Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Blaðsíða 85

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Blaðsíða 85
UMSAGNIR UM BÆKUR hefst hetjusaga hennar og hins einarða al- þýðumálsvara og forgöngumanns í sjálf- stæðisbaráttunni. Frú Theodora var af heilum hug kona hins nýja tíma, en henni var áhugamál að þjóðin héldi tengslum við sem mest af því bezta úr menningararfinum — og það virð- ist eiginlega aðalorsök þess að hún gjörist rithöfundur og ljóðskáld þótt ekki væri nema í ígripum. Nú er bilið milli gamla og nýja tímans orðið miklu meira og fer ótt vaxandi eins og hver maður sér og því hef- ur aldrei verið meiri þörf en nú þeirra verka sem átt geta þátt í að aftra því að slitnar verði þær rætur sem íslenzk þjóðareinkenni eru sprottin af. Ritsafn frú Theodoru kem- ur út á réttum tíma. Bjarni Einarsson. Jakobína Sigurðardóttir: Kvæði Heimskringla, Reykjavík 1960. Lítil stúlka, sem elzt upp í einu af nyrztu og afskekktustu byggðarlögum lands- ins, svo norðlægu og afskekktu, að liinn yf- irþyrmandi nútími dæmir það vægðarlaust í auðn, hún hefur þá vafasömu áráttu að krota með blýanti á notað umslag eða á þau blöð, sem falla til af dagvitanum, sitthvað af því, sem henni hefur dottið í hug yfir daginn. Henni hefur sem sé dottið ýmislegt í hug. Hún er eitthvað undarleg krakkinn, hún gleymir sér stundum alveg, kannski þegar verst gegnir. Hún sækir að læknum eins og vankaður gemlingur, ekki til að hösvast í honum með vasl og stíflugerð eins og hinir krakkamir, hún situr bara dolfallin og hlustar, svo er hún ófyrirgefanlega lengi að sækja kýmar. -— Já hún er eitthvað öðru- vísi en aðrir krakkar, anginn litli, en maður vonast nú til að þetta rætist af henni. Víst var hún öðruvísi gerð en önnur börn. Ef til vill fagnaði hún innilegar, kannski grét hún sárar, en það sem skar úr og eng- inn vissi í fyrstu nema hún sjálf: hún gat orðað tilfinningar sínar og það sem undar- legra var: henni fannst hún þurfa að gera það. Stundum, jafnvel oftast, kom það bara af sjálfu sér, og það kom líka af sjálfu sér í því formi sem henni þótti vænst um: í formi ljóðsins, því formi, sem eitt er sjálfsagt um alla tíma hinni ungu gleði, hinni ungu sorg, hinni fyrstu ást. Og svo komst allt upp einn góðan veðurdag: Er ekki krakkamaðkurinn farinn að yrkja! Hvernig lízt ykkur á? Maður byrjar á því að yrkja fyrir sjálfan sig. Síðan er manni þrýst fyrir afl atvikanna, út í þá storma samtíðarinnar, sem blása úr ýmsum áttum og allt í einu er ekki lengur tóm til þess að setja saman í huga sér til gamans, lítið kvæði um fyrsta fífilinn í varpanum, eða hina feimnu ást, sem skrökv- ar því að manni í sakleysi sínu að hún vari til eilífðar. Skyldur eru öllum á herðar lagðar, skyld- ur við land og þjóð, skyldur við ættboga og umhverfi og ennfremur skyldur við það skásta, sem í sjálfum býr. Það kveður á um gildi mannkindarinnar hvemig það tekst að rækja þessar skyldur, innan þess þrönga hrings, sem hverjum og einum er markaður í rúmi og tíma. Ég ætla að Jakobína Sigurðardóttir hafi engri skyldu brugðizt. Saga hennar liggur fyrir í ljóðum hennar og þó ef til vill öllu meir á bak við þau. Sú saga er án yfirdreps, ])ví hún er ekki sett á svið, en hún skín í gegnum verk hennar. Engan veginn er hún sársaukalaus. Við vitum að sumar hinar hversdagsleg- ustu skyldur eru jafnframt hinar kröfu- hörðustu. Þær neyða okkur endalaust til fráhvarfs frá því, sem okkur langaði til að gera. Flest göngum við með þá sára tilfinn- ingu að minna hafi orðið úr okkur en efni stóðu til. Æjá, við hefðum komizt alla leið, 75
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.