Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Blaðsíða 78

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1961, Blaðsíða 78
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR varð loks Ijóst, að Castró vildi bæta lífskjör þeirra og gera byltinguna með stuðningi þeirra. Nú vita þeir hversu mjög hlutur þeirra hefur verið réttur með þeim umbót- um, sem gerðar voru í landbúnaðinum eftir að Batista hvarf af landi brott, og þeir eru öflugustu stuðningsmenn ríkisstjórnarinn- ar. Ef menn kæmu nú af fjalli og segðu við þá: „Við ætlum að drepa Castró, viljið þið gjöra svo vel að gefa okkur matarbita,“ þá væru ekki miklar líkur til þess, að þeir fengju sérlega hlýjar móttökur. Þess vegna hugsa ég, að ekki aðeins vopnum heldur líka matarbirgðum sé varpað úr flugvélum til þeirra gagnbyltingarmanna, sem fara nú huldu höfði uppi á fjöllum. Ég minnist ekki á mennina, sem lenda þar í fallhlífum. „HvaS sem því líður, þá bera Bandaríkja- menn algjöra ábyrgð á þeim atburðum, sem nú haja gerzt. Án þeirra hefði hvorki verið hœgt að gera innrásina né leiða hana til lykta.“ — Það er ekki þar með sagt, að Kennedy sjálfur beri ábyrgð á þessu öllu saman. Ég veit ekkert um það. En ég hef aftur á móti ekki mikið traust á stjórn hans. Munurinn á henni og þeirri fyrri virðist mér einkum liggja í ólíku orðavali. Hún sýnir Rússum meiri kusteisi og lætur á sér skilja, að hún gæti tekið aðra afstöðu til Kína, en hún gætir þess vel að taka það jafnframt fram, að Kínverjar eigi að sleppa tilkalli til For- mósu, svo framarlega sem þeir vilji fá við- urkenningu. Það er fáránlegt. Mér er ó- mögulegt að líta á forseta Bandaríkjanna, sem ekki fer leynt með samúð sína með andstæðingum Castrós, sem lýðræðissinna. Mér er ómögulegt að treysta slíkum manni. „Haldið þér, að bein íhlutun Bandarikj- anna sé hugsanleg, þrátt fyrir viðvaranir Sovétríkjanna?" — Þessar viðvaranir eru þeim að vísu þrándur í götu, en það er samt sem áður hætt við því, að Bandaríkjamenn bjóði So- vétríkjunum byrginn, þar sem þeir þykjast þess fullvissir, að þau hafist ekkert að af ótta við það, að mótleikur þeirra hefði of alvarlegar afleiðingar í för með sér. Þetta er skák, sem hefur líka stundum verið tefld fyrir austan. „Bandaríkjamenn geta sagt sem svo: annað hvort leyfið þið okkur að beita sex milljónir manna ofbeldi, eða þið hrindið af stað styrjöld, sem gæti ef til vill kostað 100 milljón mannslíf.“ Það yrði mikill ábyrgðarhluti fyrir ríkis- stjórnir kommúnistaríkjanna. Hvemig gætu þær réttlætt það fyrir fólkinu? Mundu þær hrinda af stað heimsstyrjöld til þess að bjarga Kúbu? Ég hugsa, að Bandaríkja- menn reikni ekki dæmið þannig. Það sem um þessar mundir vekur mesta athygli manna er afstaða Suður-Ameríku. Allar þjóðir í hinni rómönsku Ameríku verða að þola efnahagsánauð Bandaríkj- anna. Hugsið ykkur, að sama rafveitan, sem tekin var eignamámi af Kúbustjóm, eftir að hafa um tuttugu ára skeið hrúgað upp feiki- legri gróðafúlgu með því að selja rafmagn ótrúlega háu verði, heldur áfram að selja landsmönnum í flestum ríkjum Suður- Ameríku þeirra eigið rafmagn. Ef gagn- byltingarmenn verða sigursælir, þá þýðir það með öðmm orðum, að fullveldi er ekki annað en blekking í föðurlandi Monroes og að þjóðir Suður-Ameríku em dæmdar til að lifa undir leppstjórn eða harðstjórn. En væri stjóm Castrós kollvarpað, þá mundi það um leið hafa þau áhrif, að gera þjóðir Suður-Ameríku róttækar í skoðunum og herða þær til andstöðu gegn heimsveldis- stefnu Bandaríkjanna. Það er einmitt þetta, sem gerir Banda- ríkjamönnum svo erfitt um vik. Ef þeir láta Kúbu fara sínu fram, þá vita þeir, að innan skamms munu fleiri suður-amerískar þjóð- ir vilja feta í fótspor hennar, af því að þær hafa við sömu vandamál að stríða. En ef þeim tekst hins vegar að ryðja Castró úr 412
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.