Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Qupperneq 21

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Qupperneq 21
ÍSLENZK ÞJÓÐERNISMÁL á traustum grundvelli. Hið sama er um almenna íslandssögu, að hún er ekki til í heild, og ekki nægar undirstöðurannsóknir gerðar. Menn verða að gera sér Ijóst að sá hópur manna sem átt hefur þess kost að vinna að íslenzkum fræðum hefur einatt verið fámennur og fæstum veitt nein starfsskilyrði. Við Amasafn, þar sem aðgangur var að meginstofni íslenzkra handrita, hefur langtímum saman ekki starfað nema einn vísindamaður, og það er fyrst síð- ustu árin, eftir að Danir urðu hræddir um að missa handritin, að verulegu fé hefur verið varið til útgáfu þeirra. Eftir að Háskóli íslands var stofnaður voru lengi framan af ekki nema tveir prófessorar, er urðu að sinna kennslu- störfum og viða að sér jafnharðan öllu efni til kennslunnar, og liggja sannar- lega eftir þessa menn, Björn M. Olsen, Sigurð Nordal og aðra, merkileg verk. Má þó á Jóni Helgasyni heyra að honum finnst Háskóli Islands, og íslenzk stjórnarvöld, sem krafizt hafa að fá handritin heim, hafi allt of lítið gert og of lítinn áhuga sýnt á því að styrkja þessar kröfur með undirbúningi að viðtöku handritanna, ekki hafið neitt verulegt átak til rannsóknar og útgáfu á þeim sem sýnt gæti að íslendingum væri kappsmál að fá þau heim. Hver dómur sem á þetta er lagður verður héðan af ekki látið við svo búið standa. Árna- stofnun hér heima verður að rísa og taka til starfa af krafti og það er hneyksli að ætla sér að spara til hennar. Eftir reynslu af Árnasafni í Höfn og með hlið- sjón af því sem Danir leggja þeirri stofnun síðustu árin telur Jón Helgason lágmark að verja til handritastofnunar hér heima tveim milj. kr. árlega. Ekki þarf aðeins nægt starfslið og ríflegt fé til útgáfustarfa, heldur verða erlendir fræðimenn að fá beztu skilyrði til að stunda tíma og tíma vísindastörf hér. Enginn þarf að efa að um leið og handritin eru mestöll samankomin á einn stað í Reykjavík, eru þau komin í það umhverfi og heimkynni sem stóreykur áhuga á þeim. Eftir það verður handritastofnunin hér miðstöð íslenzkra fræða og samgermanskra og liggur af sjálfu sér hingað rannsóknarbraut allra sem við þessi fræði fást. Eftir það verða líka óhj ákvæmilega gerðar hærri kröfur til allra sem stunda íslenzk fræði, að þeir læri að sjá íslenzka sögu og íslenzkar bókmenntir í ljósi almennrar mannkynssögu og sögu germanskra bókmennta og heimsbókmennta, þær kröfur að þeir meti stöðu íslands að réttu í heim- inum. Jafnhliða því að handritastofnun verður komið á fót, eins og stjórnarfrum- varp liggur fyrir um hjá Alþingi, þarf að reisa byggingu yfir bóka- og hand- ritasafn íslands. Verður þegar í stað að stofna til samkeppni um teikningu að þeirri byggingu og láta gera athugun á hvers konar bókasafnshús oss hentar bezt. Fyrir nokkrum árum, eða 1956, skipaði menntamálaráðherra 355
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.