Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
Munið að slökkva
á kertunum
Treystið því aldrei að sjálfslökkvandi
kerti slökkvi á sér sjálf
Af hverju
náttúrupassi?
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
boðar til opins fundar
um frumvarp til laga um
náttúrupassa fimmtudaginn
11. desember kl. 17:00 í
Tryggvaskála á Selfossi.
Á fundinum mun ráðherra kynna frumvarpið
og svara fyrirspurnum.
Fundarstjóri verður Ásborg Arnþórsdóttir,
ferðamálafulltrúi Uppsveita Árnessýslu.
Allir áhugasamir hvattir til að mæta.
OPINN FUNDUR
fimmtudaginn
11. desember
kl. 17:00
í Tryggvaskála
á Selfossi
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við sjáum reyndar að menn hafa
verið hófsamir. Margir geyma
skammtana sína þegar kemur að því
að sæða bestu kýrnar,“ segir Guð-
mundur Jóhannesson, ábyrgðar-
maður í nautgriparækt hjá Ráðgjaf-
armiðstöð landbúnaðarins. Nú þegar
flestir eru að láta sæða kýr sínar
reynir á takmörkun sem Fagráð í
nautgriparækt setti á dreifingu sæð-
is úr þremur bestu nautunum á
Nautastöðinni á Hesti.
Í nautaskránni sem út kom í sum-
ar var tilkynnt um fimm afburðanaut
úr 2008-árganginum sem hafin var
notkun á. Ljóst var að mikil ásókn
yrði í þá þrjá nautsfeður sem komu
nýir inn, Bamba 08049, Klett 08030
og Flekk 08029, sérstaklega tvo þá
fyrrnefndu vegna yfirburða þeirra.
Ákvað Fagráð í nautgriparækt að
hafa dreifingu sæðis úr þeim ekki
frjálsa og óháða, eins og almennt er.
Þessi naut standa eingöngu bændum
í skýrsluhaldi til boða og fjöldi
skammta sem hver og einn fær er
miðaður við fjölda árskúa í maí sl.
Fyrir meðalbú gæti það samsvarað
nálægt 10 skömmtum.
Guðmundur segir að kvótastýr-
ingin hafi fyrst og fremst verið sett
til að allir fengju að njóta gæða
Bamba sem stendur allra nauta hæst
í kynbótamati, mörgum stigum yfir
næsta nauti, og stendur fremst af
sonum hins mikla nautsföður, Laska
00010. Reglan nái einnig til Kletts
sem reynst hafi vel en tiltölulega fáir
sæðisskammtar hafi náðst úr honum.
Ákveðið hafi verið að láta Flekk
fylgja með þar sem einnig hafi verið
búist við mikilli eftirspurn eftir hon-
um.
Geymt fyrir bestu kýrnar
Ekki hefur reynt mikið á kvóta-
stýringuna enn sem komið er, að
sögn Guðmundar, en það gerist
væntanlega næstu vikurnar því kom-
ið er inn í mesta sæðingatímann.
Guðmundur segist ekki hafa orðið
var við mikla ásókn í sæði úr þessum
þremur nautum, menn hafi verið hóf-
samir í kröfum sínum. Þó er ljóst að
einhverjir bændur eru búnir með
sinn kvóta en aðrir eru að geyma
sæðiskvóta sinn fyrir bestu kýrnar.
„Við viljum fyrst og fremst tryggja
að allir fái sæði úr þessum nautum og
geti nýtt sér í ræktuninni. Þá viljum
við að þeir séu nýttir á líklegar
nautsmæður þannig að við fáum syni
þeirra líka til notkunar á nautastöð.
Þannig nýtast þessi góðu naut best í
ræktunarstarfinu sem er miðstýrt
sameiginlegt kerfi í þágu allra.“
Sæði er tekið úr nautunum þegar
þau hafa aldur til og yfirleitt teknir
um 6.500 skammtar. Að því búnu eru
nautin felld. Nautin úr 2008-
árganginum sem hér eru til umfjöll-
unar eru því fyrir löngu komin á
nautakjötsmarkaðinn.
Um 900 naut eru notuð á reynslu-
tíma og þegar kynbótadómur er
kominn á dætur þeirra fer sæði val-
inna reyndra nauta í dreifingu.
Það eru ekki aðeins þessi allra
bestu naut sem stuðla að framförum í
stofninum, öll nautin á nautastöðinni
gera það. Þau eru með góðar ein-
kunnir og hátt kynbótamat eftir af-
kvæmaprófanir.
Kvóti á sæði úr
Bamba og fleiri
afburðanautum
Tilgangurinn að nautin nýtist vel
Ljósmynd/Nautastöðin
Afburðagripur Bambi var allvígalegur, dökkkolskjöldóttur á litinn. Hann var felldur að lokinni notkun.
Bambi 08049 fæddist 4. nóv-
ember 2008 á bænum Dæli í
Fnjóskadal. Ræktendur hans eru
bændurnir Geir Árdal og Margrét
Bjarnadóttir.
Bambi kom til notkunar sl.
sumar með hæstu heildareinkunn
allra nauta og í nýju kynbótamati
sem keyrt var út í lok síðasta
mánaðar hækkar hann um tvö
stig og er nú með 120 í heildar-
einkunn. Í grein Guðmundar Jó-
hannessonar á vef Bændablaðsins
segir að Bambi sé yfirburðagripur,
fremstur á meðal jafningja, og
hvergi veikan blett að finna í
glæsilegu kynbótamati hans sem
byggi á þó nokkrum fjölda dætra.
Kýrnar eru fremur smáar,
mjólkurlagnar og hlutfall verðefna
í mjólk hátt. Júgur- og spenagerð
ásamt mjöltum og skapi verði að
teljast frábær enda segir Guð-
mundur að kýrnar séu geysi-
vinsælar hjá eigendum sínum. .
Bambi verður áfram í notkun
sem nautsfaðir auk þess sem
kvóti er á notkun hans. Sérstök
ástæða þykir til að biðja menn að
nýta sæðið úr honum vel, gæta
hófsemi og sýna takmörkunum á
dreifingu sæðis úr honum fullan
skilning.
Klettur 08030, hálfbróðir
Bamba, fékk svipaða umsögn og
hann í kynbótamati sl. sumar. Öf-
ugt við Bamba lækkar einkunn
hans þegar fleiri dætur eru komn-
ar inn í kynbótamatið. Hann fór í
115 í heildareinkunn sem er held-
ur ekkert slor.
Hvergi veikan hlekk að finna
BAMBI ER YFIRBURÐAGRIPUR