Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Page 19

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Page 19
ÍSLENZK ÞJÓÐERNISMÁL stríðið léttara. Enginn lestur getur verið sjúkum hollari en þessar sögur, ein- mitt af því að þær eru hreinar og tærar eins og bergvatn ... Því getur þreyttur hugur orðið „leiður á öllu utan íslendinga sögum“. Nú stóð Hákon magnlaus frammi fyrir dauðanum, ekki kórónaður konungur, aðeins veikur og vesæll maður. Minningar frá ríkisstjórn hans, sem kostað hafði ýmsar fórnir, hafa setzt að honum. Og þeir menningarstraumar, sem hann sjálfur hafði veitt til Noregs, urðu honum ekki næg svölun. En hið rólega heiði sagnaritanna kældi enni hans, og ef til vill hefur síðasta hugsun hans verið sú, að gott væri að eiga minninguna um sína eigin ævi í höndum slíkra manna. íslenzka þjóðin, sigruð og flakandi í sárum, rétti honum síðasta svaladrykkinn. Hún hefndi, af auði líknsemdar sinnar, — eins og andinn ávallt hefnir.“ Hefur nú margt verið rætt um frægð íslenzkra bókmennta og orðstír þeirra erlendis. En ofar allri frægð er það hugarafl sem ástundun bókmennta hefur gefið íslendingum allar aldir. Bókmenntirnar voru lestrarefni alþýðu og iðkun alla tíð, aflgjafi hennar í stríði kynslóðanna. Kappar og vitringar fornsagna voru henni liðsmenn öllum stundum, vopnabræður og leiðsögumenn, ekki síður raunverulegir en hinir lifandi samtíðarmenn, aðeins þeim kostum búnir fram yfir þá að þeim voru allir vegir færir og stóðu þeim framar að hetju- skap. Þá óvini, sem þjóðin átti í stríði við, hjuggu þeir í herðar niður hvenær sem einhverjum þóknaðist að opna sögubók, og höfðu í fullu tré við erlenda kónga, og héldu við vitundinni um það að sjálfir voru íslendingar konung- bornir og af kappakyni. Þannig brýndu sögumar kjark þjóðarinnar og héldu uppi stórmennsku hennar, en reistu jafnframt ógæfu hennar harmslegin ljóð sem hresstu andann, stæltu skapið eða lögðu lyf við sárin. Koma þá í hug mörg hetjukvæði Eddu, Sonatorrek og rímur síðari alda. Þessar bókmenntir urðu í skemmstu máli sagt til að móta skapgerð íslendinga og herða hana í raun, jafnframt því sem þær viðhéldu tungutaki, frásagnarstíl og frásagnargleði, varðveittu þjóðernið og tunguna sem skíran málm, og eru því að sönnu með orðum Halldórs Laxness hin dýru membrana, íslands líf. „Og þeirra ísland var ísland og ekki annað ísland til.“ Til að minna á alefling skáldskaparins varðandi líf þjóðarinnar skal hér tekin upp lýsing á Grettlu eftir Halldór úr formála framan við útgáfu hans á sögunni: „Sagan hefst við áraglam og vopnagný, sigursæla leiðangra og ólgandi manniðu samnorrænnar gullaldar; þrettán fyrstu kapítularnir eru víkingaöld. En eftir því sem á líður verkið einfaldast drættirnir, myndin skýrist, margir þættir eru smámsaman spunnir í einn, eins og títt er í fornsögum vorum bezt- um, og æ því meir hvessist oddur sögunnar, unz allir þættir hafa aleflzt í tímabit máls oc mennincar 353 23

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.