Fréttablaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 2
30. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
STJÓRNSÝSLA Einkahlutafélögin All
Iceland Tours, Aldey og Efstihóll
hafa kært samninga Strætó við Ný-
Tækni vegna ferðaþjónustu fatlaðra
til kærunefndar útboðsmála.
Ný-Tækni tók í febrúar við hlut-
verki Kynnisferða við svokallaðan
tilfallandi akstur fyrir Ferðaþjón-
ustu fatlaðra. Kynnisferðir óskaðu
eftir að losna undan skuldbinding-
um sem fyrirtækið hafði gengist
undir sem aðili að rammasamningi
eftir útboð sumarið 2014. Fyrir-
tækin þrjú sem kæra tóku þátt í því
útboði en Ný-Tækni ekki.
Í umsögn lögmanns fyrirtækj-
anna þriggja, Sveins Andra Sveins-
sonar, segir að ef viðskiptasaga Ný-
Tækni hefði verið skoðuð eins og átt
hefði að gera þá hefði komið í ljós að
núverandi stjórnarformaður félags-
ins og einn af prókúruhöfum þess
hafi setið níu mánuði í fangelsi í Sví-
þjóð eftir tólf mánaða dóm á árinu
2007 fyrir vanskil á opinberum
gjöldum.
„Samdi varnaraðili [Strætó]
við hugbúnaðarfyrirtæki sem
ekki hafði hópferðaleyfi um akst-
ur fatlaðra, hvers eini eigandi og
eini stjórnarmaður hafði tólf mán-
aða dóm á bakinu fyrir skattsvik.
Félagið hafði engar tekjur á árinu
2013 og hafði verið rekið með tapi
og ekki rekstrarhæft,“ segir lög-
maðurinn.
Af mörgum öðrum atriðum í
umsögn kærendanna má nefna að
þeir telja að með breytingum á níu
bílum sem Ný-Tækni ráði yfir þann-
ig að þeir taka nú allir fimm farþega
í stað á bilinu níu til fjórtán áður séu
þeir nú leigubílar en ekki hópferða-
bílar.
„Til þess að aka slíkum bifreiðum
þarf umráðamaður að hafa atvinnu-
leyfi sem leigubifreiðastjóri. Aðeins
eigendurnir þrír hafa leigubílaleyfi,
en aðrir ökumenn sem starfa fyrir
Ný-Tækni hafa það ekki,“ segja kær-
endurnir í sérstakri kæru til Sam-
göngustofu þar sem þess er krafist
að stofnunin tilkynni Strætó og Ný-
Tækni að óheimilt sé að nota þessa
bíla í akstursþjónustu fyrir fatlaða.
„Samrit verði sent lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu með ósk um
stöðvun bifreiðanna.“
Guðmundur Siemsen, lögmaður
Strætó, hafnar því í greinargerð
til kærunefndarinnar að Ný-Tækni
hafi ekki þurft að uppfylla sömu
skilyrði og aðrir þátttakendur í
samningskaupaferlinu.
„Þá hafnar varnaraðili [Strætó]
alfarið sem rangri fullyrðingu
kærenda þess efnis að lög um opin-
ber innkaup hafi verið brotin með
margvíslegum hætti við hina kærðu
ákvörðun, en verulega skortir raun-
ar á að kærendur færi fullnægjandi
rök fyrir henni,“ segir lögmaður
Strætó og krefst þess að kærunni
verði vísað frá og kærendurnir
látnir borga málskostnað enda séu
kröfur þeirra „bersýnilega tilhæfu-
lausar“.
gar@frettabladid.is
Framsal samnings í
ferðaþjónustu kært
Þrjú fyrirtæki kæra Strætó fyrir að semja við Ný-Tækni um að taka við af Kynnis-
ferðum í Ferðaþjónustu fatlaðra. Ný-Tækni sé reynslulaust, tilskilin gögn og ökuleyfi
skorti. Strætó segir kæruna tilefnislausa og krefst þess að henni verði vísað frá.
