Fréttablaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 8
30. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
Strandgata 3, 600 Akureyri I Borgartún 25, 105 Reykjavík I Sími: 460 4700 I iv iv.is I www.iv.is@
Veðskuldabréfasjóður ÍV hefur birt lýsingu í tengslum við umsókn um að
skuldabréfaflokkurinn VIV 14 1 verði tekinn til viðskipta á skipulegum verð-
bréfamarkaði Nasdaq OMX Iceland hf.
Lýsingin er dags. 29. apríl 2015 og hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu. Hún er
aðgengileg á slóðinni www.viv.is/is/um-viv - vefsíðu Veðskuldabréfasjóðs ÍV, kt. 541112-9950.
Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV, kt. 491001-2080, Strandgötu 3, Akureyri, er rekstraraðili
sjóðsins. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með skuldabréfin á hinum skipulega
verðbréfamarkaði Nasdaq OMX Iceland hf., verði þann 30. apríl 2015.
Höfuðstólsfjárhæð útgefinna skuldabréfa flokksins er 3.000.000.000 kr. Heildarheimild út-
gáfunnar 7.252.200.000 kr. að nafnverði. Bréfin eru gefin út rafrænt í kerfi Verðbréfa-
skráningar Íslands hf. Auðkenni flokksins er VIV 14 1 og ISIN-númer skuldabréfaútgáfunnar
er IS0000024818. Bréfin eru gefin út í íslenskum krónum og er hver eining 1 kr. að nafnverði.
Nánari upplýsingar um Veðskuldabréfasjóð ÍV og skuldabréfaflokkinn VIV 14 1 má finna í lýsingu
sjóðsins. Umsjónaraðili vegna töku skuldabréfanna til viðskipta hjá Nasdaq OMX Iceland hf. eru
Íslensk verðbréf hf., kt. 610587-1519, Strandgötu 3, 600 Akureyri.
REKSTRARFÉLAG VERÐBRÉFASJÓÐA ÍV HF.
Birting lýsingar
Útgefandi: Veðskuldabréfasjóður ÍV, kt. 541112-9950, Strandgötu 3, 600 Akureyri.
Akureyri, 30. apríl 2015.
2.000 FYRIRTÆKI
í ferðaþjónustu, matvælafram-
leiðslu og á fleiri sviðum verða fyrir
skakkaföllum þegar verkfall sextán
stéttarfélaga hefst á hádegi í dag.
10.000 MANNS
fara í verkfall
meðal annars í
VINNUMARKAÐUR Félag lífeinda-
fræðinga telur verkfallsbrot
vera framin á Sjúkrahúsinu á
Akureyri. Hefur félagið sent
bréf til Sigurðar E. Sigurðsson-
ar, framkvæmdastjóra lækninga
við sjúkrahúsið, þar sem krafist
er að meint verkfallsbrot verði
stöðvuð.
Lífeindafræðingar, sem eru
félagar í Bandalagi háskóla-
manna, hafa verið í verkfalli á
Sjúkrahúsinu á Akureyri frá því
7. apríl síðastliðinn. Lífeinda-
fræðingar eru í verkfalli alla
virka daga til hádegis.
Lífeindafræðingar hafa hingað
til sinnt þeirri iðju að taka
almennar blóðprufur á spítal-
anum á meðan hjúkrunarfræð-
ingar hafa tekið blóðprufur í
bráðatilvikum. Í bréfi Félags
lífeindafræðinga til spítalans
er því haldið fram að í verkfalli
lífeindafræðinga hafa hjúkrun-
arfræðingar verið skikkaðir til
að ganga í þeirra störf og taka
almennar blóðprufur. „Viðkom-
andi stafsmaður á sjúkradeild er
með þessu settur í mjög óþægi-
lega stöðu. Í fyrsta lagi ber
honum að hlýða skipunum yfir-
manna en að sama skapi veit við-
komandi að með þessu er hann
að fremja verkfallsbrot,“ segir
í bréfinu sem undirritað er af
Gyðu Hrönn Einarsdóttur, for-
manni Félags lífeindafræðinga.
