Fréttablaðið - 30.04.2015, Side 10

Fréttablaðið - 30.04.2015, Side 10
30. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 E N N E M M / S ÍA / N M 6 8 5 6 1 Innköllun vegna rafrænnar skráningar hlutabréfa Miðvikudaginn 10. júní 2015 verða hlutabréf í Borgun hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu Íslands í samræmi við ákvörðun stjórnar félagsins. Skráningin tekur gildi kl. 9.00 árdegis. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu í samræmi við ákvæði laga nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa og reglugerðar settri á grundvelli þeirra. Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Borgun tekin til rafrænnar skráningar, en þau eru öll í einum flokki, ónúmeruð en gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi. Að lokinni rafrænni skráningu verður nafnverð hvers hlutar ákveðið 1 -ein- íslensk króna eða margfeldi þar af. Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Borgunar að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til skrifstofu Borgunar að Ármúla 30, 108 Reykjavík. Leiði slík könnun í ljós að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu. Ennfremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, fyrir skráningardag. Gæta skal þess að reikningsstofnun hafi gert aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Íslands. Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun sem gert hefur aðildar- samning við Verðbréfaskráningu Íslands umsjón með eignarhlut sínum í félaginu. Hluthafar munu fá sendar tilkynningar og reikningsyfirlit í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 397/2000. Athygli hluthafa er vakin á því að hlutabréfin verða ógilt sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Stjórn Borgunar hf. BANDARÍKIN Hæstiréttur Banda- ríkjanna kom saman á þriðju- daginn til að hlýða á málflutning bæði stuðningsfólks og andstæð- inga hjónabands samkynhneigðra. Dómararnir níu hafa nú tekið sér umhugsunarfrest, en reiknað er með því að niðurstaða þeirra liggi fyrir í júní. Skoðanir þeirra virðast skiptast í tvö horn, nokkuð eftir flokkslín- um þeirra forseta sem voru við völd þegar viðkomandi dómarar voru skipaðir í embætti. Sem fyrr virðist sem Anthony M. Kennedy geti ráðið úrslitum, en í umræðunum á þriðjudaginn virtist hann tvístígandi. Hann spurði til dæmis hvaða vit væri í því að dómarar hæstaréttar tækju nú upp á því að breyta aldagam- alli skilgreiningu á hjónaband- inu, en á hinn bóginn sýndi hann fullan skilning á því að samkyn- hneigð hjón líti á samband sitt sem alveg jafn göfugt og önnur hjón gera. Dómsmálið snýst meðal annars um það hvort verið sé að brjóta gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna með því að neita samkynhneigðum um rétt til að ganga í hjónaband. Víða var komið við í málflutn- ingnum og til dæmis spurði einn dómaranna, Samuel Alito, hvað myndi standa í vegi fyrir því að fjórir einstaklingar, tvær konur og tveir karlar, fengju rétt til þess að stofna til hjónabands ef sam- kynhneigð pör væru búin að fá til þess grænt ljós frá hæstarétti. Eitt af þeim atriðum, sem úrslitum gætu ráðið, er hvort dómararnir kjósa að líta svo á að með því að meina samkyn- hneigðum pörum að ganga í hjóna- band sé verið að mismuna þeim á grundvelli kynferðis. „Ég meina, ef Sue elskar Joe og Tom elskar Joe, þá má Sue gift- ast honum en Tom má það ekki. Munurinn er byggður á mismun- andi kynferði þeirra. Hvers vegna er þetta þá ekki einfalt dæmi um mismunun á grundvelli kynferð- is?“ spurði einn dómaranna, John G. Roberts. gudsteinn@frettabladid.is Niðurstöðu dómara er beðið í ofvæni Dómarar í hæstarétti Bandaríkjanna virðast enn frekar tvístígandi gagnvart hjónaböndum samkynhneigðra. Í júní þurfa þeir að taka af skarið um hvort lögleiða eigi slík hjónabönd skilyrðislaust í öllum Bandaríkjunum. FYRIR UTAN HÆSTARÉTT Fjöldi fólks, bæði stuðningsfólk og andstæðingar hjónabands samkyn- hneigðra, safnaðist saman fyrir utan hús hæstaréttar Banda- ríkjanna í Washing- ton á þriðjudaginn. NORDICPHOTOS/AFP Málið, sem hæstiréttur Bandaríkjanna hefur tekið til meðferðar, snýst um tvær spurningar: 1. Gerir 14. viðauki bandarísku stjórnarskrárinnar ríkjum Bandaríkjanna skylt að leyfa hjónabönd milli tveggja einstaklinga af sama kyni? 2. Gerir 14. viðauki bandarísku stjórnarskrárinnar ríkjum Bandaríkjanna skylt að viðurkenna hjónaband milli tveggja einstaklinga af sama kyni ef hjónaband þeirra var leyft samkvæmt lögum og stofnað var til þess utan ríkisins? Úr 14. viðauka bandarísku stjórnarskrárinnar: Ekkert ríki skal setja eða framfylgja neinum lögum er skerði réttindi og friðhelgi ríkisborgara Bandaríkjanna; ekki skal heldur neitt ríki svipta nokkurn mann lífi, frelsi né eignum án réttrar málsmeðferðar að lögum, né heldur neita nokkrum manni innan lögsögu sinnar um almenna lagavernd. Spurningarnar til hæstaréttar Árið 1996 staðfesti Bill Clinton, þáverandi forseti, lög um „vernd hjóna- bandsins“, en þar er hjónaband skilgreint sem samband karls og konu. Með þessari lagasetningu fengu ríki Bandaríkjanna skýra heimild til þess að neita að viðurkenna hjónabönd samkynhneigðra, jafnvel þótt stofnað hefði verið til með löglegum hætti í öðrum ríkjum Bandaríkjanna. Clinton vildi síðar ógilda þessi lög. Tvö ríki Bandaríkjanna voru þá þegar, áður en þessi lög voru sett, búin að banna hjónabönd samkynhneigðra. Næstu árin eftir setningu laganna fylgdu meira en 30 ríki í kjölfarið. Bannríkjunum hélt áfram að fjölga allt til ársins 2010, en hefur síðan farið hratt fækkandi. Nú er svo komið að 13 af 50 ríkjum Bandaríkjanna banna samkynhneigðum að ganga í hjónaband. Árið 2013 kvað hæstiréttur upp sögulegan úrskurð sem varð til þess að snúa þessari þróun við. Með dómsúrskurðinum var ákvæði í hinum umdeildu lögum um vernd hjónabandsins numið úr gildi. Eftir það þurftu ríki Bandaríkjanna að viðurkenna réttindi samkynhneigðra hjóna jafnvel þótt slík hjónabönd væru áfram ólögleg í viðkomandi ríki. Nú hafa 36 ríki Bandaríkjanna leyft hjónabönd samkynhneigðra. Þeim hefur fjölgað hratt á síðustu þremur árum en Massachusetts reið á vaðið strax árið 2004. Hræringar síðustu áratuga 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 8 0 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 F -2 4 1 C 1 6 3 F -2 2 E 0 1 6 3 F -2 1 A 4 1 6 3 F -2 0 6 8 2 8 0 X 4 0 0 9 B F B 0 8 0 s _ 2 9 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.