Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Page 75

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Page 75
ÁGREININGSEFNI SIGURÐAR NORDALS OG EINARS KVARANS lætur sér nægja að benda á, en velur ekki sjálfur. I upphafi athugunar sinnar á lífs- skoðun Einars Kvarans segir Sigurð- ur Nordal að boðskap þann sem síð- ari bækur hans flytji megi fela í einu orði: fyrirgefning. í svari sínu gerir Einar Kvaran gagnrýnina á fyrirgefn- ingarboðskapnum að aðalatriði út af fyrir sig og ver meginhluta greinar sinnar til varnar og gagnsóknar á þeim grundvelli. En þar hallar hann mjög réttu máli, því ádeila Sigurðar Nordals beinist alls ekki að fyrirgefn- ingarboðskapnum sem sjálfstæðu fyr- irbæri heldur að þeirri heildarskoð- un sem hin einhliða fyrirgefningar- boðun er hluti af, enda segir hann beinlínis: „Það skiptir því mestu, á hvaða undirstöðu þessi boðskapur er reistur í sögum E. H. Kv.“ Sigurður Nordal leiðir í ljós þessa undirstöðu, þessa almennu afstöðu, sem fyrirgefningarboðskapurinn er þáttur af, með tilvísun í niðurlagið á Marjas, hina siðferðilegu ályktun sög- unnar sem fóstrunni er lögð í munn. Hún er í stuttu máli sú að mannlegt líf er hégómi og fánýti frá hinu æðsta og algilda sjónarmiði eilífðarinnar eða dauðans. Gegn þessari afstöðu beinir Sigurður Nordal ádeilu sinni af mestum þunga, hún er það megin- atriði í lífsskoðun Einars Kvarans sem er fyrsta orsök gagnrýni hans. Sinni afstöðu lýsir hann aftur þann- ig: tímarit máls oc menningar ... En nóg eru dœmi hins, að menn hafa spillt lífi sínu og starfi með því að lyfta sér upp á eitthvert sjónarmið ofar öllum skýjum. En þó að garð- holan, sem hverjum manni er trúað fyrir að rœkta, sé ekki nema lítill part- ur bœjarins, bœrinn lítill partur lands- ins, landið hnattarins, hnötturinn sól- kerfisins o. s. frv., þá er skylda vor að rœkta hana, a. m. k. meðan kraftar vorir ná ekki lengra. Mér finnst sögumaðurinn í Marj- as hefði getað svarað fóstru sinni eitthvað á þessa leið: „Eg veit ekki, hvort meira er. Það getur verið. En eg finn það. Sjónhringur minn. er svo miklu víðari nú en þá, að skýflókinn, sem hylur allan himininn fyrir mér nú, hlýtur að vera stœrri en hinn. Þú átt auðvitað við, að til sé annar enn stcerri sjónliringur, svo óendardega miklu stœrri, að sjónhringur bernsku og œsku verði báðir jafn-dvergvaxnir í samanburði við hann. Því neita eg ekki. En sá sjónhringur er ekki minn, og heldur ekki þinn, svo að við getum ekki haft hann til samanburðar. [ . .] Ef eg reyndi nú á fullorðinsárunum að skrópa frá alvöru lífsins með því að gera allt að barnaleik, bera það saman við eitthvert œðra stig, sem eg í raun réttri hef enga hugmynd um, þá vœri eg enginn maður ...“ (Bls. 28—29). Og í annarri grein sinni dregur hann saman gagnrýni sína í þessum orðum: „Eg sýni síðan fram á, að auk 65 5

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.