Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Síða 83

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Síða 83
gjör hans við skáldið og verk þess og ein- kennist af virðingu og þökk, eins og flest eða allt, sem hann hefur látið frá sér fara um íslenzkar bókmenntir og menningu. í upphafi bókarinnar drepur hann á nokkrar bókmenntafræðilegar kenningar um tilefni Passíusálmanna og ýmis mismunandi senni- leg ummæli um Hallgrím, hina ytri lífsbar- áttu hans og áhrif hennar á sálmana. Allt þetta tekur höfundur til athugunar, en bráðlega tekur þó hin „ytri“ atburðarás að víkja fyrir hinni „innri“, sem Sigurði finnst réttilega mikilvægara og frjórra rannsókn- arefni. Með haldgóðum rökum andæfir liann þeirri útbreiddu hugmynd, að Hall- grímur hafi ort Passíusálmana sér til fró- unar í sjúkdómskvölum sínum og dauða- stríði, þvert á móti hyggur hann, að bætt og aukin velmegun (er Hallgrímur fluttist að Saurbæ) hafi átt meginþátt í að herða og dýpka sálarstríð skáldsins, hina innri baráttu, sem knúði hann til þess stórfeng- lega uppgjörs við trú sína og lífsskoðun, sem í Passíusálmunum birtist, og um þá baráttu fjallar meginhluti bókarinnar. At- liugun Sigurðar er gerð „innan frá“, hann reynir augljóslega að upplifa eða nánast endurlifa tilfinningar skáldsins sjálfs í ljósi allra þeirra aðstæðna og staðreynda, sem völ er á. Sálarstríð Hallgríms Péturssonar, baráttu hans og sigur, er h'kast sem Sig- urður Nordal þekki af eigin raun, og þenn- an skilning sinn, þessa reynslu, túlkar hann á látlausan hátt, og áreynslulaust greinir hann og fléttar saman í eina heild sögulega, sálræna og trúræna þætti í tjáningu skálds- ins. Hin trúarsögulegu og guðfræðilegu at- riði eru þó hinn rauði þráður túlkunarinnar og höfuðprýði, og er sjaldgæft að sjá fjall- að um þau mál af slíkri skynsemi á okkar tungu. Sigurður gerir ákaflega skilmerki- lega grein fyrir mismun hinnar kaþólsku og lútersku kenningar og mikilvægi þeirrar síð- arnefndu fyrir Hallgrím og skáldskap hans. Umsagnir um bcekur Hin „harða“ kenning Lúters lagði nýjan þunga á hinar erfiðu en óhjákvæmilegu þverstæður kristindómsins. Lögmál og náð, erfðasynd og friðþæging, reiði guðs og mildi, þessi andstæðu temu sækja á skáld- ið og berjast um völdin í huga þess, og því má þar auðveldlega benda á mótsagnir og „rökleysur". En Sigurður Nordal bendir á, að til sé rökvísi, og að til sé reynsla, sem rúmi slíkar andstæður og sameini, og hann spyr, hvort Hallgrímur Pétursson hafi ekki „á beztu stundum sínum komizt hænu- feti nær því en hinir rökvísu kerfasmiðir að óra fyrir leyndardómum þessarar óræðu tilveru og þverstæðum mannlegs hlutskipt- is“. Ofdirfska væri og óvinnandi vegur að endursegja að gagni hugsanir og skoðanir Sigurðar Nordals í svo örstuttri grein, svo hnitmiðaðar og gagnorðar sem þær birtast í bókinni sjálfri. „Óskiljanleg" guðfræði- hugtök verða sjálfsagðir hlutir í munni Sigurðar Nordals og á það sinn þátt í gildi og erindi bókarinnar. Mál trúarinnar, sem okkur finnst stundum svo undarlegt og fjarlægt, birtist hér sem lifandi veruleiki, sem við getum skynjað hið innra með okk- ur sjálfum. í eftirmála bókarinnar lætur Sigurður í Ijós von um, að þessi „hugleið- ingabrot“ sín verði öðrum eggjun til sjálf- stæðs lestrar og athugunar. Ég er fyrir mitt leyti handviss um, að honum verður að þeirri ósk sinni. Sigurður er nú orðinn ald- inn að árum, en hugsun hans síung og vax- andi. Það er tilhlökkunarefni að eiga von á fleiri verkum frá hans hendi á næstunni, eins og fyrirheit er gefið um á kápusíðu þessarar bókar. Magnús Skúlason. 73
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.