Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Síða 6
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
áhuga og enga þekkingu höfðu á íslenzkum aðstæðum. Á þessum grundvelli
reis öll stjórnmálabarátta hans sem fólst í því að krefjast af festu og æ meiri
þunga að þjóðréttindi íslands hin fornu væru viðurkennd og að íslendingar
fengju sjálfsforræði í málefnum sínum, að stofnanir landsins yrðu reistar við
eða fluttar aftur inn í landið, að íslendingar fengju aftur löggjafarvald, dóms-
vald, framkvæmdarvald og verzlun í sínar hendur. Og árangurinn af þessari
stefnu varð deginum ljósari, með sjálfsforræðinu lifnaði við hagur lands-
manna, með hverri stofnun sem fluttist heim styrktist þjóðfélagið. Islendingar,
sem eftir sjö alda erlend yfirráð lifðu við bágbornustu kjör, réttu urtdarlega
fljótt við aftur er þeir tóku við stjórn mála sinna, og upphófst síðan nýtt
blómaskeið í sögu þjóðarinnar sem vér könnumst við frá þessari öld. Allt er
þetta að rekja til forystu Jóns Sigurðssonar. Stefna hans í sjálfstæðisbarátt-
unni fyrir innlendri stjórn hefur sannað gildi sitt í einu og öllu, og fram á
þennan dag hefur enginn íslendingur vogað sér að bera brigður á þá stefnu.
Kóróna hennar í stjórnmálalegum skilningi var endureisn lýðveldisins 1944
og menningarleg kóróna á afrek hans verður heimkoma handritanna.
Þannig stendur mynd Jóns Sigurðssonar skýr og sterk: hann varð leiðtogi
þjóðarinnar úr ánauð til sjálfstjórnar, bjargaði henni úr erlendum klóm,
reisti þjóðina við í öllum skilningi, skóp það ísland sem vér njótum af allra
ávaxta í dag.
Háskóli íslands
Háskóli íslands minntist í haust hálfrar aldar starfsemi sinnar með hátíða-
höldum í Reykjavík og með útgáfu á sögu háskólans eftir próf. Guðna Jóns-
son. Það er lærdómsríkt að lesa bók Guðna og fá yfirsýn um þetta fimmtíu
ára starf sem gerist samtímis því að þjóðarframfarir að öðru leyti hafa orðið
með býsnum svo að leitun er á þjóðfélagi sem tekið hefur eins hröðum vexti.
Hefur starf háskólans haldizt í hendur við þessa öru þróun ?
Háskóli íslands er sprottinn upp af sjálfstæðisbaráttu 19. aldar og einn af
ávöxtum hennar. Þeir sem frumkvæði áttu að stofnun hans og heitast börðust
fyrir honum voru jafnframt forystumenn í sjálfstæðisbaráttunni, allar götur
frá Baldvini Einarssyni, Tómasi Sæmundssyni og Jóni Sigurðssyni fram til
Benedikts Sveinssonar sýslumanns og Bjarna Jónssonar frá Vogi, og þjóðin
sjálf studdi heils hugar kröfur þeirra og lagði fram fé til hans löngu áður en
hann fékkst stofnsettur og höfðu íslenzkar konur þar á meðal forgöngu. Há-
skólinn var loks reistur í hundrað ára minningu Jóns Sigurðssonar. í setn-
340