Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Side 71
J EAN-PAUL SARTRE
Samtal um Kúbu
Jean-Paul Sartre hefur fariS í tvœr
kynnisferðir til Kúbu, þekkir Castró og
fylgdist með gangi byltingarinnar um hríð.
Hann svarar hér spurningum um Fidel og
baráttu hans. Viðtal þetta birtist í franska
vikublaðinu L’Express 20. apríl síðastlið-
inn eða með öðrum orðum skömmu eftir
innrásina á Kúbu.
„Hvernig skýrið þér það, að hin nýja
ríkisstjórn Bandaríkjanna, sem hefur gert
heyrum kunnugt, að hún sé reiðubúin að
taka upp aðra stefnu en Eisenhower gagn-
vart þeim þjóðum, sem eru efnahagslega
skammt á veg komnar, og jafnvel líka gagn-
vart Kína, getur ekki sœtt sig við framfara-
sinnaða stjórn á Kúbu?“
— Á meðan á kosningabaráttunni stóð í
Bandaríkjunum, var sagt, aff frambjóffend-
umir tveir hefðu boffiff hvor í kapp viff
annan út af Kúbu, en aff Kennedy mundi
breyta um stefnu jafnskjótt og hann kæmist
til valda, en þaff var ekki rétt. í kosningun-
um kom þaff greinilega í Ijós, að Kennedy
var fylgjandi því, að bæffi flóttamönnum
frá Kúbu svo og stjómarandstæffingum í
landinu sjálfu væri veitt affstoff. Þaff, sem
nú er aff gerast, er því í fullu samræmi við
yfirlýsingu forsetans. Stefna hans er ó-
breytt.
Ef Bandaríkin una því illa, aff sjá lítiff,
sjálfstætt og framfarasinnaff ríki meff sex
milljónum íbúa rísa upp í nokkurra tuga
kflómetra fjarlægð frá Flórida, þá stafar
þaff af engu öffru en því, að þetta ríki koll-
varpar þeim nýja skilningi, sem nú er lagff-
ur í Monroe-kenninguna. Áffur fyrr hljóff-
aði Monroe-kenningin svona: Ameríka fyr-
ir Ameríkumenn, en núna Suður-Ameríka
fyrir Norffur-Ameríkumenn.
Viff verffum aff gera okkur ljósa grein
fyrir því, aff bandarísk heimsveldisstefna
nær til allra landa í Suffur-Ameríku og fólki
í þessum löndum þótti sú staðreynd, að
Castró auffnaðist aff losa sig við efnahags-
affstoð Bandaríkjamanna, skipta miklu
meira máli en sá orffrómur, aff kúbönsk
stjómarvöld aðhylltust kommúnisma. Þegar
ég fór til Brasilíu þá komst ég aff raun um,
aff Kúba var tekin sem fordæmi og litiff á
hana sem forystuþjóff.
f augum Bandaríkjamanna er þetta vita-
skuld mjög slæmt fordæmi, og það sem
verra er, þá er þetta líka sönnun þess, að
smáþjóff getur öðlazt sjálfstæffi. Fram aff
þessu gátu menn affeins látiff sig dreyma
um slíkt, en nú er þeim færffur heim sann-
inn um það. Þaff er einmitt þetta, sem
Bandaríkjamenn geta ekki þolaff.
„Hafa ekki bandariskir stfórnarleiðtogar
látið í Ijós ótta við það, að Kúba yrði fram-
vörður á valdasvœði kommúnista?"
— Þetta er í rauninni inntak þess áróff-
urs, sem rekinn er meðal almennings í
Bandaríkjunum og jafnvel líka í Evrópu.
Eftir því sem sagt er eiga Bandaríkin ekki
aff geta þolaff þaff „aff sovézkri skammbyssu
405