Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Síða 69

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Síða 69
KAREL CAPEK ar um yfirvofandi hættu. í Sala- möndrustríðinu lýsir Capek því, hversu gamall sjóari finnur sala- möndrur austur í Indíahafi, sem eru furðulíkar mönnum. Fyrst í stað vek- ur uppgötvunin enga athygli, en svo komast auðjöfrar heimsins að því, að salamöndrunum má kenna ýmis verk og láta þær vinna eins og menn. Að lokum fer svo, að salamöndrurnar sameinast, eignast foringja og eigið hugmyndakerfi og segja mannkyninu stríð á hendur og útrýma því. Til þessa alls njóta þær beinnar og ó- beinnar hjálpar auðhringa, sem sjá sér leik á borði að græða of fjár. Allt frá unglingsárum hafði Capek verið ákveðinn friðarsinni og lítiltrú- aður á skipulögð samtök. En í Sala- möndrustríðinu skoraði hann á allar þjóðir heims að bindast varnarsam- tökum og bætir við: „Mannkyn vertu viðbúið að verja tilveru þína með vopn í hönd! “ Capek var sakaður um svartsýni, vegna þess að hann lét Salamöndru- stríðið enda á harmsögulegan hátt. En höfuðstyrkur bókarinnar sem viðvör- unar er einmitt fólginn í glórulausri svartsýni hennar. Salamöndrustríðið var fyrsta verk Capeks, sem beint var gegn fasisman- um, en ekki hið síðasta, því að nú lét skáldið skammt stórra högga á milli. Árið 1937 var leikritið Hvíta veikin fullgert. Þar sýnir Capek fram á magnleysi einstaklingsins gagnvart fasískum múgi. Seinna sama ár gaf hann út skáldsöguna Fyrsti vinnu- flokkurinn, sem er á ytra borði saga um mannlega samheldni. En Capek lá allt annað á hjarta. Ætlun hans var að hvetja allar stétir til að verja lýð- veldið af trú og dyggð þrátt fyrir fornar væringar. Um fórn, sem móðir varð að færa, til að hún gæti varið það, sem henni var helgast, skrifaði Capek síðasta leikrit sitt. Það var Móðirin. Hann lauk ekki fleiri verkum. Miinchen- samningarnir fengu mjög á hann. Hann hafði löngum verið lítt heill, en nú fór heilsu hans ört hrakandi. Síð- ustu kröftum sínum eyddi þessi iðju- sami maður til að skrifa um líf og starf tónskáldsins Foltýns, en við þá sögu lauk hann aldrei. Karel Capek andaðist á jóladag árið 1938. Vorið 1939 hemámu Þjóðverjar Bæheim og Mæri. Karel Capek hefur verið talinn beztur tékkneskra rithöfunda, það sem af er þessari öld, og kom til greina að hann fengi bókmenntaverð- laun Nobels á árunum 1936—1938. Rit hans eru mörg og svo margræð, að oft sá Capek sitt óvænna og ritaði við þau skýringar, sem stundum reyndust þó áhrifalitlar. Engu að síð- ur eru þær þó athyglisverðar, því að af þeim má sjá, að stundum lögðu samtíðarmennirnir hlutlægari skiln- ing í verkin en höfundur sjálfur. Hér að framan hefur mér ekki gef- 403
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.