Fréttablaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 30. apríl 2015 | SKOÐUN | 23
Í DAG
Þorvaldur
Gylfason
hagfræðiprófessor
Landið logar nú eina ferðina enn
í verkföllum, sem hvergi sér
fyrir endann á. Engum þarf að
koma ófriðarbálið á óvart eftir
það sem á undan er gengið. Á
fyrri tíð mátti stundum með
réttu kenna óraunhæfum kaup-
kröfum verklýðsfélaga um koll-
steypur á vinnumarkaði, t.d. í
sólstöðusamningunum 1977. Þá
var samið um fjórðungshækkun
launa á einu bretti yfir línuna.
Verðbólgan jókst í áföngum upp í
83% árið 1983.
Hvar liggur ábyrgðin?
Að þessu sinni virðast aðrir en
launþegar og forustumenn þeirra
bera höfuðábyrgð á hvernig
komið er á vinnumarkaði. Aukin
misskipting sem kristallast í
skefjalausri sjálftöku hefur
ásamt öðru hleypt illu blóði í
kjaraviðræður. Hátekjumenn
hafa ítrekað storkað launþegum
með lágar tekjur. Nýtt dæmi er
þriðjungshækkun stjórnarlauna í
HB Granda, sem þiggur enn sem
fyrr svo að segja ókeypis aðgang
að sameignarauðlindinni í sjón-
um. Annað dæmi er endurvaktir
bónusar í bönkum, sem lúta engri
samkeppni erlendis frá. Þriðja
dæmið er málarekstur seðla-
bankastjórans gegn Seðlabankan-
um fyrir dómstólum vegna launa-
deilu. Fjórða dæmið er eitt fyrsta
verk ríkisstjórnarinnar 2013, en
það var afturköllun fyrri ákvörð-
unar um hækkun veiðigjalda eins
og til að auglýsa að nógir séu hel-
vítis peningarnir eins og Fjölnis-
menn sögðu stundum hver við
annan.
Launþegar fara nú fram á ríf-
lega kjarabót til að jafna metin,
þótt þeir megi vita að verðbólg-
an mun þá aftur láta á sér kræla.
Fyrir launþegum með lágar
tekjur og miðlungstekjur virð-
ist vaka vonin um að halda hlut
sínum gagnvart hátekjuhópum,
jafnvel þótt leiðréttingin kunni
að hækka höfuðstól verðtryggðra
lána og rýra kaupmátt allra hópa
þegar frá líður. Við bætist að
því er virðist almennari áhugi
en áður á að efla hag þeirra sem
bera minnst úr býtum.
Ný vitneskja
Lengi vel var það viðtekin skoðun
meðal hagfræðinga að lögfest-
ing eða hækkun lágmarkslauna
væri nær sjálfvirk ávísun á aukið
atvinnuleysi þar eð hækkun
launa myndi knýja vinnuveitend-
ur til að mæta kostnaðaraukanum
með því að fækka fólki. Nánari
athugun síðustu 15-20 ár hefur
breytt þessu viðhorfi. Rannsókn-
ir hagfræðinga á afleiðingum
hærri lágmarkslauna í Banda-
ríkjunum virðast benda til minni
áhrifa á atvinnuleysi en áður var
talið. Það stafar einkum af því að
á fá keypis markaði, þar sem fáir
vinnuveitendur keppa um vinnu-
aflið, draga bindandi lágmarks-
laun úr markaðsvaldi vinnuveit-
enda, þ.e. úr getu þeirra til að
halda launum og atvinnu niðri.
Þessi nýja vitneskja hefur rutt
sér til rúms í löggjöf í Bandaríkj-
unum, Bretlandi og víðar.
Lágmarkslaun á landsvísu í
Bandaríkjunum eru nú 7,25 dalir
á tímann og ná frá 5 dölum í
Wyoming upp í 9,50 dali í höfuð-
borginni Washington. Lágmarks-
laun á landsvísu voru hækk-
uð síðast 2009. Obama forseti
hefur hvatt Bandaríkjaþing til
að hækka þau í áföngum upp í
12 dali á tímann 2020. Það sam-
svarar 275.000 krónum á mánuði
hér heima miðað við 40 stunda
vinnuviku. Forsetinn styðst m.a.
við rannsóknir sem benda til að
hækkun lágmarkslauna úr 7,25
dölum á tímann (170.000 kr. á
mánuði) upp í 9 dali á tímann
(211.000 kr. á mánuði) myndi
hækka tekjur 7,6 milljóna laun-
þega og auka atvinnuleysi um
0,1% af mann aflanum. Hækk-
un lágmarkslauna úr 7,25 dölum
upp í 10,10 dali á tímann (237.000
kr. á mánuði) myndi með líku
lagi hækka tekjur 16,5 millj-
óna launþega og auka atvinnu-
leysi um 0,3% af mannaflanum.
Sömu heimildir herma, að hækk-
un lágmarkslauna í 9 dali (eða
10,10 dali) á tímann myndi lyfta
300.000 (eða 900.000) manns upp
fyrir fátæktarmörk.