Eini
eigandi og
eini stjórnar-
maður hafði
tólf mánaða
dóm á bakinu
fyrir skattsvik.
Sveinn Andri Sveinsson
hæstaréttarlögmaður.
FERÐAÞJÓNUSTA Margvíslegir erfiðleikar hafa sett mark sitt á Ferðaþjónustu fatl-
aðra að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ATVINNUMÁL Þjóðhagsspá Hag-
stofu Íslands segir að hagvöxt-
ur sé talinn verða 3,8 prósent
á þessu ári. Spáin nær frá 2015
til ársins 2019 og mikill vöxtur
fjárfestingar og einkaneyslu
drífur hagvöxt fyrstu tvö ár spá-
tímans. Spáin gerir meðal ann-
ars ráð fyrir að einkaneysla auk-
ist um 3,8 prósent og fjárfesting
um rúm 18 prósent á þessu ári.
Verðbólga hefur verið fremur
lítil að undanförnu en talið er
að hún muni aukast á næstunni.
Spáin segir að líklegt sé að hún
fari úr 1,7 prósentum árið 2015 í
þrjú prósent árið á eftir.
- ag
Vöxtur í fjárfestingum:
Hagstofa segir
hagvöxt meiri
UMHVERFISMÁL Landbúnaðar-
nefnd Skagafjarðar hefur ákveð-
ið nýja gjaldskrá fyrir refa- og
minkaveiðimenn. Eftir að hafa
rætt við tíu veiðimenn sem
mættu til fundar og þann ellefta í
síma samþykkti nefndin að greitt
yrði fyrir 344 refi og 171 mink.
Fyrir hvern mink fái ráðinn
veiðimaður 7.200 krónur en aðrir
minkabanar 1.800 krónur. „Verð-
laun vegna refaveiða til ráðinna
veiðimanna fyrir unnin gren-
dýr verði 18.000 krónur og 7.000
krónur vegna hlaupadýra og
vetrarveiði. Verðlaun til annarra
veiðimanna 7.000 krónur á dýr,“
samþykkti nefndin. - gar
Ný samþykkt í Skagafirði:
Átján þúsund
fyrir ref í greni
VEÐUR
Austan 3-10 m/s í dag, en norðlægari
vindur vestantil. Slydda eða rigning á
Suður- og Suðausturlandi, annars stöku
él. Dálítil snjókoma norðaustan- og
austanlands. Hiti 1 til 7 stig, en um eða
undir frostmarki fyrir norðan og austan.
0°
3°
-1°
-6° -1°
2
6
2
3
2
SJÁ SÍÐU 32
Kringlan | 588 2300
Ný sending
Opið til kl. 21 í kvöld
HEILBRIGÐISMÁL Kristján Þór
Júlíusson heilbrigðisráðherra til-
kynnti á ársfundi Landspítalans
að nauðsynlegt væri að bæta við
um 500 nýjum hjúkrunarrýmum
á næstu fimm til sex árum til að
mæta aukinni þörf vegna fjölgun-
ar aldraðra. Stefnt er á að kynna
nýja framkvæmdaáætlun um upp-
byggingu hjúkrunarrýma um mitt
árið 2015.
„Hlutfall aldraðra í þjóðfélag-
inu er að hækka og við verðum
að takast á við staðreyndirnar
sem að baki liggja,“ sagði Krist-
ján Þór. Ráðherra sagði að þessi
fjölgun aldraðra gerði ekki aðeins
auknar kröfur til heilbrigðiskerfis-
ins heldur líka öldrunarþjónustu.
Hann lagði áherslu á að hana þyrfti
að bæta, meðal annars með því að
efla þjónustu í heimahúsum, sinna
forvörnum og endurhæfingu.
