Ægir - 01.02.2006, Blaðsíða 44
44
F I S K V I N N S L A N
„Ég myndi ætla að sala á salti
sé um 60% af okkar veltu.
Þegar fyrirtækið var stofnað
árið 1990 vorum við eingöngu
með saltsölu, en hlutur um-
búðasölu hefur aukist veru-
lega síðan,“ segir Jón Rúnar
Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Saltkaupa í Hafnarfirði,
sem er stærsti innflytjandi
salts á Íslandi.
Ársnotkun Íslendinga á
salti er á bilinu 80 til 90 þús-
und tonn - stærstur hluti þess
er til saltfiskframleiðslu, en
hlutur salts til hálkueyðingar
hefur aukist töluvert. „Um
70% af því salti sem við selj-
um hér á landi kemur frá
löndum við Miðjarðarhafið -
Túnis og Spáni, en við flytj-
um einnig inn salt úr Kara-
bíska hafinu. Salt er ekki bara
salt, efnasamsetning þess er
mismunandi og kaupendur
vilja fá það salt sem þeir hafa
góða reynslu af. Sumir hafa
góða reynslu af salti frá t.d.
Bahamaeyjum og vilja fá það
aftur. Við verðum við þeim
óskum,“ segir Jón Rúnar og
bendir á að gott salt sé eitt af
lykilatriðunum í því að verka
góðan saltfisk. „Íslenskir salt-
fiskframleiðendur hafa verið
að auka notkun á salti og
það hefur skilað þeim góðum
árangri. Í samkeppni við
norskan saltfisk stöndum við
Íslendingar til dæmis vel að
vígi hvað varðar gæði,“ segir
Jón Rúnar.
Aðalstarfsstöð Saltkaupa er
í Hafnarfirði, en að auki eru
alltaf saltbirgðir á ýmsum
stöðum við ströndina, s.s. í
Grindavík, á Dalvík, Húsavík,
Höfn, Djúpavogi og Vest-
mannaeyjum. Í það heila
koma um 20 skip á vegum
Saltkaupa með salt til lands-
ins á ári.
Auk saltsölu hér á landi
hefur dótturfyrirtæki Salt-
kaupa í Færeyjum haslað sér
völl á markaði þar og hefur á
skömmum tíma náð mjög
sterkri markaðsstöðu.
Umbúðirnar eru annar af
meginrekstrarþáttum Salt-
kaupa. Fyrirtækið lætur m.a.
framleiða sérmerktar umbúðir
fyrir framleiðendur, en einnig
eru ómerktar umbúðir stór
hluti innflutnings og sölu fyr-
irtækisins. Um er að ræða
umbúðir fyrir frystingu í
landi, sjófrystingu og saltfisk
og ekki má gleyma bláu síld-
artunnunum kunnu. Þá selur
Saltkaup ýmis íblöndunarefni
fyrir t.d. síld og rækju - krydd
o.fl.
Salt og
umbúðir
Nokkrar af þeim sérmerktu umbúðum
sem Saltkaup flytja inn fyrir hérlenda
fiskframleiðendur.
aegirfeb06-56sidurlagad.qxd 3/2/06 10:48 AM Page 44