Obama forseti heldur því sem
sagt fram, studdur rækilegum
rannsóknum hagfræðinga, að
hækkun lágmarkslauna um meira
en þriðjung myndi auka tekjur
tíunda hvers vinnandi manns
og lyfta 900.000 manns upp úr
fátækt, en hafa jafnframt vinn-
una af þrem af hverjum þúsund.
Forsetinn telur það vera góð
skipti. Dæmi nú hver fyrir sig.
Fyrirmyndir eða víti til varnaðar?
Áður var yfirleitt talið að
atvinnumissir af völdum hækk-
unar lágmarkslauna hlyti
að vega þyngra en tekjuauki
þeirra sem halda vinnunni. Nú
þykjast margir, þar á meðal
Obama Bandaríkjaforseti, sjá
og skilja í ljósi nýrra rannsókna
að svo þurfi ekki að vera. Hæg
voru heimatökin. Einn helzti
upphafsmaður þessara rann-
sókna, Alan Krueger prófess-
or í Princeton-háskóla, var um
skeið aðalefnahagsráðgjafi
forsetans. Lágmarkslaun eru
lögbundin alls staðar á OECD-
svæðinu nema á Norðurlönd-
um, Ítalíu, Sviss og Þýzkalandi.
Lægst eru lágmarkslaunin að
vísu í Bandaríkjunum og Japan
sem hlutfall af meðallaunum
eða 38% borið saman við 47%
í Bretlandi og 61% í Frakk-
landi. Frakkar búa við mun
meira atvinnuleysi en Banda-
ríkjamenn, sumpart trúlega af
völdum of hárra lágmarkslauna
í Frakklandi.
Hagfræðingar stjórnvalda
og stríðandi fylkinga á vinnu-
markaði hér heima hefðu þurft
að gefa þessum erlendu fyrir-
myndum gaum í tæka tíð og
ræða þær við launþega frekar
en að horfa á landið sogast inn
í harðvítug verkföll m.a. vegna
ágreinings um getu vinnuveit-
enda til að hækka lægstu launin
að óbreyttri verðbólgu.
Hækkun lágmarkslauna
Við bætist að því
er virðist almennari
áhugi en áður á að efla hag
þeirra sem bera minnst úr
býtum.
Landsvirkjun var stofnuð 1. júlí 1965. Nýr iðnaður
varð til í landinu með aukinni verk þekkingu og
fjölbreyttara atvinnulífi. Við byggjum á traustum
grunni og höfum einstök tækifæri til að skapa
þjóðinni verðmæti til framtíðar.
Dagskrá:
- Hörður Arnarson forstjóri og Ragna Árna-
dóttir aðstoðarforstjóri bjóða gesti velkomna
- Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
flytur ávarp
- Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, flytur ávarp
- Jónas Þór Guðmundsson stjórnarformaður
Árangur og áskoranir í 50 ár
- Frumsýning á nýrri mynd um
upphaf Landsvirkjunar og byggingu
Búrfellsvirkjunar
- Hörður Arnarson forstjóri
Verðmæti til framtíðar - í orku
og náttúru Íslands
Skráning og bein útsending á landsvirkjun.is.
Verðmæti til framtíðar
Ársfundur á 50. afmælisári Verið velkomin á ársfund
Landsvirkjunar í Eldborg í Hörpu,
þriðjudaginn 5. maí kl. 14–16.
#lv50ára
AF NETINU
Kveikjum eld
Fyrir tveimur
áratugum
eða svo seldi
hægri stjórnin
sem þá var við
völd í landinu
Síldarverk-
smiðjur ríkisins
(SR). Valinn
hópur vildarvina stjórnar-
flokkanna hneppti hnossið.
Hvort útborgunin var lítil
eða engin er ekki alveg ljóst
í minni. Hitt er skýrt og klárt
að skömmu áður en kom að
fyrstu afborgun var greiddur
út arður af rekstrinum. Hann
var nokkur hundruð þús-
undum króna hærri en nam
afborguninni sem var á gjald-
daga og áttu nýju eigend-
urnir afgang til lífsnautna.
Salan var sum sé engin sala
heldur gjafagjörningur með
afgangi.
Fyrir fáum vikum seldi
bankinn okkar, Landsbankinn,
frá sér fyrirtækið Borgun.
Valinn hópur vildarvina
stjórnarflokkanna keypti.
Fyrir lágvirði. Hvernig greitt
var fyrir er ekki full ljóst. Hitt
er nýlega upplýst að Borgun
ætlar að greiða nokkur
hundruð miljónir í arð í
fyrsta sinn í sögu firmans. Og
gerir það örfáum vikum eftir
eigendaskipti, kannski rétt
fyrir næstu afborgun af kaup-
unum. Það er ekki vitað. En
hitt er augljóst að þetta var
naumast sala, miklu skyldara
gjafagjörningi. Sagan endur-
tekur sig. Vinavæðingin lifir.
http://www.
Úlfar Þormóðsson
herðubreid.is
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
D
-4
5
2
C
1
6
3
D
-4
3
F
0
1
6
3
D
-4
2
B
4
1
6
3
D
-4
1
7
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
8
0
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K