Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Síða 27

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Síða 27
Hjalað við Medeu Orðfæri Jakobs Tsúrtavelís bendir fremur til þess að hann hafi ekki fyrstur manna sett saman bækur á georgisku máli; einnig virðist mega ráða af sögu hans að til hafi verið um daga Súsönnu drottningar einhver reytingur af innlenzkum guðsorðabókum; en allt mun það nú vera farið forgörðum fyrir löngu. Biflíuútleggingar Georgíumanna á miðöldum eru eitt af erfiðustu verk- efnum þarlendra málfræðinga; gerðir útlegginganna eru margar og samband þeirra sín á milli flókið mál. Einsætt er að guðspj öllunum hefur í fyrstu verið snúið úr ermsku, það sést af stíl og orðafari textanna og ýmisháttar mis- skilningi sem hlýtur að stafa frá rangri skýringu á ermsku frumriti. Smátt og smátt, þegar áhrif Grikkja urðu meiri í landinu, var bæði guðspjöllunum og öðrum bálkum Biflíunnar breytt svo að hún stæði betur heima við þann gríska texta sem þá var í gildi hjá býzönsku kirkjunni; um 1000 er þessi breyting nokkurn veginn komin í kring, og riðu endahnútinn á verkið georg- iskir munkar á Aþusfjalli. Biflían var prentuð í heilu lagi í Moskvu árið 1743, og er þar farið eftir texta Aþusmunka að mestu leyti, nema hvað nokkrum bókum Gamla testamentisins hefur verið snarað á nýjaleik og nú úr rússnesku. Þessi útgáfa hefur síðan verið prentuð upp mörgum sinnum og er einlægt höfð við guðsþjónustugjörðir; eintak það sem hér liggur nú fyrir framan mig er prentað í Tvílýsi árið 1963. Svo sem við er að búast á þeim tímum sem hér er um rætt, hlutu kirkju- vald og kennimenn að hafa hönd í bagga með öllum meiraháttar bókmenntum og hvers konar andlegri iðju. Veraldleg vísindi eru varla til sem um muni; skemmtunarsögur og kveðskapur alþýðunnar þykir ekki dýru bókfellinu sam- boðinn, þó margt minnið slæðist að vísu með í heilagra manna sögurnar. Vér guðleysingjar og efnishyggjumenn sem nú lifum höfum víst heldur horn í síðu þessara bókmennta og könnumst ófúslega við að þær sé mikillar eftir- tektar maklegar; allra sízt hvarflar oss í hug að lesa þær oss til dægrastytt- ingar. En erum vér nú rétt til komnir, þegar öllu er á botninn hvolft, að setja oss svo upp yfir menntunarástand og verk fyrri manna? Og er endilega víst að skáldskapur saminn af áblæstri Apollons og Díonýsusar sé merkilegri eða gimilegri, hvort heldur er til skemmtunar eða lærdómsdrýginda, en sá sem þeir hafa lagt í brjóst skáldum sínum Ahúra Mazda, Mahómeð og Jesús Kristur? Eða er guðleysið sannara en guð; eða öfugt? Auk þess stafar þessi fyrirlitning fyrir kristilegum bókmenntum oftast nær af fávísi; margar heil- agra manna sögur eru hreinustu snilldarverk, svo ég minnist ekki á sálma og hómilíubækur, og þurfa norrænir menn ekki að leita langt yfir skammt 2 TMM 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.