Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Side 76

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1961, Side 76
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR mannúðar og hygginda styðji hann [: Einar Kvaran] umburðarlyndi sitt ýmist með því að dreifa allri ábyrgð og gera hana marklausa, eða með því að kenna, að allt lífið sé barnaleikur og hégómi.“ (Bls. 64). Á þessari undirstöðu er gagnrýni Sigurðar Nordals reist: Þeim sem lifa eftir æðra-sj ónarhóls-kenningunni hættir til að verða ófærir um að heyja það „návígi við veruleikann“ sem Sigurður Nordal talar um í annarri bók, og er upphaf mannlegs þroska, — vegna þess að þeir vilja ekki „lifa þessu jarðlífi af heilum huga“ (hls. 65), og fyrirgefning þeirra er þvi ekki heldur mikils virði vegna þess að gott og illt er einnig ómark. Einkennilegt má virðast að Einar Kvaran eyðir minnstum hluta svar- greinar sinnar (Kristur eða Þór) til að andmæla þessu atriði í gagnrýni Sigurðar Nordals. Svar hans við því er að vísu ákjósanlega skýrt, en það er aðeins innskot sem höfundur biður lesendur að afsaka: „Áður en eg sný mér að fullu að ágreiningnum út af lífsskoðunum, ætla eg að láta mér nægja að benda á, hvernig „krítíkin á íslandi“, öðru nafni Sigurður Nor- dal, fer með þrjú atriði úr sögum mínum.“ (Þ. á m. atriðið úr Marjas). Ég veit ekki hvort rétt er að draga þá ályktun af þessu að Einari Kvaran hafi ekki verið ljóst, hvert var aðal- atriði gagnrýni Sigurðar Nordals. Það má allt eins vera að hann hafi ekki kært sig um að rökræða það, og flýtt sér að velja sér hentugri vett- vang. Hann kærir sig ekki um að leggja sig í neina hættu á þeim velli sem Sigurður Nordal hefur haslað, eri skýtur sér bakvið varnarvegg sem hann gerir ekki ráð fyrir að andstæð- ingurinn áræði að sækja á. Sá varn- arveggur er sjálfur kristindómurinn, eða réttara sagt sjálf „trú mannkyns- ins“: Ef eg liejði jundið þetta upp [hé- góma hins jarðneska lífs gagnvart „æðra sjónarmiði“], þá vœri eg mest- ur spámaður mannkynsins. Eg get ekki eignað mér þá sœmd. Því að ekki mun fjarri sanni að segja, að þetla sé aðalkjarninn í öllum hinum háleilari trúarbrögðum veraldarinnar. [.. .] Það hejur verið trú mannkynsins, að vér komumst sjálfir á það tilverustig, að vér lítum á það, sem fyrir oss hef- ur komið, allt öðrum augum en hér í heimi. í þessu hefur verið fólgin aðal- huggun og aðalstyrkur mannanna öld fram af öld. [...] Hugsunin í um- mœlum fóstrunnar í niðurlagi sög- unnar Marjas er óumflýjanleg af- leiðing af trúnni á guð — eins og hún hefur myndazt í hinum kristna heimi. [...] S. N. heldur, að þessi hugsun sé skaðleg, hún geri öll hin háleitu skylduboð trúarbragðanna að öfgum, og mark lífsins verði samkvœmt henni að láta það líðasem þægilegast. Hann um það. Eg œtla mér ekki í þessari grein að taka að mér vörn fyrir guðs- 66

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.