Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Blaðsíða 35
ÆSKUSTOÐVARNAR KVADDAR
og virti mig fyrir sér. Loksins urðum við þó að minnast á brottförina. Ég
sagði, að ég hefði þegar leigt okkur íbúð og keypt nokkur húsgögn, við yrðum
að selja öll okkar húsgögn hér, en bæta öðrum við þegar við værum flutt.
Móðir mín féllst á það og sagði að næstum allur farangurinn væri tilbúinn,
húsgögnin væri ekki þægilegt að flytja, nokkur hefðu þegar verið seld, en
erfiðara væri að innheimta andvirðið.
„Þú hvílir þig einn eða tvo daga og heimsækir kunningjana, síðan getum
við farið,“ sagði móðir mín. „Já“ sagði ég.
„Og hann Run Tu, í hvert einasta skipti sem hann kemur hingað minnist
hann á þig. Hann langar alltaf mikið til að hitta þig. Ég sagði honum hvenær
væri á þér von, ef til vill kemur hann líka.“
Eins og leiftri skaut einstæðri mynd upp í huga mínum: Fullur silfraður
máni undir dökkbláum himni, neðra sendin strönd og úthafið, eins langt og
séð varð gat að líta iðgrænar melónur. Mitt á meðal þeirra stendur ellefu til
tólf ára gamall drengur með silfurfesti um hálsinn, tvíhendir járnsting og
ætlar að reka hann af öllu afli gegn zha,1 dýrið bregður hratt við og skýtur
sér burt á milli fóta drengsins. Þessi drengur er Run Tu. Þegar ég þekkti hann
var hann aðeins rúmlega tíu ára gamall. Það eru liðin nærri 20 ár síðan; faðir
minn var enn á lífi og heimilisástæður góðar. Ég var reglulegur dekurkrakki.
Þetta ár var komið að okkur að annast fórnfæringarnar. Slíkt bar aðeins einu
sinni að höndum á 30 ára fresti, svo að það hvíldi mikil alvara og hátíðleiki
yfir þessu. I vormánuðinum2 voru forfeðralíkneskjunum veittar fórnir.
Fórnargripir voru margir, fórnarkerin mjög dýrmæt og fórnfærendur áttu
margar komur. Nauðsynlegt var því að vera á verði gegn þjófnaði. Við höfð-
um aðeins einn heimilisþjón, og aðeins um annatímann. Hann var sjálfur
önnum kafinn, svo að hann spurði föður minn, hvort hann mætti ekki senda
son sinn ungan í sinn stað til að gæta fórnarkeranna. Hann hét Run Tu. Faðir
minn féllst á það. Ég varð fjarska glaður, því ég hafði þegar fyrir löngu heyrt
þetta nafn Run Tu; auk þess var hann á aldur við mig. Hann var fæddur í 13.
mánuði ársins, innskotsmánuðinum; en í þeim mánuði skortir frumefnið jörð,
svo að hann hlaut nafnið Run Tu.3
1 Enginn veit um hvaða dýr er hér raunverulega að ræða en það mun vera eitthvað
svipað hundi. — 2 Fyrsti mánuður ársins eftir kínversku tímatali; hefst venjulega í febrú-
ar. — 3 Samkvæmt kínversku tímatali hefur árið 12 30 og 29 daga mánuði. Arið verður því
of stutt. Með vissum fresti er skotið inn 13. mánuðinum, svo að tímatalið raskast ekki.
Slíkur mánuður er kallaður run-mánuður og árið run-ár. Run Tu er fæddur í run-mánuði
25