Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Síða 73

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Síða 73
SAMTAL UM KÚBU á að gera í Alsír). Það er meira að segja til fámenn aðalsstétt á Kúbu. Hún á ætt sína að rekja til spánskra landnema og á tals- verðar jarðeignir. Bandaríkjamenn ætla smám saman að selja henni í hendur stóran hluta hins ræktaða lands. Eins og er eiga þessir niðjar landnemanna aðeins tæpan þriðja hluta allra jarða á Kúbu, en Banda- ríkjamenn hins vegar rúma tvo þriðju hluta. Þetta hlutfall á eftir að snúast við, þannig að 70% allra jarða á Kúbu verði að lokum eign innlendra stóreignamanna. Þessi breyting er engum erfiðleikum bundin. Land, sem einskorðar landbúnað sinn við ræktun einnar tegundar, er þvert á móti tilvaliÖ markaðssvæði fyrir fjármagn og framleiðslu, sem ekki er þörf fyrir í heimalandinu. Þessi einhæfði landbúnaður dregur þann ljóta dilk á eftir sér, að allt annað er vanrækt. Fyrir ágóðann af sykur- ræktinni geta landeigendur á Kúbu ekki keypt annað en bandarískar vörur. Einu gildir hvort Bandaríkjamenn fara sjálfir með völd á eynni eða leppstjóm, skipuð innlendum aðalsmönnum, úr því að tekj- umar em hvort eð er yfirfærðar í dollara. Vélar og bílar eru keyptir frá Bandaríkjun- um og menn hafa þar reikninga í bönkum. Þetta er gamalreynda aðferðin, sú sama, sem Frakkar beittu í Alsír. En ástandið á Kúbu var í vissum skilningi miklu verra en nokkurn tímann í Alsír. Við höfum aldrei einskorðað landbúnaðinn svo að leggja nið- ur alla komrækt og þurfa svo að senda Al- sírbúum kornvöru. En frá Bandaríkjunum þurfti að flytja til Kúbu bæði hrísgrjón og tómata, sem eru undirstöðufæða Kúbu- manna. Þeir juku með öðrum orðum eftir- spum eftir bandarískum landbúnaðarvör- um, enda þótt land þeirra sjálfra sé svo frjó- samt, að það sé hægur vandi að rækta þar kom til eigin þarfa. Hvar finnum við lýðræði í þessu skipu- lagi? Hvergi. Það hefur aldrei verið til af þeirri einföldu ástæðu, að hagsmunir stór- eignamanna og yfirmanna hersins, sem vald- ir eru úr hópi þeirra fyrrnefndu, em and- stæðir hagsmunum alþýðu. Það var ekki tilviljunin ein, sem réð því, að Batista komst til valda. Hann var óvenjulega mikill harðstjóri, en það voru líka margir fleiri á undan honum. í sögu Kúbu skiptast á harðstjórnartíma- bil og spillingartímabil. Þegar allt var með kyrrum kjörum og ekki vaxandi fátækt með- al alþýðu í landinu, var harðstjóm ekki nauðsynleg. Það var nóg að hafa herinn til að halda uppi lögum og reglu. Landstjór- arnir vom gjörsamlega valdalausir, enda urðu þeir þess brátt áskynja, að þeir voru aðeins háttlaunaðir en atkvæðalitlir óþarfa- menn. Þetta hefur verið hlutskipti allra leiðtoga lýðræðissinnaðra flokka, sem hafa komizt til valda eftir að hafa steypt harð- stjóra úr stóli. Þar sem þeim var ekki leyft að gera þá byltingu, sem nauðsynleg var til að breyta þjóðskipulaginu (með því t. d. að taka upp fjölbreyttari ræktun, gera Kúbu efnahagslega óháða Bandaríkjunum o. s. frv.), þá áttu þeir ekki annars úrkosti en að selja sig Bandaríkjamönnum eða þá Kúbu- mönnum, sem ráku erindi þeirra. Spilling sigldi þannig í kjölfar harðstjómar. Einræðisstjóm Batista hafði ákveðnu hlutverki að gegna. Bandaríkjamenn, sem vom húsbændurnir, hafa alltaf verið ein- ráðir um það hversu mikið magn af sykri var keypt hverju sinni. Eftir heimsstyrjöld- ina síðari græddu stórbændur á Kúbu á tá og fingri. Sykurræktin jókst svo, að fram- leiðslan náði sjö milljónum tonna á ári. En svo einn góðan veðurdag segja Banda- ríkjamenn: „Við getum ekki keypt þetta allt saman af ykkur. Við höfum ekki þörf fyrir meira en fjórar milljónir tonna.“ Það þurfti því skyndilega að minnka framleiðsluna og það er vandalaust fyrir framleiðendur. Sykurreyr er ekki vél. Hann 407
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.