Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.2006, Qupperneq 40

Ægir - 01.02.2006, Qupperneq 40
40 F I S K V I N N S L A N „Þetta er vissulega erfitt. En ég held að menn hafi reynt eins og mögulegt er að minnka kostnað og mæta háu gengi krónunnar með þeim hætti. Hráefniskaup eru okkar stærsti liður og við höfum dreg- ið úr kaupum á hráefni til að mæta þessu, sem vissulega þýðir minni atvinnu í landi. Gott verð á afurðum hefur hjálpað okkur, en almennt hefur þetta verið nokkuð þungt fyrir fæti,“ segir Sigurður Viggósson, framkvæmdastjóri Odda hf. á Patreksfirði. Hækkandi afurðaverð hefur hjálpað til Sigurður segir að afurðaverð hafi vissu- lega hjálpað verulega til á síðustu miss- erum í þessu erfiða gengisumhverfi - bæði hafi fengist mjög gott verð fyrir ferskan fisk - svokallaðan flugfisk - og einnig hafi verð á saltfiski í erlendri mynt farið hækkandi á mörkuðum á Spáni, Ítalíu og í Grikklandi, sem eru þeir markaðir sem Oddi framleiðir fyrir. Sem næst helmingur af veltu Odda kem- ur úr saltfiskverkuninni, fjórðungur úr sölu á flugfiski og fjórðungur úr frystum afurðum. Nýja snyrtilínan skilar góðum árangri Síðastliðið haust tók Oddi inn nýja snyrtilínu frá Marel, sem Sigurður segir að hafi fyllilega skilað tilætluðum ár- angri. Einnig hefur fyrirtækið endurnýjað fiskvinnsluvélar og bætt þannig nýtingu hráefnisins og aukið virði þess. „Snyrti- línan hefur tvímælalaust aukið afköst á hvern starfsmann. Starfsfólk fær greiddan hópbónus, en auk þess erum við nú að gera tilraun með aukabónus sem starfs- fólk á snyrtilínunni getur unnið sér inn með því að komast yfir ákveðin lágmörk í afköstum, nýtingu og gæðum. Það mun skýrast á næstu mánuðum hvernig þetta kemur út, en mér sýnist þetta fyrirkomu- lag skila fyrirtækinu ávinningi og starfs- mönnunum á snyrtilínunni betri laun- um,“ segir Sigurður. Vestri í klössun í Danmörku Oddi hefur einnig verið að styrkja hrá- efnisöflun sína. Á síðasta rekstrarári keypti fyrirtækið aflaheimildir fyrir hálf- an milljarð króna og einnig voru fest kaup á stærra skipi, sem er um 200 tonn, og kemur það í stað gamla Vestra, sem var seldur, og ber nafnið Vestri BA-63. Um er að ræða skipið Gretti SH frá Stykkishólmi, sem hefur verið í breyting- um í Esbjerg í Danmörku, þar sem verið er að útbúa það til togveiða Skipt er um aðal- og ljósavél skipsins, settur nýr kjöl- ur á það, skipt um skrúfu og stýri og fleira. Sigurður segir að skipið taki mikl- um breytingum og hann segist mjög ánægður með vinnu Dananna, en skipa- smíðastöðin í Esbjerg bauð lægst í verk- ið. Auk Vestra byggir landvinnsla Odda á hráefni frá línuskipi fyrirtækisins, Núpi BA, auk afla af nokkrum minni bátum á Patreksfirði. Að stórum hluta byggt á erlendu vinnuafli Um fjörutíu manns starfa í landvinnslu Odda á Patreksfirði. Þar af er stór hluti erlendur vinnukraftur, fyrst og fremst Pólverjar sem gera tólf mánaða samning um vinnu, en algengt er að þetta fólk sé 5-6 ár í fiskvinnslu á Íslandi og í sumum tilfellum sest það að á Íslandi. Sigurður segir það staðreynd að erfitt sé að fá Ís- lendinga til þess að starfa í fiski og því sé ekki um annað að ræða en að fá er- lendan vinnukraft. Almennt segir Sigurð- ur að mjög góð reynsla sé af þessu er- lenda fiskvinnslufólki. „Ég held að það sé komið til að vera að fiskvinnslan á Ís- landi þurfi að stórum hluta að byggja rekstur sinn á erlendu vinnuafli. Almennt mun fólki fækka í þessum störfum sam- fari aukinni tækni og jafnframt mun verða unnt að hækka launin í fiskvinnsl- unni.“ Oddi hefur lengi unnið svokallaðan flugfisk og náð þar prýðilegum árangri. Sigurður segist ekki merkja annað en að sá markaður sé vaxandi - bæði í Bret- landi og á meginlandi Evrópu - á kostn- að frystra afurða. Erfitt rekstrarumhverfi - en hefur þó tek- ist að halda sjó Þrátt fyrir verulegar þrengingar í sjávar- útvegi vegna hárrar skráningar á gengi íslensku krónunnar, sem gerir það að verkum að færri krónur fást fyrir útflutta vöru en fyrirtækin þurfa að fá miðað við háa kostnaðarliði innanlands, hefur Odda tekist að halda sjó. Síðustu sjö árin hefur verið hagnaður af rekstri Odda, samkvæmt rekstrarreikningi fyrir síðasta rekstrarár, sem er fiskveiðiárið - frá 1. september til 31. ágúst, var 34 milljóna króna hagnaður af rekstri Odda - um 4,3% af veltu. Eiginfjárstaðan er vel við- unandi - um 370 milljónir króna, eigin- fjárhlutfallið er 27%. Húsnæði Odda hf. á Patreksfirði. Sigurður Viggósson, framkvæmdastjóri Odda hf. á Patreksfirði Þungt fyrir fæti – en ekkert uppgjafarhljóð – spjallað við Sigurð Viggósson, framkvæmdastjóra Odda hf. á Patreksfirði aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 40

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.