Fréttablaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 66
30. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46 BAKÞANKAR Atla Fannars Bjarkasonar AGE OF ADALINE 5:40, 8, 10:20 AVENGERS 2 3D 7, 10 MALL COP 2 8 ÁSTRÍKUR 2D 6 FAST & FURIOUS 7 10 ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK .S o siAM LARRY KING - LARRY KING NOW NANCY JAY - DAYBREAK USA Save the Children á Íslandi Pitsa er uppáhaldsmaturinn minn. Mér finnst gott að borða alls konar mat. Kalkúnninn á ára- mótunum er æði, grillað nauta- ribeye er ómótstæðilegt og humar með vænum slurki af hvítlauk veit- ir mér nautn sem er hársbreidd frá því að vera kynferðisleg. Allt þetta bliknar þó í saman- burði við pitsu með pepper- óní og góðum osti. EF ÞAÐ væri ekki bein- línis hættulegt myndi ég borða pitsu á hverj- um degi. Þegar ég hugsa hvað ég eigi að fá mér í hádegismat hugsa ég alltaf fyrst um pitsu. Hefst þá einhvers konar rétt- lætingarferli sem endar á því að ég sannfæri sjálfan mig um að pitsan sem ég fæ á laugar- daginn verði svo góð að ég geti vel sætt mig við fisk í þessu miðviku- dagshádegi. ÉG BORÐA nefnilega bara pitsu einu sinni í viku. Mesta lagi tvisvar og oftar á meðan úrslitakeppnin í körfuboltanum stendur yfir. Ég vil að það sé athöfn að borða pitsu. Ég vil njóta þess í hvert skipti. Ég vil helst vera heima, á rólegu kvöldi og geta valið um tvær pitsur. Þær verða helst að vera ólíkar og bjóða upp sitthvora unaðslega upplif- unina. ÞAÐ VAR svo um daginn að ég fékk tækifæri til að fá fría pitsu í hverri viku í heilt ár. Ég var stadd- ur á leik KR og Tindastóls í úrslita- keppninni í Domino’s-deild karla í körfubolta þegar ég greip hinn svokallaða Domino’s-bolta. Málið er að mér fannst ég vita að ég myndi grípa þennan bolta á þessum leik. Þess vegna var ég búinn að æfa skotið frá miðju, sem maður þarf að hitta úr til að vinna, á körfubolta- æfingu í sömu viku. ÞEGAR á hólminn var komið gleymdi ég öllu sem ég hafði æft. Tindastóll var að tapa og ég því dapur, stúkan var full og ég mis- reiknaði skotið fullkomlega – dúndraði boltanum í spjaldið og missti af tækifæri lífs míns. Lær- dómur þessarar harmsögu er eng- inn og ég var óhuggandi. Þangað til ég beit í næstu sneið. Harmsaga um pitsu Ólík sjónarhorn mættust á sam- skiptamiðlum í gær og þá sérstak- lega á Twitter þar sem herferðin var annars vegar lofuð í hástert og talin þörf áminning út í samfélagið, á meðan aðrir töldu að um sannkall- aðan úlf í sauðargæru væri að ræða. Megininntak herferðarinnar er að benda konum á að allar séu þær fal- legar, burtséð frá stærðarhlutföllum eða fjölda misfella á líkamanum. Bornar voru saman upplifanir sjö ára stúlkna og háskólanema varð- andi sundferðir og má með sanni segja að munur hafi verið þar á. Á meðan yngri hópurinn hafði mestar áhyggjur af að fá rúsínu- fingur af langri sundferð var þeim eldri umhugað um of stór læri eða hvers kyns ólögulegheit á sundlaug- arbakkanum. Fréttablaðið tók þær Maríu Lilju Þrastardóttur fjölmiðlakonu og Þóru Tómasdóttur kvikmynda- gerðarkonu tali og fékk að kynnast ólíkum skoðunum þessara skeleggu kvenna á herferðinni. Tveir pólar María Lilja segir sér ekki hugnast svona aðferðir: „Það skýtur náttúru- lega skökku við þegar stórfyrirtæki sem makar krókinn á útlitskomp- lexum fer að selja vörurnar sínar undir formerkjum baráttunnar.