Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Síða 42

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Síða 42
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR handa þeim erlend blöð. Svíar drukku manna mest, og voru því fyrirmyndar viðskiptavinir. Ég man að hjá mér sat sænskur málari; öðru hverju pantaði hann tvöfaldan konjak, — það var kominn stafli af undirskálum á borðið. Konjakið truflaði hann ekki við lestur Svenska Dagbladet, sem huldi andlit hans. Allt í einu datt blaðið, — Svíinn hafði gefið upp andann. Lögreglan kom, við gengum þegjandi heim. Spánverji nokkur, heljarrumur, varð ein- hverju sinni óður, þreif marmaraborð og veifaði því í kringum sig, æpti, að nú skyldi hann drepa alla viðstadda, því hann hefði viðbjóð á þessu lífi. Við hörfuðum undan að disknum. Libion hélt fast við þá meginreglu, að kalla aldrei á lögregluna. Spánverjinn fór allt í einu að brosa, setti niður borðið og sagði: „Nú getum við skálað fyrir næsta lífi . . Rotonda var samt sem áður ekki nein Babýlon, heldur kaffihús. Þar áttu eig- endur sýningarsala stefnumót við listamenn, írar rökræddu hvernig þeir gætu komið Englendingum fyrir, skákmenn sátu furðulengi yfir tafli. I árslok 1914 kom bróðir Modigliani, þingmaður og sósíalisti, frá Ítalíu til Parísar. Giuseppe Modigliani var andvígur þátttöku Ítalíu í styrjöldinni, í Rotondu átti hann stefnumót við J. 0. Martof og P. L. Lapinski. Sagt var, að það hefði fengið mikið á hann, að sjá bróður sinn viti sínu fjær, og kenndi hann um slæmum félagsskap Rotondu. Rotonda gat samt sem áður ekki svipt neinn mann sálarró, hún dró aðeins til sín þá menn, er rósemd voru sviptir hvort eð var. Blaðamennirnir vissu ekki um hvað við töluðum; stundum lýstu þeir slagsmálum, drykkjum, sjálfs- morðum. Af Rotondu fór æ verra orð. A stríðsárunum sá ég unga, hæverska konu sitja við næsta borð, það var fljótséð, að hún hafði af tilviljun lent á Montparnasse. Hún ávarpaði mig feimin; það kom á daginn að hún var hatta- saumakona frá Poitiers, var á stuttri ferð til Parísar og langaði til að kynnast lífi listamanna. Ég útskýrði fyrir henni, að ég væri ekki listamaður heldur rússneskt skáld. Það fannst henni þeim mun rómantískara. Hún fylgdi mér að hótelinu og bað um leyfi til að sjá hvernig ég byggi. í þann tíma hugsaði ég öllum stundum um listakonuna Chantal, og ég svaraði þurrlega, að ég þyrfti að vinna. „Þér skuluð vinna, bara að ég mætti sitja og láta ekki á mér bera.“ Henni fannst hræðileg óreiða í herberginu og tók til, náði í götuga sokka úr skápnum, stoppaði í þá, festi tölur á skyrtur og fór ánægð, því nú hafði hún kynnzt bóhemalífi. En ég sat í köldu herberginu og orti ljóð: „í kjötbúðinni dottuðu svínshausar, fölir eins og dömur, dapurleiki draup úr dauðum augum á tárvotan marmara. Ef þú vilt, skal ég gefa þér farséraðan gölt eða konfekt- kassa með mynd af dómkirkjunni í Rheims.“ 376
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.