Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Blaðsíða 62
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
stjórnlyndra yfirvalda, og kom hann
honum í skóla í stærstu borg Mæris,
Brno, og lauk Öapek þaðan stúdents-
prófi. Að því loknu settist Capek í
heimspekideild háskólans í Prögu, og
lagði stund á heimspeki þar og í Ber-
lín. Auk þess dvaldist hann á stúdents-
árum sínum í París um hríð ásamt
Jósef bróður sínum.
Námsáhyggjur munu ekki hafa
sótt alltof fast að Capek, því að á
þessum árum sneri hann sér að rit-
störfum fyrir alvöru. Gerðu þeir
bræðurnir félag með sér og mynduðu
eins konar tvístirni á himni bók-
menntanna. Ritsmíðar þeirra féllu í
svo góðan jarðveg, að árið 1916 gáfu
þeir út úrval úr verkum sínum í bók-
arformi. Var það safn smásagna, frá-
sagna og neðanmálsgreina. Tveimur
árum síðar gáfu þeir út annað safn.
Vöktu báðar þessar bækur mikla at-
hygli. Gagnrýnendur voru á einu máli
um, að ekki væru þær ýkjafrumlegar,
þar mætti finna merki um allar þær
bókmenntastefnur, sem þá voru uppi,
en kváðu jafnframt upp þann dóm,
að mál og stíll væri frábært.
Þessi dómur gagnrýnendanna hef-
ur staðizt betur tímans tönn en marg-
ir aðrir af sama tagi. Báðar þessar
hækur bera vitni um óhemju yfir-
gripsmikla og djúpstæða þekkingu á
þeim bókmenntastefnum, sem hæst
bar, einkum úrkynjunarstefnunni, er
þeir bræður skopstældu með svo góð-
um árangri, að báðar halda bækur
þessar bókmenntagildi sínu að kalla
enn þann dag í dag.
Þegar heimsstyrjöldin fyrri skall á,
var Capek maður enn kornungur og
lífsskoðanir hans enn í mótun. Þess
vegna hafði styrjöldin enn meiri áhrif
á þær en hún hefði haft að öðruin
kosti. A þessum árum kristallaðist
heimsskoðun Capeks, einstaklings-
bundinn húmanismi, sem er hinn
rauði þráður allra verka hans æ síð-
an. Um styrjöldina skrifaði Capek
tvær bækur. í þeim fjallar hann ekki
um sögu stríðsins sjálfs, heldur al-
menn vandamál, sem stríðið hafði átt
sök á, skilin á háspekilegan hátt. Ut
úr þessum bókum Capeks skín ótti og
andúð á járnhörðu lögmáli nauðsynj-
arinnar og bergmáli þess í skapgerð
manna. Þessi tilfinning fyrir ófrelsi
mannlegra athafna, að ógerlegt sé að
brjóta af þeim hlekki hins ylri veru-
leika, er svo sterk, að Capek kemur
ekki auga á neina aðra leið út úr
ógöngunum en kraftaverk.
Mjög eðlilegar ástæður lágu til
þess, að hinn óhugnanlegi veruleiki
stríðsins birtist í verkum Capeks á
þennan akademíska hátt. Sjálfur tók
hann ekki þátt í styrjöldinni; var að
vísu kvaddur í herinn, en gerður aft-
urreka sökum hættulegs sjúkdóms,
sem hann þjáðist af á þeim árum.
Capek gat ekki ausið úr endurminn-
ingabrunninum eins og landi hans
Hasek, sem barðist í austurríska
hemum, áður en honum tókst að
396