Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 1. D E S E M B E R 2 0 1 4 Stofnað 1913  290. tölublað  102. árgangur  RÓMANTÍSK SAGA ÖNNU OG EINARS JÓNSSONAR LANGAR AÐ VERA GEIMFARI SALTFISKINN MÁ EKKI VANTA Á JÓLUNUM VIÐSKIPTAMOGGINN JÓLAMATUR 84JÓLAKORT SÝND 12 EINFALT AÐ SKILA EÐA SKIPTA dagar til jóla 13 Stekkjastaur kemur í kvöld www.jolamjolk.is „Þetta eldgos hagar sér öðru vísi en eiginlega öll þau gos sem við höfum séð hér á und- anförnum áratugum,“ sagði Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur og prófessor við Háskóla Ís- lands. „Þetta er í rauninni ósköp friðsælt gos. Það gengur bara áfram dag eftir dag með litlum breytingum.“ Páll sagði að hægt væri að finna allmarga at- burði þar sem askja hefur sigið í tengslum við atburðarás sem er einhvers staðar utan við öskj- una sjálfa. Hann sagði að 45 km fjarlægðin á milli Bárðarbungu og gossins í Holuhrauni væri ekki mjög mikil þegar sambærilegir atburðir á heimsvísu væru bornir saman. „Ég gat tínt til sex tilfelli utan úr heimi síð- ustu öldina. Þá kom í ljós að sjálft öskjusigið er oftast afleiðing af því sem er í gangi eða er gengið um garð frekar en að það sé aðdragandi einhverra stórra viðburða,“ sagði Páll. Eldgosið í Holuhrauni hefur nú staðið í 102 daga Morgunblaðið/RAX Gígurinn Baugur Jarðskjálftahrina hófst í Bárðarbungu um miðjan ágúst. Lítið eldgos varð 29. ágúst. Síðan hófst hraungosið í Holuhrauni hinn 31. ágúst. „Þetta er í rauninni ósköp friðsælt gos“  Hegðar sér öðru vísi en nánast öll gos sem hafa orðið á undanförnum áratugum MEldgosið í Holuhrauni »18-20  Staðgreiðslu- tekjur sveitar- félaga landsins aukast um 10 til 11 milljarða króna á þessu ári, verða líklega á bilinu 151 til 152 milljarðar króna. Gunnlaugur Júlíusson, hag- fræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, segir að launatekjur fólks hafi aukist, þar sem dregið hafi úr atvinnuleysi. Sömuleiðis hafi nýir kjarasamningar mikið að segja. Hann segir að þetta ár verði líklega í „þokkalegu jafnvægi“ hjá sveitarfélögunum. »56 og 58 Tekjur sveitarfélaga aukast á þessu ári Gunnlaugur Júlíusson  Eigendur fast- eignarinnar Bergstaðastrætis 4 í miðborg Reykjavíkur hafa haft til skoðunar að breyta nýtingu lóðar sem fylgir húsinu. Félagið Gamma ehf. á eignina en það á rekstrarfélagið sem rekur hótel- íbúðir í næsta húsi. Gamma ehf. á jafnframt rekstrarfélagið sem rek- ur Hótel Óðinsvé. »28 Hótelrekendur horfa til Bergstaðastrætis Bergstaðastræti 4.  Hópfjármögnunarsíðan Karolina fund hefur vaxið hratt að undan- förnu, síðan er með hæsta árangurs- hlutfall af hópfjármögnunarsíðum á netinu og nú leiðir fyrirtækið tækniþróun í hundrað milljóna króna verkefni. Eigendur fyrirtæk- isins segja að það hefði vaxið mun hraðar ef styrk- og fjárfestaum- hverfið hér á landi væri virkara fyr- ir hugmyndir á fyrstu stigum. »34 Karolina Fund stækkar hratt „Árangur Óla Þórs er mjög merkileg- ur og sýnir hvað hægt er að gera þeg- ar við breytum ytri skilyrðum og veit- um aðgengi að heyrn í gegnum kuðungsígræðslu,“ segir Bryndís Guðmundsdóttir talmeinafræðingur, um námsárangur Óla Þórs Sigurjóns- sonar, heyrnarskerts nemanda í 10. bekk í Hlíðaskóla, sem fékk hæstu einkunn í íslensku á samræmdu próf- unum í haust. Bryndís var með Óla Þór í talþjálf- un í mörg ár en hann fæddist heyrn- arlaus árið 1999. Það uppgötvaðist þó ekki fyrr en Óli var eins árs og hann fór 20 mánaða gamall í kuðungs- ígræðslu. Bróðir Óla Þórs, Nói Hrafn, að verða 11 ára, fæddist einnig heyrn- arlaus og hefur sömuleiðis náð góðum námsárangri í Hlíðaskóla. Hann fór mun fyrr í kuðungsígræðslu en Óli og var í talþjálfun hjá Bryndísi. „Í dag eru okkar strákar að gera nákvæmlega sömu hluti og hinir nem- endurnir og það er bara frábært,“ segir Sigurjón Guðni Ólason, faðir piltanna, en rætt er við fjölskylduna í blaðinu í dag. „Merkilegur árangur og sýnir hvað hægt er að gera“  Kuðungsígræðsla gjörbreytti lífi heyrnarlausra bræðra Morgunblaðið/Golli Bræður Óli Þór og Nói Hrafn Sigur- jónssynir fæddust heyrnarlausir. MBara spurning um að ... »30-32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.