“ Hún bendir á að hér sé um að ræða fyrir tæki sem beinlínis hagnist á hlutgervingunni og því sé aldeilis eitthvað bogið við að taka hinn pól- inn. „Ef þeir ætluðu sér raunveru- lega að bæta sjálfsmyndir kvenna myndu þeir ekki vera að bæta þess- ari fegrunarlínu sinni inn í lok myndbandsins,“ segir María Lilja. Þóra er annarrar skoðunar. „Mér hefur fundist Dove skera sig úr í flóru snyrtivöruframleiðenda sem auglýsa fótósjoppaðar konur, sem ekki eru til í alvörunni. Það er frábært framtak, og skref í átt að nútímanum, að þora að leggja það á heimsbyggðina að sýna hvern- ig konur eru vaxnar og óþarfi að skjóta það í kaf,“ segir hún og bætir jafnframt við að hún þekki eignar- hald Dove ekki neitt. Þóra segir ekki veita af að sýna unglingsstúlk- um að þær megi hætta í megrun og bendir á að ef þau skilaboð komi frá Dove, þá sé það einfaldlega gott mál. „Ég skil gagnrýnina, fyrirtæki eiga ekki að kaupa sér ímyndir, en ef við eigum á annað borð að kryfja auglýsingar snyrtivöruframleið- enda þá myndi ég beina fókusn- um í aðra átt,“ segir hún að lokum. gudrun@frettabladid.is Dove hristir upp í landanum Snyrtivörurisinn Dove fór af stað með nýja herferð hér á landi í gær. Má með sanni segja að Twitter hafi farið á fl ug þar sem jafnréttisþenkjandi kanónur skiptust í tvo hópa og kepptust við lofa eða lasta útspilið. Það er frábært framtak, og skref í átt að nútímanum, að þora að leggja það á heimsbyggð- ina að sýna hvernig konur eru vaxnar og óþarfi að skjóta það í kaf Þóra Tómasdóttir Það skýtur nátt- úrulega skökku við þegar stórfyrirtæki sem makar krókinn á útlitskom- plexum fer að selja vörurnar sínar undir formerkjum baráttunnar. María Lilja Þrastardóttir Kit Harington, ein aðalstjarna þáttanna The Game of Thrones sem hafa farið sannkallaða sig- urför um heiminn, segist orðinn langþreyttur á tíðum spurningum sem snúa að hárinu á honum. Harington skartar afar fallegu, þykku og voldugu svörtu hári sem margur öfundar hann af. Segist kauði hafa fengið nóg af þeirri athygli sem hárið á honum fær, sem og útlit hans yfirhöfuð. Var það þáttarstjórnandinn Nick Grimshaw, á BBC, sem fékk leik- arann til að opna sig svona á dög- unum. Harington lét dæluna ganga og sagðist finna mikið fyrir að athyglin færi óþarflega oft á hve glæsilegur hann væri í stað leik- listarhæfileika hans. „Ekki mis- skilja mig,“ sagði hann, „mér þykir dásamlegt að fá að heyra hve fal- legur ég er. En þetta getur trufl- að mann. Mér finnst ég ekki alveg svona fallegur.“ Hárið stelur senunni Kit Harington sem leikur í The Game of Thrones er orðinn hundleiður á spurningum um hárið á sér. FLOTTUR Harington er frábær í hlutverki Jon Snow. FRÉTTABLADID/NORDICPHOTOS Mér þykir dásam- legt að fá að heyra hve fallegur ég er. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 8 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 D -C A 7 C 1 6 3 D -C 9 4 0 1 6 3 D -C 8 0 4 1 6 3 D -C 6 C 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 8 0 s _ 2 9 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.