Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Side 66
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Krakatit boðar hann þá lausn út úr
ógöngunum að hverfa til fyrri hátta.
Það er nær þarflaust að taka það
fram, að Capek hafnaði með öllu
lausn þeirri, sem stéttabaráttan bauð
upp á. Af leikritinu Ur lífi skordýra
(1922), sem hann samdi ásamt bróð-
ur sínum, er ljóst, að samkvæmt skiln-
ingi Capeks var samfélag, af hvaða
tagi sem var, aðeins stærðfræðilegt
hugtak. Skoðun Capeks, að bylting sé
fánýt, að mannlegum mætti sé ofvax-
ið að breyta heiminum til hins betra
er auðlesin út úr leikritinu Skaparinn
Adam (1927).
En Capek vildi leysa vandamálin á
jákvæðan hátt, og í lokakafla Almætt-
isverksmiðjunnar komst hann svo að
orði: „Heimurinn verður slæmur,
meðan fólk vantreystir hvert öðru.“
Þessi trú hans á mannfólkið var sam-
ofin trúnni á áþreifanlegum verðmæt-
um daglegs lífs og vantrú hans á stór-
virkjum. I Krakatit segir málpípa
Capeks, gamall maður, sem hittir
söguhetjuna, verkfræðinginn Prokop,
svo: „Þú ætlaðir að vinna stórvirki,
en í staðinn muntu vinna að lítilvæg-
um viðfangsefnum. Það er langbezt
þannig.“
Rithöfundurinn Capek og stjórn-
málamaðurinn Masaryk höfðu hitzt.
Frægð Capeks fór ört vaxandi á
þriðja tug aldarinnar, og er á hann
leið varð hún að heimsfrægð. Skáld-
sögur hans voru þýddar á ótal mál,
leikritið RUR var leikið samtímis í
Bandaríkjunum og Sovétríkjunum. Á
skömmum tíma fór hagur hans hrað-
batnandi og Capek, sem árið 1911 gat
með erfiðismunum aurað saman fyrir
nokkurra mánaða Parísardvöl, fór nú
í hverja förina annarri lengri. Heim
sendi Capek ferðapistla, sem birtir
voru jafnharðan. Seinna voru þeir
gefnir út í bókarformi. Fyrst í þess-
um ferðabókaflokki voru Bréf frá
Bretlandi (1924), en nokkru síðar
Myndir frá Hollandi, en auk þess
skrifaði Capek um Spán og Ítalíu, en
lestina rak Norðurförin (1936).
Um hríð tók Capek sér hvíld frá
skáldsagnaritun og sneri sér meir að
aðalatvinnu sinni, blaðamennskunni.
Á þessum árum skrifaði hann fjöld-
ann allan af greinum; meðal annars
má nefna, að hann skapaði nýtt form
blaðagreina, sem kallað hefur verið
„dálkurinn“. í „dálknum“ ritaði Ca-
pek um allt milli himins og jarðar:
dagblöð, garðyrkju, bókmenntir,
kvikmyndir, úthverfi Prögu og margt
fleira.
í þessum greinum, ritgerðum og
dálkum beindi Capek athygli lesend-
anna að daglegu lífi og hversdagsleg-
um hlutum, og tókst ævinlega að
vekja áhuga manna á því, sem hann
ræddi. Á þessum árum fæddust einnig
Sögur úr öðrum vasanum og Sögur
úr hinum vasanum (1929), ógleym-
anlegar þeim, er lesið hafa, sökum
frásagnarsnilli höfundar og athyglis-
verðs og skemmtilegs efnisvals. Sög-
400