Ægir - 01.02.2006, Síða 22
22
K Æ L I N G M A T V Æ L A
Þurrkun með ísogsaðferð
(sorption dehumidifying) er
tækni sem opnar möguleika á
að takmarka bæði hlutfalls-
legan raka og absolut raka
jafnvel við mjög kaldar að-
stæður.
Kostir við þurrkun með ísogs-
aðferð
Hefðbundin loftþurrkun með
kondensþéttingu er góður
valkostur við aðstæður þar
sem hátt hitastig og hátt raka-
stig fara saman en verulegar
takmarkanir við lágt hitastig.
Fari hitastigið niður fyrir
+15°C falla afköst með kond-
ensþéttingu verulega samfara
því að orkunotkun eykst.
Þurrkun með ísogsaðferð
virkar algjörlega án notkunar
á kælifleti og kælimiðli og af-
köstin verða þar með óháð
hitastigi. Þessi eiginleiki þýðir
að hægt er að lækka raka-
innihaldið verulega og jafn-
framt viðhalda svipuðum
þurrkafköstum.
Við ísogsþurrkun er rakinn
fjarlægður úr loftinu með því
að raka loftið sogast inn í
loftþurrkarann og er leitt í
gegnum þurrksnúð (decci-
cant rotor) sem er deilt upp í
tvö svæði sem eru „vinnu-
svæði“ þar sem snúðurinn
tekur upp raka úr loftinu og
„endurnýtingarsvæði“ þar
sem heitt loft fjarlægir rakann
aftur úr snúðnum. Snúðurinn
snýst hægt (um 10 sn/klst) og
framkallar þannig samfallandi
þurrkunarferli. Rakinn sem er
fjarlægður er leiddur burt
með heitu röku lofti, sjá
meðfylgjandi mynd sem sýnir
að hluta tæknina við ísogs-
þurrkun. Þessi tækni er 50
ára gömul og var uppruna-
lega þróuð af Carl Munters,
sænskum uppfinningamanni,
til nota fyrir tækjabúnað hers-
ins. Notkunarmöguleikarnir
eru fjölmargir og hafa gert
Munters að leiðandi fyrirtæki
á ísogsþurrkurum. Fyrirtækið
starfrækir skrifstofur og sölu í
26 löndum og framleiðir sína
þurrksnúða sjálfir.
Sjálf aðferðin við þurrk-
snúðinn er sú sama og upp-
runalega fyrir 50 árum en
veruleg þróun hefur átt sér
stað á ísogsefnum og fram-
leiðsluaðferðum ásamt því að
framleiða þurrksnúða fyrir
sérlausnir.
Dæmigerðir
notkunarmöguleikar
Ísogsþurrkunartæknin er í sí-
auknum mæli notuð til fram-
leiðslu og geymslu á matvæl-
um, lyfjum, hverskonar vör-
um til geymslu, í söfnum,
vopnageymslum, dælustöðv-
um, vatnsaflsvirkjunum, skip-
um, flugvélum og svona
mætti lengi telja. Upphitun er
gjarnan notuð á mörgum
stöðum til að reyna að stýra
og lækka rakastig en oft og
tíðum með slökum árangri og
háum orkureikningi. Upphit-
un í sjálfu sér tryggir ekki
stöðugt rakastig. Hlutfallsleg-
ur raki í upphituðu rými
breytist nefnilega í hlutfalli
við aðstæður utandyra. Sér-
staklega yfir sumarmánuðina
verður loftrakinn það hár að
hætta er á tæringu, sveppa-
gróðri o.fl.
Með því að minnka upp-
hitun, eða slökkva jafnvel al-
gjörlega á henni, og setja upp
ísogsþurrkara í staðinn, er
auðvelt að tryggja lágan og
stýrðan loftraka yfir allt árið
samfara því að orkunotkunin
minnkar - gjarnan allt undir
50% af kostnaði við raf-
magnsupphitun.
Í matvælaframleiðsluiðnaði
er ísogsþurrktæknin annað-
hvort notuð til þess að
þurrka heilu framleiðslurýmin
eða einstaka framleiðsluþætti,
s.s. lausfrysta, spíralfrysta,
húðun, sprayþurrkun og svif-
frystingu (fluid bed freezing).
IceDry þurrkarar fyrir kæli- og
frystirými
Með síauknum kröfum á síð-
ari árum varðandi hreinlæti
og vinnuöryggi hefur þurrk-
un á kæli- og frystiklefum
orðið útbreiddari. Við dyragöt
og önnur op á frystigeymsl-
um safnast gjarnan hrím og
ís, sérstaklega yfir sumarmán-
uðina þegar heitara útiloft
þéttist við að mæta kalda loft-
inu í frystigeymslunni. Einnig
yfir vertíðar þegar umgangur
um klefana eykst, s.s. útskip-
un o.fl. Þessi ís og hrím getur
auðveldlega hindrað eðlilega
opnun og lokun á dyrum,
varan verður hrímuð, eimar
(frystiblásarar) hríma óeðli-
lega mikið, ís og hrím safnast
á gólf klefans með tilheyrandi
hættu fyrir mannskap og
tæki.
Munters hefur þróað sér-
stakan búnað sem hentar við
slíkar aðstæður. Svokölluð
IceDry þurrkaralína er sér-
hönnuð til þess að staðsetja
við innganginn í köldu rými.
Loftið umhverfis innganginn
Hvað er ísogsþurrkun?
aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 22