Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Page 74

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Page 74
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR vex fyrirhafnarlaust. Ef of mikið er af hon- um, þá er nóg að láta vera að sá í hluta af ekrunum og það getur naumast talizt tíma- frekt verk. Þetta kemur verst niður á hin- um óbreyttu vinnumönnum, af því að ef uppskeran er sjö milljónir tonna eitt árið, en ekki nema fjórar milljónir það næsta, þá þýðir það, að þrír af hverjum sjö vinnu- mönnum verða algjörlega atvinnulausir. Til þess að fá alþýðu manna til að sætta sig við þessi kjör, þurfti auðmannastéttin að koma harðstjóra til valda. Hlutverk Bat- ista, eftir að hann hafði aftur fengið stjórn- artaumana í sínar hendur, var að fá þjóð- ina til að kingja nokkurs konar hrossalyfi, þ. e. a. s. að minnka sykurrækt landsmanna um tæpan helming. Batista var ekki harður, vegna þess að lund hans hefði harðnað, heldur vegna hins, að ástandið krafðist rót- tækra meðala. Menn þurfa að vera harðir til að gera stóran hluta þjóðarinnar atvinnu- lausan, en skerða samt sem áður ekki eignir hinna ríku. Þessir þrælslegu hlekkir hrukku í sundur eins og við var að búast, ekki vegna þess að Batista, sem var rakið varmenni, komst til valda af tilviljun, heldur vegna hins að það var vilji Bandaríkjamanna að varðveita þetta skipulag með aðstoð harðsnúinnar valdastéttar og hers, sem var ekki til annars en að berjast fyrir hagsmunum þeirrar stétt- ar. Það var þetta, sem olli byltingunni. Það var ekki nóg, að Kúbumenn seldu mun minna magn af sykri, heldur hafði íbúatal- an líka þrefaldazt á síðustu fimmtíu árum. Og fólksfjölgunin átti ekki frekar hér en í Alsír rót sína að rekja til aukins heilbrigð- iseftirlits. Orsök fólksfjölgunarinnar er hins vegar eymdin. Það er ógjömingur að fækka bameignum vegna takmarkaðs heilbrigðis- eftirlits. Hver er þá munurinn á þessu og nýlendu- stefnunni? Aðeins sá, að ofan á hana bæt- ist hræsni Bandaríkjamanna og skinhelgi. Kúba var nýlenda, en hún hafði fengið full- veldi. Kúba var sjálfstætt ríki að nafninu til. Kúba hafði her, sem átti að vera tákn sjálfstæðis hennar. Meinið var, að þessi her var í reyndinni aðeins verkfæri til að kúga Kúbumenn og hneppa í ánauð. Má ég held- ur biðja um ómengaða nýlendustefnu, það er þó alltaf gengið hreint til verks. Árang- urinn er sá sami, en hann sést fyrir opnum tjöldum. Kúbumenn hafa lengi verið blekktir. Þeir saka sjálfa sig um eigin hörmungar. „Bandaríkjamenn hafa líka veríð blekkt- ir. Almenningur gerir sér ekki grein fyrír því, að Bandaríkin eiga nýlendur.“ — Castró hefur þvi miður orðið að sæta heimskulegum áróðri af hálfu Banda- ríkjamanna, sem hafa aldrei skilið hann. í einræðistíð Batista leið t. d. ekki sá dagur, að menn væru ekki pyndaðir eða myrtir í fangelsunum í La Havana eða Santiago. Aldrei minntust bandarísk blöð, sjónvarp né útvarp á þessar pyndingar fyrr en undir lokin þegar augljóst var orðið, að Batista hafði tapað leiknum. En eftir sigur Castrós kvað við annan tón. Þremur eða fjórum mánuðum síðar var höfðað mál gegn pyndingarmönnum, flug- mönnum, sem höfðu varpað sprengjum á ó- varðar borgir, og morðingjum. Nokkrir menn voru dæmdir til dauða eins og hjá okkur 1945. Þá sýndu allar sjónvarpsstöðv- ar í Bandaríkjunum hryllilegar myndir. Það var auðvitað vandað til valsins. Ein var t. d. af stórum óttaslegnum svertingja, sem var yfirheyrður og skotinn á eftir. Af- tökur eru ekki ýkja fögur sjón. Þannig var Castró kynntur í Bandaríkjunum. Seinna meir birtist svo þessi lýðræðissinni, sem fór burt í fússi. Hann var fyrrverandi samherji Castrós. Hann leitaði hælis í Bandaríkjun- um, þrumaði gegn Castró í sjónvarpi og bölvaði „harðstjóm“ hans. Þessir blessaðir 408

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.