Hlutfall aldraðra í þjóðfélaginu hækkar og nauðsynlegt að bæta þjónustu:
Fjölgun á hjúkrunarrýmum
FLUTTI
ÁVARP
Heilbrigðis-
ráðherra
sagði fjölgun
aldraðra gera
kröfur til heil-
brigðiskerfis
og öldrunar-
þjónustu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
MENNTAMÁL „Við viljum halda
okkar fjögurra ára kerfi. Það
segir sig sjálft að lenging skólaárs-
ins um eina viku og niðurskurður
námstíma um eitt ár á móti skilar
sér í skerðingu náms, það viljum
við ekki,“ segir Yngvi Pétursson,
rektor Menntaskólans í Reykjavík.
Mikil óánægja ríkir meðal nem-
enda, stjórnar og kennara MR með
styttingu framhaldsskólanáms.
Ekki lítur út fyrir að skólinn fái
undanþágu. Stjórn skólans hefur
þó ekki gefist upp „Við erum enn
að leita leiða til að forðast stytt-
inguna en menntamálaráðuneyt-
ið hefur til þessa neitað okkur um
allar undanþágur,“ segir Yngvi.
Skólinn hefur reynt að fá að taka
inn nemendur úr níunda bekk í
staðinn fyrir að stytta námið við
MR en því hefur verið hafnað.
„Andi laganna 2008 var sá að
forræði yfir námi var á hönd-
um hvers skóla. Skólar áttu að
hafa frumkvæði að því að skipu-
leggja eigið nám,“ segir Yngvi
sem er þeirrar skoðunar að fjöl-
breytni skóla ætti að vera í fyrir-
rúmi. Hann segir vera svigrúm
innan núverandi kerfis til þess að
útskrifast á þremur árum ef vilj-
inn er fyrir hendi, þá í skólum með
áfangakerfi.
MR vinnur nú að nýrri nám-
skrá fyrir skólann sem miðast við
þriggja ára nám. Flestir skólar á
landinu munu bjóða upp á þriggja
ára nám nú í haust en MR er ekki
í þeirra hópi. Það mun í fyrsta lagi
gerast haustið 2016.
- þea
VILL UNDANÞÁGU Rektor MR vill
halda fjögurra ára námi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Menntaskólinn í Reykjavík leitar leiða til að halda fjögurra ára námi:
MR reynir enn að fá undanþágu
Stofnkostnaður vegna hjúkrun-
arrýma nemur um 12-15 milljörð-
um króna og er árlegur rekstrar-
kostnaður rýmanna um 4,8
milljarðar króna.
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítalans, sagði á fundinum að
stærsta áskorun spítalans væri
gagnvart þeim vaxandi hópi fólks
sem ekki á afturkvæmt í heimahús
eftir legu á spítala . Hann lagði þá
sérstaka áherslu á aldraða og telur
að það þurfi nýja nálgun með því
að nýta nútímatækni og aðstand-
endur í meiri mæli.
- ag
FRAKKLAND Hinn franski „köngulóarmaður“ Alain Robert kleif hæstu
byggingu Parísarborgar með nepalska fánann í hendinni til að styrkja
fórnarlömb jarðskjálftans í Nepal.
Eldhuginn 53 ára, sem er þekktur fyrir að klífa háar byggingar,
kleif að þessu sinni Montparnasse-turninn sem er 210 metra hár.
Robert hefur klifið fleiri en 130 byggingar á ævinni án alls öryggis-
búnaðar. Þar á meðal hefur hann klifið Burj Khalifa í Dubai, Eiffel-
turninn í París og Empire States-bygginguna í New York.
Hann sagði fyrir klifrið að hugur hans væri hjá fjallgöngumönnun-
um sem fórust í snjóflóðunum á Everestfjalli og í grunnbúðunum við
fjallið. - srs
„Köngulóarmaðurinn“ styrkir fórnarlömb skjálftans í Nepal:
Kleif hæstu byggingu Parísar
OFURHUGI Robert hefur klifið fleiri en 130 byggingar. AFP/ KENZO TRIBOUILLARD
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
C
-9
3
6
C
1
6
3
C
-9
2
3
0
1
6
3
C
-9
0
F
4
1
6
3
C
-8
F
B
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
8
0
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K