Ægir - 01.02.2006, Blaðsíða 28
28
H A R Ð F I S K V I N N S L A
„Byggðakvótinn er ekkert nema svindl og
svínarí. Ég er alveg tilbúinn til þess að
taka á móti stjórnmálamönnunum og
skýra þetta út fyrir þeim, ef þeir vita það
ekki sjálfir,“ segir Finnbogi J. Jónasson,
harðfiskverkandi á Ísafirði og fyrrum
trillukarl.
Verkað harðfisk í um aldarfjórðung
Í aldarfjórðung eða svo hefur Finnbogi
verkað harðfisk á Ísafirði. „Já, ætli ég
hafi ekki byrjað um 1980 - á hinni öld-
inni,“ segir Finnbogi og hlær. „Ég gerði
út bát hér áður fyrr, en strákarnir mínir
gera núna út bátinn, Norðurljós ÍS-3, á
krókaaflamark. Kvótinn er náttúrlega
alltof lítill, 120-130 tonn í þorskígildum.
Jú, ef vel ætti að vera þyrfti kvótinn að
vera töluvert meiri. Ég kaupi að hluta til
hráefni af þeim í harðfiskinn, en einnig
kaupi ég fisk hér á markaði,“ segir Finn-
bogi og bætir við að hann hafi alltaf
haldið sig við fornar verkunaraðferðir á
harðfiski og ætli ekki að fara að breyta
þeim þessi síðustu ár sem hann verði í
þessu, enda sé stutt í „úreldingu“ hjá sér.
„Ég hjallaþurrka fiskinn - en flestir þeir
sem eru í harðfiskverkuninni í dag
þurrka fiskinn inni í þurrkofnum. Það
hefur verið vöxtur í ofnþurrkaða fiskin-
um og að sama skapi hefur dregið úr
frameiðslu á hjallaþurrkaða fiskinum, en
ég held mig samt við hann. Það er alltaf
ákveðinn hópur fólks sem vill heldur
hjallaþurrkaða fiskinn og honum vil ég
þjóna,“ segir Finnbogi og bætir við að
hann verki nær eingöngu steinbít og
ýsu. Aðstæður til hjallaþurrkunar á Ísa-
firði segir Finnbogi að séu prýðilegar,
enda loftið þar að jafnaði þurrt.
Harðfiskinn í frysti!
Fiskurinn er látinn hanga uppi í hjöllum
í um mánuð og síðan er hann látinn
jafna sig í húsi í tíu daga eða svo. Það
má því segja að verkunin taki um hálfan
annan mánuð frá því fiskurinn er veidd-
ur og þar til að hann er orðinn söluhæf
vara.
Og eftir að búið er verka fiskinn segir
Finnbogi mikilvægt að setja harðfiskinn í
frost. Þannig haldi hann sínum ferskleika
lengi. „Það er ákaflega mikilvægt að
geyma harðfiskinn í frosti. Hins vegar
sér maður í búðum að fiskinum er oftar
en ekki komið fyrir í hillum víðs fjarri
kæli- eða frystiborðum. Þetta er ekki
nógu gott, enda er það svo að t.d. stein-
bítur sem ekki er kældur eða frystur vill
gulna, en það á hann ekki að gera ef
hann er geymdur í frosti,“ segir Finn-
bogi.
Ísfirski harðfiskurinn í Kolaportinu
Desember og janúar eru alltaf mestu
annamánuðurnir hjá Finnboga. Þorrinn
er að vonum töluverður sölutími, en
raunar segir Finnbogi að þar sem hjalla-
þurrkaði fiskurinn er með roði vilji fyrir-
tækin hann síður í þorrabakkana. Því
verði roðlausi fiskurinn úr þurrkurunum
gjarnan fyrir valinu. Engu að síður er
alltaf mikil sala á þorranum og árið um
kring selur Finnbogi mikið af harðfiski
um helgar í Kolaportinu í Reykjavík und-
ir vörumerkinu „Harðfiskur frá Ísafirði“.
Í það heila segir Finnbogi að hann
verki úr 70-100 tonnum af óslægðum
fiski. Hráefnisverðið hefur verið bærilega
hagstætt síðustu misserin, bæði hefur
ýsan og steinbíturinn verið á fremur lágu
Byggðakvótinn
er hrein svikamylla
– segir harðfiskverkandinn Finnbogi J. Jónasson á Ísafirði
„Ég hjallaþurrka fiskinn - en flestir þeir sem eru í harðfiskverkuninni í dag þurrka fiskinn inni í þurrkofnum. Það er alltaf ákveðinn hópur fólks sem vill heldur hjallaþurrk-
aða fiskinn og honum vil ég þjóna,“ segir Finnbogi. Myndir: Sigríður G. Ásgeirsdóttir/Ísafirði
aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 28