„Við förum fram á að þessu
verði hætt og að hjúkrunar-
fræðingar séu ekki skikkaðir til
að ganga í okkar verk á meðan
verkfall stendur yfir. Einnig
sjáum við ekki fyrir endann á
verkfalli þar sem lítið þokast í
kjaraviðræðunum,“ segir Gyða
Hrönn. „Við sendum einnig
Landspítalanum sams konar bréf
í upphafi verkfallsaðgerða þar
sem við förum fram á hið sama.“
Sigurður E . Sigurðsson,
framkvæmdastjóri lækninga á
Sjúkrahúsinu á Akureyri, segir
bréfið hafa verið tekið til skoð-
unar og það sent á alla yfir-
menn deilda spítalans. „Við
tökum bréfið auðvitað til greina
og brýnum fyrir fólki að standa
rétt að blóðsýnatöku. Þetta er
hins vegar ekki svo einfalt held-
ur þurfum við að meta hvert
tilvik fyrir sig með hagsmuni
sjúklinga að leiðarljósi,“ segir
Sigurður.
Frá því að verkfallsaðgerðir
hófust hefur sjúkrahúsið þurft
að fresta á þriðja tug aðgerða og
biðlistar lengst. „Þetta verkfall
hefur mikil áhrif á störf spít-
alans og biðlistar í valkvæðar
aðgerðir eins og liðskiptaaðgerð-
ir lengjast með hverjum degin-
um og eru biðlistar í þær aðgerð-
ir langir nú þegar.“
sveinn@frettabladid.is
Krefjast þess að SAK
stöðvi verkfallsbrot
Félag lífeindafræðinga hefur sent Sjúkrahúsinu á Akureyri bréf þar sem þess er
krafist að verkfallsbrotum sé hætt. Hjúkrunarfræðingar gangi í störf lífeindafræð-
inga. „Verðum að tryggja öryggi sjúklinga,“ segir framkvæmdastjóri lækninga.
VERKFALLSBROT Félag lífeindafræðinga telur verkfallsbrot framin á virkum dögum á sjúkrahúsinu á Akureyri. Þar séu
hjúkrunarfræðingar skikkaðir til að ganga í störf þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
HVAÐ, HVERJIR, HVENÆR?
Á
H
R
IF
A
G
Æ
TI
R
V
ÍÐ
A
Ti
l d
æ
m
is
á
h
ót
el
um
, h
já
h
va
la
sk
oð
-
un
ar
fy
ri
rt
æ
kj
um
, ö
ðr
um
f
er
ða
þj
ón
-
us
tu
fy
ri
rt
æ
kj
um
o
g
m
at
sö
lu
st
öð
um
. EFTIRTALDIR AÐILAR
FARA Í VERKFALL Í DAG 300.000 kr. LÁGMARKSLAUN
er krafa Starfsgreinasambandsins.
90 prósent
LANDSMANNA
eru hlynnt því að lágmarkslaun verði
hækkuð í þessa tölu samkvæmt nýrri
könnun Gallup.
● fiskvinnslu
● kjötvinnslu
● ferðaþjónustu
● ræstingum
● vöruflutn-
ingum
● fólksflutn-
ingum
➜ AFL vegna félagsmanna
hjá fyrirtækjum sem starfa á
ALCOA-lóð
➜ Eimskipafélag
Íslands
➜ Lostæti
➜ Gámaþjónusta
Austurlands
➜ Securitas
➜ VHE
➜ Launaafl
➜ Fjarðaþrif
Ótímabundið frá og með 4. maí 2015 verði samningar ekki samþykktir.
➜ Sextán landsbyggðarfélög innan Starfsgreinasam-
bands Íslands
EF EKKERT GERIST
VIÐ SAMNINGABORÐIÐ
fer fólk aftur í verkfall allan sólar-
hringinn á miðvikudag og fimmtudag
í næstu viku og aftur báða dagana
19. OG 20. MAÍ
Ótímabundið verkfall
myndi síðan hefjast
26. MAÍ
hafi samningar ekki tekist.
Einnig
sjáum við
ekki fyrir
endann á
verkfalli þar
sem lítið
þokast í kjara-
viðræðunum.
Gyða Hrönn Stefánsdóttir,
formaður Félags lífeindafræðinga
8
VERKFÖLL
Niðurföll og rennur
í baðherbergi
Mikið úrval
– margar stærðir
COMPACT 30cm
. 90,-
AQUA 35cm
1 .990,
-
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Reykjavík
Reykjanesbæ
PROLINE NOVA 60 cm
2 .990,-
LIFÐU
í NÚLLINU! 365.isSími 1817
Til hvers að flækja hlutina?
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
E
-9
9
D
C
1
6
3
E
-9
8
A
0
1
6
3
E
-9
7
6
4
1
6
3
E
-9
6
2
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
8
0
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K