum skaða ef fisk- ar þeirra vaxa ekki vegna mengunar og sjúkdóma eða ef þeir tapa fiski. Því eru fiskeldismenn reiðubúnir til þess að standa að því að settar séu ákveðnar reglur um það hvern- ig standa skuli að fiskeldi og að komið sé á virku eftirliti með fiskeldisstöðvum.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.