Fréttablaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 43
KYNNING − AUGLÝSING Lyftarar30. APRÍL 2015 FIMMTUDAGUR 3
Fyrirtækið Kraftvélar bygg-ir á gömlum grunni en sögu þess má rekja aftur til árs-
ins 1992. Kraftvélar bjóða upp á
heildarlausn í vörumeðhöndlun
og má þar meðal annars nefna
hina vinsælu lyftara frá Toyota og
fjölbreytt úrval vöruhúsatækja frá
BT. Að sögn Viktors Karls Ævars-
sonar, sölu- og markaðsstjóra
Kraftvéla, hafa vinsældir þessara
tveggja vörumerkja verið miklar
undanfarin ár hjá bæði litlum og
stórum fyrirtækjum í fjölbreyttum
atvinnugreinum. „Við bjóðum upp
á nokkrar gerðir rafmagnslyftara
frá Toyota sem ýmist eru þriggja-
eða fjögurra hjóla. Lyftigeta þeirra
er frá einu tonni upp í átta tonn og
allt þar á milli. Allir lyftararnir frá
Toyota koma með staðalbúnaði
með hinu einstaka Toyota System
of Active Stability (SAS), sem er
framúrskarandi tækni hönnuð til
þess að tryggja öryggi lyftarans við
notkun hans.“
Kraftvélar selja einnig gott
úrval vöruhúsatækja frá BT og má
þar nefna úrval brettatjakka, raf-
magnsbrettatjakka, rafmagns-
staflara, hillulyftara og dráttar-
tæki. „Flest stóru vöruhúsin og
f lutningafyrirtækin hér á landi
nota vöruhúsatækin frá BT enda
um úrvals vörumerki að ræða sem
einmitt er í eigu Toyota. BT er enn
í dag frumkvöðull á sínu sviði í
vörumeðhöndlun, býður upp á
breiða vörulínu og getur oft og
tíðum boðið upp á mun sérhæfð-
ari búnað en keppinautarnir.“
Auk lyftaranna og vöruhúsa-
tækjanna bjóða Kraftvélar líka upp
á skotbómulyftara frá New Hol-
land sem eru fáanlegir í ýmsum
stærðum og gerðum. „Auk þess
erum við með stærri lyftara frá
Kalma. Það eru þessir stærri lyft-
arar sem til dæmis Eimskip, Sam-
skip, Alcan og fleiri stórfyrirtæki
nota enda fáanlegir upp í 45 tonna
lyftigetu á gámalyfturum. Kal-
mar- og Toyota-lyftarar passa ein-
staklega vel saman þar sem Toyota
býður mest átta tonna lyftigetu og
Kalmar fer mest upp í 52 tonna
lyftigetu. Því má sjá að fyrirtæk-
ið býður sannarlega upp á heild-
arlausnir fyrir allar stærðir fyrir-
tækja í öllum atvinnugreinum.“
Öflug viðgerðarþjónusta
Einnig má nefna vörubílana frá
Iveco en fyrirtækið framleiðir
ýmsar stærðir vörubíla og hefur
frá upphafi verið leiðandi á sviði
nýsköpunar í sinni grein í heimin-
um. „Þannig má segja að við bjóð-
um upp á allt ferli vörumeðhöndl-
unar, lyftara sem lyfta vörum og
vörubíla sem flytja þær.“
Kraftvélar taka eldri lyftara
upp í nýja og því er alltaf tölu-
vert úrval til af notuðum lyftur-
um sem skoða má á vefsíðu fyrir-
tækisins. Fjölmargir aukahlutir
eru einnig í boði fyrir Toyota-lyft-
ara að sögn Viktors sem til dæmis
henta vel fyrir fiskvinnslu- og
álfyrirtæki.
Viðgerðaþjónusta Kraftvéla er
öflug enda starfa þar 20 reynslu-
miklir starfsmenn að sögn Vikt-
ors. „Við bjóðum upp á mjög góða
þjónustu þar sem við getum bæði
sótt tækin eða boðið upp á að fara
á einum af sex fullbúnum viðgerð-
arbílum okkar á staðinn. Þessi
kostur er oft þægilegri fyrir við-
skiptavini sem sleppa fyrir vikið
við að missa lyftarann. Mennt-
unarstigið á verkstæðinu okkar
er mjög hátt, en við erum t.d. með
menntaða vélvirkja, vélfræðinga,
vélstjóra, rafeindavirkja og bif-
vélavirkja svo eitthvað sé nefnt.“
Allar nánari upplýsingar má
finna á www.kraftvelar.is/lyftarar.
Breið vörulína og úrvals þjónusta
Kraftvélar bjóða upp á heildarlausnir í vörumeðhöndlun. Helstu vörumerkin í lyfturum og vöruhúsatækjum eru Toyota og BT. Bæði
merkin henta jafnt litlum og stórum fyrirtækjum í fjölbreyttum atvinnugreinum. Fyrirtækið rekur öfluga viðgerðarþjónustu.
Viktor Karl Ævarsson, sölu- og markaðsstjóri (t.v.), og Magnús Jón Björgvinsson, sölufulltrúi lyftara, taka vel á móti viðskiptavinum.
MYND/GVA
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
Lítið notaðir Toyota
lyftarar til sölu
Bjóðum heildarlausn í vörumeðhöndlun
Toyota Tonero 25 hydrostatic
2.500 kg. dísellyftari
4.150.000.- kr. án vsk.
Toyota Traigo 25
2.500 kg. rafmagnslyftari
4.690.000.- kr. án vsk.
Toyota Tonero 25
2.500 kg. dísellyftari
4.190.000.- kr. án vsk.
Toyota Tonero 25
2.500 kg. dísellyftari
4.290.000.- kr. án vsk.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-4
5
2
C
1
6
3
D
-4
3
F
0
1
6
3
D
-4
2
B
4
1
6
3
D
-4
1
7
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
8
0
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K