Ægir - 01.02.2006, Qupperneq 31
31
F Ó L K
„Á þessum stutta tíma mínum
hér í sjávarútvegsráðuneytinu
hefur kannski komið mér
mest á óvart hve hagsmuna-
gæsla fyrir hönd Íslands á er-
lendum vettvangi er veigamik-
ill þáttur í starfinu, segir
Björn Friðrik Brynjólfsson, að-
stoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra.
„Íslenskur sjávarútvegur og
fiskvinnsla starfa í dag eftir
lögum sem eru orðin nokkuð
föst í sessi og að því leyti er
starfsumhverfi greinarinnar
nokkuð stöðugt. En á sama
tíma þarf að taka æ meira til-
lit til alþjóðlegra álitaefna,
jafnframt því sem þjóðirnar
hér við norðanvert Atlants-
hafið, Ísland, Færeyjar og
Noregur, eiga með sér marg-
víslegt samstarf. Þessu er
áhugavert að kynnast og fyrir
mér er sjávarútvegurinn heill-
andi heimur,“ segir Björn
Friðrik sem í desember tók
við starfi aðstoðarmanns Ein-
ars K. Guðfinnssonar, sem
varð sjávarútvegsráðherra
undir lok september á síðasta
ári. Björn er 33ja ára að aldri
og stjórnmálafræðingur frá
Háskóla Íslands. Í framhald-
inu bætti hann við sig námi í
hagnýtri fjölmiðlun, sem aftur
leiddi hann til starfa á Ríkis-
útvarpinu.
Sjóræningjastríðið
„Á RÚV byrjaði ég í apríl
1999 og var þar uns ég kom
hingað í ráðuneytið. Fyrst var
ég á Fréttastofu útvarpsins,
þá í morgunútvarpi Rásar 2,
Samfélaginu í nærmynd á Rás
1 og svo að síðustu í íþrótta-
fréttunum. Jú, einu sinni eða
tvisvar greip ég í að sjá um
Auðlindina og síðan rifjaðist
upp fyrir mér um daginn að
fyrsta verkefni mitt fyrir Ríkis-
útvarpið, þegar ég var þar í
starfsþjálfun í háskólanámi,
var að taka viðtal við Arnar
Sigurmundsson, formann
Samtaka fiskvinnslustöðva.
Starfsreynsla mín af fjölmiðl-
um hjálpar mér mikið á þess-
um nýja vettvangi, enda gildir
á báðum stöðum að vera
fljótur að setja sig inn í hlut-
ina“ segir Björn Friðrik.
Í byrjun árs kynnti sjávar-
útvegsráðuneytið fyrirhugað-
ar aðgerðir vegna ólöglegra
karfaveiða suður á Reykjanes-
hrygg. „Þar sögðumst við ætla
að skera upp herör gegn sjó-
ræningjaveiðum. Þegar þetta
orðalag hefur verið viðhaft
hafa víst runnið tvær grímur á
sum börn og það gerðist líka
núna. Við höfðum spurnir af
því að sumum hefði hreint
ekki litist á blikuna að fara að
kljást við sjóræningja og jafn-
vel hefðu börn orðið skelkuð
við tíðindin. Þeir fullorðnu
geta náttúrlega brosað að
þessu, en vissulega segir
þetta manni að fara ber var-
lega í notkun stóryrða.“
Í lunda í Grímsey
Björn Friðrik Brynjólfsson er
Þingeyingur að upplagi, á
rætur sínar í Kelduhverfi.
Unnusta hans er Gunnhildur
Gunnarsdóttir blaðamaður á
Fréttablaðinu, fædd og uppal-
in á Hólmavík. Þar komst
Björn Friðrik í kynni við Ein-
ar Kristin. „Stór hópur fólks,
meðal annars tengdafjöl-
skylda mín, hefur um árabil
veitt lunda í Grímsey á Stein-
grímsfirði eina helgi á sumri.
Þetta eru alveg ómissandi
ferðir og í þeirri fyrstu kynnt-
ist ég Einari. Hann bauð mér
svo í lok nóvember s.l. að
koma til sín í ráðuneytið að
gerast aðstoðarmaður sinn.
Ég þurfti ekki að hugsa mig
um tvisvar heldur tók þessu
góða boði undir eins og sé
svo sannarlega ekki eftir því,
enda er starfið fjölbreytt og
spennandi.“
Viðtal og mynd: Sigurður Bogi Sævarsson.
„Starfið er fjölbreytt og spennandi,“ segir aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra m.a. í viðtalinu.
– segir Björn Friðrik Brynjólfsson aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra
Sjávarútvegurinn
er heillandi heimur
aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 31